Dagblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981.
Gert er ráfl fyrir norflaustanátt um
allt land, ál á Norflausturiandi, létt-
skýjafl annars staflar. Þykknar upp er
líflur á daginn mefl vaxandi suðaust-
anátt.
Kl. 6 var í Reykjavfc norðan 1, létt-
skýjafl og hiti 1 atlg, Gufuskálar aust-[
an 3, skýjafl 0, Gaitarvlti norflaustan
2, léttskýjafl -2, Akureyri norflan 4, él
-2, Raufarhöfn norflan 4, skýjafl, -3i
Dalatangi norflvestan 2, skýjafl, hlti 3'
stig, Höfn norflan 7, léttskýjafl 0,
Stórhöffli norðan 3, léttskýjafl 2.
I Þórshöfn var léttskýjafl 6, Kaup-
mannahöfn léttskýjafl -4, Osló skýjafl
5, Stokkhólmur léttskýjafl -6, London
skýjafl 8, Hamborg þokumófla -6,
París skýjafl -3, Modrid heiflskirt 2,
Lissabon heiðskirt 12, Costa del sol
C- skýjafl 14, Nevv York skýjafl 6.
Artdlát
Ragna Sigriður Guðmundsdóttir frá
Þjóðólfshaga í Holtum lézt 2.
nóvember. Hún var fædd 13. desember
1906 að Þjóðólfshaga, dóttir hjónanna
Ragnhildar Jóhannesdóttur og Guð-
mundar Þorsteinssonar. Ragna var gift
Ásmundi Guðmundssyni bifreiðar-
stjóra, þau eignuðust fjögur börn.
Lengst af var heimili Rögnu í Ból-
staðarhlíð 58. Hún var jarðsungin í
morgun frá Frikirkjunni í Reykjavík
kl. 10.30.
Ásthildur Briem hjúkrunarkona frá
Viðey, til heimilis að Furugerði 1
Reykjavik, lézt 31. október 1981. Hún
var fædd 21. marz 1903, dóttir hjón-
anna Katrínar Pétursdóttur og Eggerts
Eiríkssonar Briem. Fyrri eiginmaður
Ásthildar var Þórður Flygering, en
hann lézt 1940. Hún útskrifaðist sem
hjúkrunarkona árið 1924 og hefur hún
síðan verið deildar- og yfirhjúkrunar-
kona bæði hér og erlendis. Ásthildur
verður jarðsungin í dag frá Fossvogs-
kirkju kl. 15.
Tómas Tómasson húsasmíðameistari,
áður til heimilis að Brekkulæk 1
Reykjavík, lézt 1. nóvember 1981.
Hann var fæddur 6. júní 1909 að
Hrútafelli undir Eyjafjöllum, ólst hann
þar upp með fjórum systkinum sem
upp komust, en alls voru systkinin sjö.
Tómas var byggingameistari um ára-
tugaskeið. Hann verður jarðsunginn
frá Laugarneskirkju í dag kl. 13.30.
Ásta Eygló Jónsdóttir, Álfhólsvegi
119, lézt laugardaginn 7. nóv.
Guðmunda S. Guömundsdóttir, Haga-
mel 52, lézt á sjúkradeild Hrafnistu 8.
nóvember.
Gunnar Óskarsson, Hjallalandi 12
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni Fimmtudaginn 12.
nóvember kl. 13.30.
María Sigurðardóttir, Laugateigi 15,
andaðist 1. nóvember. Hún verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík, miðvikudaginn 11. nóvember kl.
10.30.
Stefanía Sigurbjörg Kristjánsdóttir frá
Þórshöfn á Langanesi, Borgarholts-
braut 11 Kópavogi, verður jarðsungin
frá Fossvogskapellu 11. nóvember kl.
15.
Stefán Hansson, Bárugötu 22, lézt í
Landakotsspítala 8. nóvember.
Þórarinn Helgason, rafverktaki, Ljósa-
landi 21 Reykjavík, lézt að heimili sínu
að morgni 9. nóvember.
Feröafólag íslands
Miflvikudaginn 11. nóvember kl. 20.30.
Myndakvöld afl Hótel Heklu, Rauflarárstig 18.
Siguröur B. Jóhannesson sýnir myndir:
1. Frá fjaliaferöum í Sviss.
2. Frá óbyggðum íslands, myndir teknar á ýmsum
árstfmum.
Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir. Veitingar
seldar i hléi.
Útivistarferöir
Þriðjudag 10. nóvember kl. 20.30: Mynda- og
kaffikvöld aö Freyjugötu 27, Anton Bjömsson
sýnir myndir úr Útivistarferðum. Allir velkomnir.
Miðvikudag 11. nóvember kl. 20ir Tunglskinsganga
— fjörubál, komið í kapellu heilagrar Barböru, far-
arstjóri Kristján M. Baldursson. Verð kr. 40,00, fritt
fyrir börn með fullorðnum. Farið frá BSÍ vestan-
verðu (í Hafnarfirði v/kirkjugarðinn).
Kvennadeild SVFÍ
í Reykjavik
hcldur fund riramtudaginn 12. nóvembcr nk. kl. 20 i
húsi SVFÍ Grandagaröi. Sýndar verða lilmyndir úr
sumarferðum, kaffiveitingar. Konur taki með sér
gesti.
Fólagsfundur um
alkóhól, 11. nóvember
í þeim miklu umræðum sem orðið hafa um áfengis-
mál á undanförnum árum hefur verið iögð áherzla á
hin félagslegu og sálrænu vandamál sem tengjast á-
fengisneyzlu en áhrif áfengis á líkamsstarfsemina til
langs eöa skamms tima eru ekki mörgum ljós.
Manneidisfélag íslands ætlar að gefa sem fiestum
kost á aö fræðast um Alkóhól og áhrif þess á
líkamann á almennum félagsfundi, sem haldinn
verður nk. miðvikudagskvöld, þann 11. nóvember,
kl. 20.30. Fundurinn veröur haldinn í st. 101, Lög-
bergi, húsi lagadeildar í Háskóla íslands (næsta hús
sunnan aðalbyggingar).
Aöalerindi kvöldsins fiytur Bjami Þjóðleifsson
læknir um áhrif alkóhóls á starfsemi lifrar, melting-
arkerfis og taugakerfis. Atli Dagbjartsson læknir
talar um áfengisneyzlu á meðgöngutíma og áhrif
hennar á fóstrið. Hildigunnur Ólafsdóttir afbrota-
fræöingur mun fjalla um áfengisneyzlu íslendinga
og neyzluvenjur.
Stjórn félagsins vonast tii þess að allir sem hafa
áhuga á málefinu láti sjá sig. Erindunum er ætlaö
að vera Öllum aðgengileg. Á eftir erindunum verða
almennar umræður.
Hvítabandskonur
minna á fundinn í kvöld kl. 20 að Hallveigarstöðum.
Kynnt verður glermálun.
Fundur í menntamálanefnd
SHÍ 4. nóvember 1981
Menntamálanefnd SHÍ lýsir yfir eindregnum
stuöningi viö framkomna gagnrýni mennta- og
fjölbrautaskólanna á reglugerð um starfshætti á-
fangaskóla.
Jafnframt fordæmir nefndin þau vinnubrögð er
viöhöfð voru við setningu reglugerðarinnar þarsem
ekki var haft eðlilegt samráð við nemendur
viðkomandi skóla.
IMeistavika
í kvöld, kl. 20.30, hefst að Hótel Borg almennur
fundur um nýju vinnuverndarkönnunina meðal
iðnaöarmanna. Einar Baldvin Baldursson og
Wilhelm Norðfjörð hafa umsjón með kynningu á
niðurstöðum í máli og myndum. Þeir eru í hópnum,
sem framkvæmdi könnunina. Fyrirspurnum verður
svarað eftir því sem kostur er.
Þótt þessi vinnuverndarkönnun nái aðeins til
iðnaðarmanna (reyndar ekki til allra hópa iönaðar-
manna) kemur hún öllu verkafólki viö og við
bjóðum alla sem áhuga hafa velkomna á fundinn.
Þá sér Vernharður Linnet um jasskynningu á
þessum sama fundi: Jassinn og jafnréttisbarátta
svartra Bandaríkjamanna.
Fundur þessi er liður í NEISTA-viku sem hófst sl.
laugardag og lýkur nk. föstudag.
Innanhússæfingar íþrótta-
félagsins Leiknis
f knattspyrnu
1. og 2. fiokkur sunnudaga kl. 17.00 3. flokkur
sunnudaga kl. 15.30. 4. flokkur miðvikudaga kl.
19.10. 5. fiokkur laugardaga kl. 15.30.
Kvennaknattspyma laugardaga kl. 13.50. 6. flokkur
sunnudaga kl. 13.10.
Bikarkeppni SSÍ
Bikarkeppni SSÍ II. deildar fer fram í Sundhöll
Reykjavikur 21. og 22. nóvember nk.
Keppnisgreinar og röð:
Fyrri dagur:
1. gr. 400 m bringusund kvenna
2. gr. 400 m bringusund karla
mr
I
GÆRKVÖLDI
Vetrardagskrá í
léttþungavigt
Vetrardagskrá útvarpsins er komin
í gang. Svo lengi sem ég man eftir
hefur breytingin við fyrsta vetrardag
undantekningalaust þýtt þáð-að létt-
meti hefur verið ýtt til hliðar fyrir
öðru og þyngra. Einhvern veginn
virðist mér að nú hafi verið brugðið
út af þessari venju. Að minnsta kosti
virðist mér lítil ástæða til þess að
nokkur þurfi að kvarta nú nema
kannski harmóníkuunnendur. Horn-
rekurnar í dagskrá útvarpsins.
Meira að segja er kominn vísir að
næturútvarpi. Að vísu er aðeins út-
.varpað klukkustund fram yfir mið-
nætti á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Það er þó hænufet í rétta
átt. Hver veit nema að hægt verði að
bæta klukkustund við hvora nótt ein-
hvern tíma fyrir merkisárið 1984.
Leggi ég eyru við uppáhaldsút-
varpsefninu mínu, tónlistinni, þá
virðist mér blanda léttrar og þungrar
sjaldan hafa verið betri — sérstaklega
þegar haft er í huga að það er kominn
vetur. — Klassík og ,,æðri” músík
skipar sinn sess sem fyrr og á eftir að
gera það um ókomna framtíð. Hins
vegar fæ ég það ekki á tilfinninguna,
eins og svo oft áður, að það sé verið
að troða neinu inn á mig sem ég kæri
mig ekki um að heyra.
Léttmetið, Syrpurnar og aðrir
eftirmiðdagsþættir, virðast vera í
góðu lagi þegar á heildina er litið.
Fyrst í stað var reynt að gera öllum til
hæfis i þessum þáttum með þeirri af-
leiðingu að enginn var ánægður. Nú
er svo langur tími liðinn siðan þessi
dagskrárliður var búinn til að helztu
vankantarnir hafa verið sniðnir af
honum.
Eiginlega það eina sem ég hef að
kvarta yfir vegna breytinga á
„óæðri” tónlistarþáttum er stytting-
in á Áföngum Guðna Rúnars og Ás-
mundar. Einhvern veginn hef ég það
á tilfinningunni að það sé verið að ýta
þeim kurteislega út í kuldann. Það er
miður. -ÁT.
Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson umsjónarmenn tónlistarþáttarins
Áfanga. Er verið að ýta þeim kurteislega út í kuldann?
3. gr. 800 m skriðsund kvenna
4. gr. 800 m skriðsund karla
5. gr. 200 m fjórsund kvenna
6. gr. 200 m flugsund karla
7. gr. 200 m flugsund karla
7. gr. 100 m skriðsund kvenna
8. gr. 100 m baksund karla
9. gr. 200 m bringusund kvenna
10. gr. 100 m bringusund karla
11. gr. 100 m flugsund kvenna
12. gr. 200 m skriðsund karla
13. gr. 200 m baksund kvenna
14. gr. 4x 100 m fjórsund karla
15. gr. 4 x 100 m skriðsund kvenna
Seinni dagur:
16. gr. 200 m fjórsund karla
17. gr. 200 m flugsund kvenna
18. gr. 100m skriðsund karla
19. gr. 100 m baksund kvenna
20. gr. 200 m bringusund karla
21. gr. 100 m bringusund kvenna
22. gr. 100 m flugsund karla
23. gr. 200m skriðsund kvenna
24. gr. 200 m baksund karla
25. gr. 4 x 100 m fjórsund kvenna
26. gr. 4 x 100 m skriðsund karla.
Þátttökutilkynningar berist á tímavarðarkortum
til mótanefndar ásamt skráningargj. kr. 5,- á skrán-
ingu fyrir 12. nóv. nk. íþróttamiðstöðinni i Laugar-
dal. Stjórn SSÍ hefur ákveöiö að II. deild skuli 1 ár
vera opin til þátttöku (samkv. 2. grein reglugerðar
bikarkeppni) öllum liðum.
Bikarkeppni 1. deildar fer fram í Vestmanna-
eyjum 28. og 29. nóv. Keppt verður í sömu greinum
og þátttaka skilist fyrir 20. nóv.
AfmæJi
60 ára er 1 dag, 10. nóvember, Kristinn
Ó. Karlsson netagerðarmeistarí, til
heimilis að Heiðarhrauni 59 Grinda-
vðk. Hann er kvæntur Ástu Kristins-
dóttur og eiga þau sex börn. Kristinn er
að heiman í dag.
Fótaaðgerö
fyrir ellilffeyrisþega
í Hallgrímssókn er hvem þriðjudag kl. 13—16 í
félagsheimili kirkjunnar. Tímapantanir i síma
16542, Sigurlaug, Kvenfélagi Hallgrimskirkju.
Kökur á basar
Kattavinafólagsins
Kattavinafélagið hefur ákveðið aö halda kökubasar
nú á næstunni. Eru félagsmenn og aörir velunnarar,
sem vilja láta eitthvað af hendi rakna, beðnir að
hringja í sima 14594.
Sendiherra
Hannes Jónsson sendiherra hefur afhent eftir-
töldum þjóðhöfðingjum trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra íslands I viðkomandi landi með aðsetri í
Genf:
Nyerere, forseta Tansaníu, hinn 17. október sl.
Mengistu Haile Mariam, þjóðhöfðingja Eþíópíii,
hinn 24. október sl.
Daniel Arap Moi, forseta Kenya, hinn 5.
nóvember sl.
IMorræna kvikmynda-
hátíflin í Regnboganum
og Norræna húsinu.
Norræna kvikmyndahátíðin hefur nú runnið skeið
sitt til hálfs. Aðsókn hefur verið mjög góð að
norsku barnamyndinni Átta börn og amma þeirra í
skóginum. Hún verður því sýnd áfram í A-sai
Regnbogans, kl. 3, 5, og 7.
Þá verður sýnd finnska teiknimyndin Bræflurnir
sjö í C-sal kl. 3.10 og 5.10. Þessi mynd er gerð eftir
skáldsögu hins fræga rithöfundar Finna, Alexis
Kivi, sem hefur svipaða stöðu í finnskum
bókmenntum og Jón Thoroddsen hjá okkur.
Myndin gerist um miöja 19. öld og eru
söguhetjumar sjö bræður, þrjózkir og sérvitrir, sem
rata í ýmis ævintýri.
Skipt verður um unglingamynd í dag (þriðjudag)
og sýnd norska kvikmyndin Hættifl þessu! At dere
tor! heitir hún á norsku og fjallar um sannsögulega
atburði er ungur bllþjófur verður fyrir voðaskoti
lögreglumanns. Rekur myndin viðbrögð félaga unga
mannsins og réttarhöld er leiddu til sýknunar lög-
regluþjónsins. Mjög athyglisverð mynd sem á erindi
til ungra og fullorðinna. Þessi mynd er sýnd kl. 7.10,
9.10 bg 11.10 þessa viku.
í Norræna húsinu eru sýndar þrjár barna-
myndir á fimmtudögum og sunnudögum, kl. 5 báða
dagana. Tvær myndanna eru sænskar og nefnist
önnur þeirra Hver á að hugga Knutta? Það er
teiknimynd um Múmínálfana, sem eru svo alkunnir
úr sögum Tove Jansson. Hin sænska myndin heitir
Síðan deyr maflur og fjallar um Nikka litla sem á
gamia ömmu á banabeöi. Hugarheimi bamsins í
sambandi viö dauða ömmunnar er þama listavel
lýst.
Þriðja myndin sem sýnd er í Norræna húsinu er
finnsk teiknimynd sem heitir Galdrakarlinn Kuikka-
Koponen. Hann er töfralæknir og furðufugl og
drífur ýmislegt skemmtiiegt á daga hans.
Tilkyitnsngar
Lífræðifólag
íslands — Erindi
í dag, 10. nóvember, heldur Þorsteinn Tómasson
erindi á vegum Liffræðifélags íslands um
„Aðhæfingu byggs að íslenzkum aðstæðum”.
Eins og kunnugt er var korn ræktað til forna á
íslandi. Þessi ræktun lagðist af á 17. öld, sennilega
vegna versnandi tíöarfars. í upphafi sjöunda ára-
tugarins hófst svo á ný ræktun koms víða um landið
en sú ræktun lagðist af nokkrum ámm siðar vegna
versnanditíðarfars samfara lækkuðu heimsmarkaðs-
verði á komvöru. En nú hafa breyttar verkunar-
aðferðir, hærra verð, fóðurbætisskattur o. fi. á ný
aukið áhuga á komrækt. Ljóst er að kynbætur
byggs eru forsenda þess að hér megi stunda
kornrækt með einhverju öryggi þar sem tiltæk
erlend afbrigði em illa aðhæfð íslenzkum
aðstæðum. í erindinu mun Þorsteinn segja frá þeim
rannsóknum er miða að því að skapa vel aðlagð r
íslenzkt byggafbrigði.
Erindið verður haldið í stofu 101 í Lögbergi og
hefst kl. 20.30. öllum er heimill aðgangur.
íslendingur
léztaf
slysförum
í Banda-
ríkjunum
Ungur íslendinguniét lífið í bif-
reiðarslysi í Bandaríkjunum
aðfaranótt laugardagsins. Slysið
varð í Kaliforníu. Ekki var í
morgun vitað um tildrög þess og
utanríkisráðuneytinu höfðu engar
fréttir borizt af því.