Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 22.03.1964, Qupperneq 6

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 22.03.1964, Qupperneq 6
,,'Af vatni ertu kominn, að vatni skaltu verða“ — þetta er vist ekki alveg eftir for- múlunni en mjög satt engu að síður. Lífið kviknaði fyrst í höfum í grárri forneskju og alllaf síðan hefur vatn verið frumskilyrði alls lífs. Maður- inn er að 65% vatn. En þvi er ekki deilt jafnt um allan líkamann — eumar frumur eru votari en aðrar. Þannig innihalda heilafrumurnar meira en 80% vatn. Og ef mönnum nú finnst þeir nokk- uð þunnir að fengnum slik- um upplýsingum, þá geta þeir huggað sig við það að til eru kvikindi eem verr eru sett — í marglittum er til dæmis að- eins eitt prósent af föstu efni. Allur þessi vökvi er okkur nauðsynlegur. Ef maðurinn missir meira en fimmtán pró- sent af vatnsþyngd sinni er úti um hann. En ef menn gæta þess að flækjast ekki um eyðimerkur þá þurfa þeir sjaldan að óttast þorsta. 80000 billjónir (milljónir milljóna) lítra af vatni falla á jörðina á ári, og þar eð 10000 lítrar nægja til að halda lífi í einu tonni af mannfólki í heilt ár þá ætti enginn að verða afskiptur. En mennimir lifa ekki af vatni einu saman. Iðnaðurinn þarf tvo lítra af vatni til að búa til einn múrstein, 350 lítra til að framleiða kíló af stáli og eitt kíló af hveiti krefst 4000 lítra. Og minnst af því vatni sem við látum leiða inn í íbúðir okkar hafn- ar í maganum. Mest af því fer í uppþvott, bað og hrein- gerningar, og ekki minna en þriðjungur af því sturtast niður klósettskálar. Við not- um sem sagt töluvert af vatni og sú neyzla vex með hverju ári. Ekki aðeins af því okkur fjölgar heldur og vegna þess að fæstir íbúar jarðarinnar geta skrúfað frá krana þegar þeim þóknast og vanhagar um vatn. Þann munað getur enn í dag aðeins tíundi hver mað- ur leyft sér. Hagnýting vatnsins verður eitt af þýðingarmestu vanda- málum framtíðarinnar og því hefur UNESCO gengizt fyrir víðtæku samstarfi vísinda- manna á öllum vatnsgangi jarðarinnar, á uppgufun og úrkomu og á áhrifum mann- anna á hringrás þess. Vatnsbirgðir jarðar Lítum á valnsbirgðir jarð- arinnar. Langmestur er hlut- ur hins salta sjávarvatn® — 1270 milljónir kúbíkkíló- metra. En kúbíkkílómetri af vatni er sama og billjón lítr- ar — einn með tólf núllum aftan í sér. Þessi tala er al- gjörlega óskiljanleg eing og bezt sést af samanburði — ef allt þetta vatn væri kom- ið í venjulegar vatnsleiðslur myndi pípukerfi ná eins langt og ljósið ferðast á 300 þús- und árum. Um 100 cm. vatns gufa upp af höfunum á ári hverju. Vel þekkjum við hellidembur og það er því eiginlega furðu- legt hve lítið er af vatni í andrúmsloftinu, á hverjum tíma. I dag eru í andrúms- loftinu allt upp í tíu kíló- metra hæð aðeins 12400 kúb- íkkílóm. af vatni — m. ö. o. aðeins hundraðþúsundasti hlutinn af öllum sjó. Ef við kipptum nú í spottann og fengjum allt þeta vatn yfir okkur í einni dembu myndu höfin aðeins hækka um nokkra cm. Hreyfing vatnsins stöðvast aldrei. Það gufar upp, dreifir sér um andrúmsloftið, fossar næstum því án afláts niður á sumum stöðum meðan aðrir lánlausir staðir eni þurrir svo árum skiptir. Venilegur hluti úrkomunnar gufar strax upp aftur, afgangurinn skilar sér aftur til hafs eftir ýmsum leiðum. Það er á leið vatnsins frá hafi til hafs að við höfum tækifæri til að slökkva þorsta okkar. Nokkur hluti vatnsins rennur fram í árnar sem senda 33500 kúbíkkílómetra af vatni aftur til hafs á ári hverju — Amazonfljótið eitt skilar 3100 kúbíkkílómetrum á ári. En í árfarvegunum sjálfum er ekki rúm fyrir mikið vatn — á þessu augna- bliki er varla meira en 1200 kúbíkkílómetrar af vatni í öllum fljótum heimsins. Ef fljótin fengju ekki liðstyrk frá jarðvatni myndu þau hverfa á tveim vikum. Nefnum stöðuvötnin — ferskvötn heimsing geyma 120000 kúbíkkílómetra, fimmti hlutinn af því magni er í einu einasta vatni, í Bækal. Af söltum stöðuvötn- um höfum við ekki meiri gleði en höfunum — þau geyma um það bil 100.000 kúbiikkm. vatns og 96% af þvi er í Kaspíahafi. Miklar birgðir undir Sahara Enn höfum við ekki lokið reikningshaldinu. Nokkra liði eigum við eftir og þótt sumir þeirra virðist smávægilegir eru það einmitt þeir sem mestu máli skipta. Jörðin er aldrei alveg þurr. Ef þú sóp- ar saman kílói af vegarryki 97% getum viðaðeins notað tilsigling 2% eru bundin í ís á Grænlandi og. 114 — SUNNUDAGUR

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.