Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Útgáva
Main publication:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 22.03.1964, Síða 12

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 22.03.1964, Síða 12
Verölaunagetraunin HVER ORTI? Sc ég hendur manna mynda mcginþráð yfir höfin bráðu, þann er lönd og lýði bindur lifandi orði suður og norður. Meira tákn og miklu stærra meginband hefur guðinn dregið, sveiflað og fest með sólarafli, sálu fyllt og guðamáli, — má’i, sem hefur mátt að þola meinin flest, er skyn má greina: íg og hungur, eld og kulda, áþjáu, nauðir, svartadauða. Málið fræga söngs og sögu, sýnu betra guðavíni, — nál, er fyllir svimandi sælu ál og æð, þótt hjartanu blæði. >að hefur voða þungar tíðir þjóðinni verið guðleg móðir, hennar brjóst við hungri og þorsta, hjartaskjól þegar burt var sólin, hennar ijós i lágu hreysi, langra kvelda jólaeldur, fréttaþráður af fjarrum þjóðum, i'rægðargaldur liðinna alda. Stóð það fast þegar storðin hristist, stóð það fast fyrir járni og basti, stóð það fast og fjör og hreysti fékk hvað mest við stríð og hlekki. Lof þitt, Frón, sé Ijóðum skrifað, lof fyrir hrundinn sálardofa, víkingslund og brýnda branda bráðeggjaðra hreystidáða. „Undrast fögur öglis landa eik hví vér erum fölir og bleikir?" — spurði skáld og grafljóð gerði geymileg, meðan byggjast heimar. Iléðinn söng meðan hyrjar tungur lieljarváða stefin kváðu, Þórir Jökuil og þaðan af fleiri þuldu ijóð meðan öxin buldi. Sturla kvað yfir styrjarhjarli, Snorri sjálfur á feigðarþorra. Ljóð frá auði lyfti Lofti, Lilja spratt í villikyljum. Arason mót exi sneri andans sterka vígabrandi, Hallgrimur kvað í heljar nauðum heilaga glóð í freðnar þjóðir. — Hvað er tungan? — Ætli enginn orðin tóm séu lífsins forði. — Hún er list, sem logar af hreysti, lifandi sál i greyptu stáli, andans form í mjúkum myndum, minnissaga farinna daga, flaumar iífs í farveg komnir fleygrar ahlar, er striki halda. Tungan geymir i tímans straumi trú og vonir landsins sona, dauðastunur og dýpstu raunir, darraðarljóð frá elztu þjóðum, heiftareim og ástarbrima, örlagahljóm og refsidóma, land og stund í lifandj myndum ljóði vígðum — geymir í sjóði. Tungan mögnuð sögu og signing söngvaljóða kallast óður, því eru ungir óðmæringar aðalsblóm og þjóðarsómi. — Heyrið skáld & Fimbulfoldu: frelsið deyr ef vantar heLsi. Væri eigi i lofi iygi landsins gæða, mættuð þér hræðastl Þakkið mein og meginraunir mammonsríkis Ameríku. Þakkið slyppir kaupin kröppu, keppni er betri en stundarheppni. Hvað er frelsi? Hjóm og þvaður, hjörinn þinn nema sigurinn vinni. Þrælajörð þér veröldin verður verk þín sjálfs nema geri þig frjálsan. Hver er madurinn? ANATOLE FRANCE: Rmm fograr konur frá Picardie, Tourraine, Lyon og París Dag nokkurn mætti kapút- sínamunkurinn, bróðir Jean Chavaray, mínum góða læri- föður. herra Caignard ábóta, í kiaustri Hinna Saklausu, og tók hann tali «m bróður Oli- vier Maillard, hvers prédik- anir mjög uppbyggilegar hann hafðí verið að lesa. í þessum ræðum eru ágæt- ir staðir, sagði kapútsíninn. Nefnum til dæmis frásögnina um meglarann og konurnar 120 - SUNNUDAGUR fimm. . . Þér skiljið auðvitað að bróðir Olivier, sem uppi var á valdatímum Lúðvíks ellefta kallar þennan kven- mann nokkuð öðru nafni, þar eð málfar hans var ekki laust við hrjúfleika aldarinnar. En okkar öld krefst virðulegri talsmáta og því hef ég valið þetta orð. Þér viljið, sagði minn góði læiifaðir, láta það tákna það þá elskulegu elskulegu og skylduræknu konu sem hjálp- ar konum og körlum að ná samfundum til ásta? Á latínu er hún kölluð ,,lena, conciliat- rix, internuntia libidinum" sem þýðir „sendifrú fýsnar- innar". Þessar verðugu konur auðsýna mönnum marga á- gæta þjónustu, en taka auð- vitað peninga fyrir og þvi hljótum við að efast um hreinleika tilgangs þeirra. Því skulum við, faðir sæll, kalla þessa persónu milligöngu- konu. Þetta orð er ekki laust við fágun. Gjarna, herra ábóti, sam- þykkti bróðir Jean Chavary. Eg vildi aðeins minna á að það var bróðir Olivier en ekki ég sem lét þessarar persónu getið. En sam sagt — ein slík milligöngukona, sem bjó á Pont des Tournelles, fékk dag nokkurn heimsókn af kaval- éra sem fékk henni hring í hendur, og sagði: Þessi hringur er úr skíra gulli og í hann er greyptul bleikur rúbínsteinn. Ef þér þekkið heiðvirðar konur, far- ið til hinnar fegurstu þeirra og segið að hún eignist þenn- ____, Framhald á bls. 118. ;

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.