Dagblaðið - 10.11.1981, Page 6

Dagblaðið - 10.11.1981, Page 6
Líkin enn innanborös öryggiseftirlitið í Noregi neitar að gefa leyfi fyrir því að kafa niður að oliuborpallinum Alexander Kielland til að ná út líkunum, sem enn eru eftir inni í vistarverum hans. Talsmaður eftirlitsins hefur sagt að margar beiðnir þess efnis hafi komið frá köfurum og því hafi málið verið endurskoðað á ný, en niðurstaðan hafi oröið sú sama og áður — að þaö væri of mikil áhætta því samfara að fara inn í pallinn. Tals- maðurinn segir að sjónarmið ættingja þeirra 123 manna sem fórust þegar pallurinn valt sé skiljanlegt, en ekki sé hægt að veita leyfið af öryggisá-' stæðum. Hann segir að í pallinum séu um 170 herbergi og milli þeirra stigar og þröngir gangar og það gefi nokkuð góða mynd af því við hvaða erfiðleika1 verði að etja fyrir kafara, sem vildu reyna að bjarga líkunum úr palUnum. Áður höfðu verið athugaðir möguleikar á að rjúfa gat á veggi pallsins en það var ekki talið svara kostnaði þar sem flest líkin væru mun innar í vistarverum paUsins. AlexanderKielland: Erlent Erlent Eríer.t DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981. Erlent Young borgar- stjóri Andrew Young, sem Carter Banda- ríkjaforseti skipaöi á sínum tima sendi- herra hjá Sameinuðu þjóöunum, var nýlega kosinn borgarstjóri í Atlanta 1 suðurrikjum Bandaríkjanna. Young hlaut 56% atkvæða og sigraði með því keppinaut sinn Marcus, 53 ára gamlan lögfræðing. Young kemur til með að taka við af Maynard Jackson sem verið hefur borgarstjóri tvö kjörtímabil. Andrew Young. Kosningabaráttan snerist mikið um samskipti hvítra og svartra i borginni og fjölgun glæpa. Á myndinni hér að ofan sést Young fagna sigri með stuðn- ingsmönnum sínum eftir að úrsUt kosn- inganna voru kunn. FYRIR HÆSTA- RÉTT í NOREGI í síðustu viku hófust í hæstarétti í Noregi vitnaleiðslur vegna virkjunar- innar í Alta-Kautokeino sem mikið hefur verið deilt um undanfarin ár. Hæstarétti er ætlað að taka afstöðu til þess hvort leyfilegt sé að virkja Altaána í Norður-Noregi og mun ráðast endan- lega af dómnum hvort ríkisstjórnin eða virkjunarandstæðingar fara með sigur af hólmi. Ef svo fer að virkjunin verði leyfð er taUð að erfitt verði að halda uppi frekari andstöðu gegn henni, en ef hæstiréttur telur hana ólöglega munu norsk yfirvöld standa frammi fyrir ein- kennilegum vanda þar sem vegalagning og aðrar undirbúningsframkvæmdir eru þegar hafnar. Alta-málið mun verða prófmál og fordæmi fyrir því hve langt skipulags- yfirvöld geta gengið í að staðsetja mannvirki.sem hafa mikla umhverfis- röskun í för með sér, án þess að ráðgast um það við íbúa þeirra svæða sem málið varðar. Það er einnig talið verða prófmál á það hvert vald dómstólarnir hafa til að hnekkja ákvörðunum skipu- lagsstofnana og tæknilegra sérfræð- inga sem í æ ríkara mæU taka ákvarð- anir án eiginlegs samráðs við hina þjóð- kjörnu fulltrúa. Málareksturinn fyrir hæstarétti mun taka um einn mánuð og er þess beðið með eftirvæntingu hvort rétturinn samþykkir dóm undirréttar eða hafnar honum, en þar var virkjun- in dæmd lögleg með 3 atkvæðum gegn 4. Karpov hefur gjörunna stöðu — „Sérfræðingum” í Meranó kom mjög á óvart að Kortsnoj skyldi leika biðleik í stað þess að gefast upp AUt útlit er fyrir að Karpov auki forskot sitt í Meranó um einn' vinning því er 14. skákin fór í bið í gær þótti sýnt að hann hefði vinn- ingsstöðu. Raunar kom flestum spá- mönnum mjög á óvart að Kortsnoj skyldi setja skákina f bið frekar en að gefast upp svo vonlaus er staða hans. taUn. E.t.v. minnist áskorandinn máltækisins fræga, „enginn vinnur skák með því aö gefa hana”, eða þá hann hefur laumað biðleiknum ,,46. — Svartur gefst upp” i umslagið. Hvað sem því liður, þá er afar ólik- legt að skákin verði tefld áfram. Karpov tefldi nú Spænska leikinn að nýju, sem legið hefur óhreyfður frá því 1 6. skákinni, sem Kortsnoj vann glæsilega. Nú mætti heims- meistarinn vel undirbúinn til leiks og eftir nýja hugmynd hans ( byrjuninni féll Kortsnoj í þunga þanka. Á 13. leik sinn notaöi hann Uðlega helming umhugsunartíma sins, eða 1 klst. og 18 minútur. Greinileg merki þess að hann var ekki sáttur við stöðuna. Tlmahrak bætir sjaldan slæmar stöður, en engu að siður hefði áskor- Skák andinn mátt igrunda 16. leik sinn betur. Eftir hann fékk Karpov yfú- burðastöðu, svo nánast var ógjörn- ingur fyrir Kortsnoj að bjarga tafl- inu. I einviginu í Baguio á Filippseyjum fyrir þremur árum var staðan einnig 5—1 Karpov í vil, eins og líklegt er að verði nú. Þá höfðu hins vegar verið tefldar 27 skákir, svo einvígið var mun jafnara en nú. Kortsnoj tókst að jafna metin 5—5, en tapaði úrslita- skákinni. Áreynslulausir sigrar Karpovs i Meranó benda til þess að nú sé skammt tU endalokanna. Hvitt: Anatoly Karpov Svart: Vlktor Kortsnoj Spænsld leikurinn. I. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Spænski klerkurinn Ruy Lopez mælti með þessum biskupsleik um miðja 16. öld og sfðan hefur hann verið i fullu gUdi — þar tU i 6. skák- inni. Eftú glæsUegan sigur áskorand- ans var spænski leikurinn skyndilega orðinn óteflandi og Karpov leitaði á önnur mið. Nú hefur hann sitthvaö til málanna að leggja. 3. — a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Beó 9. Rbd2 Þannig tefldi Karpov i 8. og 10. skákunum { Baguio. Algengasti leikurinn 9. c3 reyndist honum iUa í 6. skákinni i Meranó. 9. — Rc510. c3 d411. Bxe6I Þannig hefur reyndar verið teflt áður en hugmyndin sem býr að baki hjá Karpov er ný af .nálinni. í 10. skákinni ( Baguio lék Karpov óvænt II. Rg5I? og Kortsnoj svaraði með 11. — dxc3. Sjöari tíma rannsóknú hafa sýnt að svartur á um fleiri möguleika að velja, t.d. 11. —Dxg5 12. Df3 0-0-01? (Timman-Smyslov, V-Þýskaland 1979). 11. — Rxe6 12. cxd4 Rcxd4 13. Re41? Be7 Þetta er leikurinn sem olli Kortsnoj svo miklum heilabrotum. Af öðrum möguleikum sem til greina komu virðist 13. —Dd51? einna vænlegast- ur. 14. Be3 Rxf3 + 15. Dxf3 0-0 16. Hfdl De8?? „Alvarleg mistök” — sagði Bent Larsen um þennan leik. Og raunar liggur þaö í augum uppi ef framhald skákarinnar er tekið til viömiðunar. Mun betra er 16. —Dc8 og ef t.d. 17. Hacl, þá 17. —Hd8 og svartur hefur þrengri stöðu en þarf ekki að örvænta. Lakara er hms vegar 17. — c5? (i stað 17. —Hd8) 18. Rxc5! Rxc5 19. Hd5! (19. b4 De6) og hvítur vinnurpeð. 8 7 6 5 4 3 2 1 abcdefgh 17. Rf6+! Fyrir æfða skákmenn er mun auð- veldara að sjá svona leik en að láta sér sjást yfú hann. Ef svartur þiggur fórnina með 17. —gxf6 18. exf6 Bd6 kemur 19. Hd5! og gegn hótuninni 20. Hh5 og 21. Df5 ásamt máti á h7 er ekkert svar! T.d. 19. —Kh8 20. Hh5 Hg8 21. Hxh7 + ! Hxh7 22. Dh5 mát. 14. skákin í heimsmeistaraeinvíginu: Anatoly Karpov að tafli f Meranó. í hann ber svissneska fánann sem er þjóðernis- tákn Kortsnojs. 17. —Bxf618. exf6 Dc819. fxg7 Hd8 19. — Rxg7 leiðú til vonlausrar stöðu á Kortsnoj vegna þess hve kóngsstaða hans er opin. Eini mögu- leiki hans er að láta hvita g-peðið skýla kóngnum. En peðið er ekki hættulaust, eins og síðar kemur i ljós. 20. h4! c5 21. Hacl Leikið gegn 21. —Rd4. Á heims- meistaramáli hefur hvítur þegar tryggt sér vinningsstöðu. 21. —Dc7 22. h5 De5 23. h6 Dxb2 24. Hd7! Hxd7 25. Dxa8+ Hd8 26. Dxa6 De2 27. Hfl Hdl 28. Da8 + Hd8 Það er auðvelt að sannfæra sig um, að eftú 28. —Rd8 29. Hxdl Dxdl + 30. Kh2 Dh5 + 31. Kg3 á svartur enga þráskák. T.d. 31. —De5+ 32. Kh4! Df6+ (32. —Dh2+ 33. Kg4) 33. Kh3 Df5+ 34. g4 og skákirnar eru á enda. Hvíta drottningin valdar mikilvæga reiti. 29. Dc6 b4 30. Da4 Dd3 31. Hcl Dd5 32. Db3 Dc4 33. Dc2 Dxc2 Aðrir leikú ættu ekki að breyta úr- slitunum. 34. Hxc2 f5 35. f4 Kf7 36. g4! Hd5 37. gxf5 Hxf5 38. Hd2 Hf6 39. Hd7+ Kg8 40. f5! Hxf5 41. He7 Einfalt er það. Hér hefði Kortsnoj getað gefist upp með góðri samvisku því riddarinn fellur i valinn vegna hótunarmnar 42. He8 + o.s.frv. , 41. —Rxg7 42. Hxg7 Kh8 43. Hc7 Kg8 44. Bxc5 Hg5 + 45. Kf2 Hg6 46. Be3 Biðstaðan. Ef svo óliklega vill til að Kortsnoj tefli skákina áfram, þá hefst hún kl. 16 í dag aö íslenskum tíma.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.