Dagblaðið - 10.11.1981, Qupperneq 28
frjálst, úháð dagblað
c ískalt
Sevenup
hressir betur.
Fjölgað í hæstarétti:
Hæstaréttardómarar
ráðnir um stundarsakir
—samkvæmt nýju f rumvarpi sem lagt verður fram ívikunni
I vikunni verður væntanlega lagt
fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um
hæstarétt þar sem aðstaða réttarins
verður verulega bætt, að sögn
Friðjóns Þórðarsonar dómsmála-
ráðherra. „Bæði er gert ráð fyrir
fjölgun dómara og eins því að
aðstaða réttarins verður bætt á
annan hátt, sem ég vil helzt ekki fara
nánar út í á þessari stundu,” sagði
dómsmálaráðherra í samtali við Dag-
blaðið í morgun.
Friðjón sagði að í nýja fjárlaga-
frumvarpinu væri heimild til að ráða
til hæstaréttar löglærðan aðstoðar-
mann dómara. „Frumvarpið gerir
ráð fyrir að föstum dómurum rétt-
arins verði fjölgað um einn og auk
þess verður í því heimildarákvæði til
að ráða dómara um stundarsakir.
Álagið á hæstarétti er allt of mikið og
úr því verður að bæta,” sagði dóms-
málaráðherra.
Hæstaréttardómarar eru nú
skipaðir ævilangt eins og aðrir
opinberir embættismenn en oft
kemur það fyrir að varamenn hlaupa
í skörð sem myndast, ýmist vegna
forfalla fastra dómara eða þá að þeir
víkja sæti af ýmsum ástæðum. Taldi
Friðjón Þórðarson að heimild til að
setja dómara til skemmri tíma væri i
samaanda.
Nái frumvarpið fram að ganga
verða fljótlega skipaðir tveir nýir
hæstaréttardómarar, því Benedikt
Sigurjónsson hæstaréttardómari
hefur fengið lausn frá störfum fyrir
aldurssakir um áramót. Má búast við
að embætti hans verði auglýst laust
til umsóknar innan tíðar.
-ÓV
ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓV. 1981.
-Blaðamennsvara
verkbanni með
verkfalli 20. nðvember
Allt útlit er nú fyrir að útkoma dag-
blaðanna stöðvist frá og með næstu
helgi þegar verkfall bókagerðarmanna
skellur á. Enn ríkir ekki mikil bjartsýni
um að samningar takist í deilunni fyrir
þann tíma en næsti samningafundur
verður á morgun. Er gert ráð fyrir að
þar með hefjist stíf fundalota fram á
helgina.
Á þriðjudaginn næsta, 17. nóvem-
ber, hafa útgefendur boðað verkbann á
blaðamenn á Dagblaðinu, Morgun-
blaðinu og Vísi auk Vikunnar, sem og á
bókagerðarmenn. Þá samþykkti stjórn,
samninganefnd og trúnaðarmannaráð
Blaðamannafélags íslands í gærkvöld
að boða verkfall á sömu blöðum frá og
með öðrum föstudegi, 20. nóvember.
Verkfall verður ekki boðað hjá blaða-
mönnum Tímans, Þjóðviljans og
Alþýðublaðsins þar sem ekki hefur
verið boðað verkbann á þessum
blöðum. Þau blöð koma þó ekki út
vegna verkfalls og verkbanns bóka-
gerðarmanna — nema samningar hafi
tekizt fyrir þann tíma. -JH.
Liðskönnun til
kvennaframboðs
Á laugardaginn kemur er fyrirhugað
að halda opinn fund í Reykjavík þar
sem kannað verður fylgi hug-
myndarinnar um kvennaframboð. Að
fundinum stendur umræðuhópur
tuttugu eða þrjátíu kvenna, sem undan-
farna mánuði hafa hitzt öðru hverju og
rætt málið frá ýmsum hliðum.
En konur sem þegar hafa komizt til
frama innan stjórnmálaflokka, hvort
sem er til hægri eða vinstri, munu yfir-
leitt mótfallnar kvennaframboði. -JH.
FréttirDBumvopnaflutningaísaliAlþingis:
Ekki við hæfí að Islendingar
ffytji vopn til Líbýu, uppeldis-
stöðvar hryðjuverkamanna
Fréttir Dagblaðsins af vopna-
flutningum með íslenzkum flugvélum
og siglingu íslenzks skips til Líbýu
með farm merktan Líbýuher hafa
vakið mikla athygli. Hafa mál þessi
nú borizt inn í sali Alþingis en Árni
Gunnarsson alþingismaður kvaddi
sér hljóðs utan dagskrár í neðri deild i
gærtil að ræða þau.
Árni hóf mál sitt á því að minnast
á vopnaflutninga með Flugleiðaþot-
um til Saudi-Arabíu en DB skýrði frá
þeim í síðustu viku.
Árni upplýsti að Arnarflug hefði
farið sjö ferðir frá Frakklandi til
Líbýu með farm sem farmskrá segði
vera æfingaskot og efni, sem
sprengihætta stafaði af.
Reifaði Arni viðskipti íslenzkra
flugfélaga við Líbýu og minntist m.a.
á blaðaskrif sem urðu vegna
flutninga Cargolux í fyrra.
Taldi Árni það ekki við hæfi að
íslenzk flugfélög tækju að sér
flutninga sem aðrar þjóðir litu ekki
við, enda væri Libýa uppeldisstöð
hryðjuverkamanna.
Steingrimur Hermannsson
samgönguráðherra kom i pontu á
eftir Árna. Sagði hann m.a. að ekkert
hefði komið fram er benti til ólög-
legra flutninga. Sagðist hann ætla að
láta kanna, hvernig þessum málum
væri háttað hjá öðrum þjóðum.
Sagði ráðherra það spurningu hvort
banna ætti íslenzkum flugvélum að
flytja vopn sem væru verulegur hluti
farms í veröldinni.
Margir tóku til máls í þessari
umræðu. Benedikt Gröndal minntist
á flutninga íslenzk skips frá Ítalíu til
Líbýu en DB skýrði frá þeim í síðustu
viku. Skoraði Benedikt á ráðherra að
beita áhrifum sínum dl að stöðva
flutninga íslenzkra aðila fyrir Líbýu.
-KMU.
■jgjjjjl iyayii js
sz.
a
m
e
lynSNjNgyg
IVIKU HVERRI
Vinningur vikunnar:
Myndsegul-
band f rá
Radíóbúðinni
Vinningur í þessari viku og jafn-
framt sá siöasti i bili er mynd-
segulband frá Radíóbúðinni, að
Skipholti 19, Réykjavlk. 1 vikunni
verður birt, á þessum stað i blað-
inu, spurning tengd smáauglýsing-
um Dagblaðsins. Nafh heppins á-
skrifanda verður síðan birt daginn
eftir l smáauglýsingum og gefst
honum tœkifceri á að svara
spurningunni. Fylgizt vel með; á-
skrifendur. Fyrir ncestu helgi
verður einn ykkar glœsilegu mynd-
segulbandi ríkari.
BÚDARGLUGGINN VANDLEGA SKODADUR
Grannt er skoðað enda öll gát vissari á þessum verðþenslu og I Laugaveginum í gœr. Jólavörurnar fara að koma í gluggana og rétt
gengisfellingartímum. Þessi heiðursmaður skoðaði i búðarglugga á\ erað fylgjast velmeð. DB-myndEinar Ólason.
Blöðin
stöðvast