Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1971, Blaðsíða 5
Þá taldi hann, að við þyrftum að vera vel á verði gagnvart
ýmsum verktökum úr öðrum fjórðungum, sem leituðu eftir
verkefnum hér á sambandssvæðinu.
Sigurður Björnsson ræddi um sameiningu ræktunarsam-
bandanna á sínum tíma og reksturinn síðan. Lét hann í ljós
traust á framkvæmdastjóranum og R.S.A.
Matthías Eggertsson benti á ýmis skipulagsatriði varðandi
rekstur vélanna. Taldi hann æskilegt, að bændum væri gef-
inn kostur á að greiða vinnu að verki loknu. Einnig benti
hann á, að ekki væri samin fjárhagsáætlun fyrir ræktunar-
sambandið. Fleiri ræddu þessi atriði.
Snæþór Sigurbjörnsson ræddi um verkstæðismálið og þá
knýjandi nauðsyn að koma upp verkstæði fyrir starfsemi
R.SA.
Sigfús Þorsteinsson svaraði fyrirspurnum fundarmanna.
Sigurður Guttormsson ræddi um vinnupantanir.
Sigurður Lárusson hvatti fundarmenn til að láta í ljós álit
sitt á verkstæðismálinu. Óskir komu fram frá nokkrum fund-
armönnum um nánari skýringar varðandi verkstæðismálið
og leystu formaður og framkvæmdastjóri úr því.
Reikningar R.S.A. voru nú bornir upp til samþykktar og
samþykktir samhljóða.
Fjórhagsáætlun 1971
Formaður, Snæþór Sigurbjörnsson, las upp tillögur stjórn-
arinnar að fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár og tillögur
stjórnarinnar um árgjaldahækkun.
Nokkrar breytingartillögur komu fram varðandi árgjalda-
hækkun.
Tillögunum var síðan vísað til fjárhagsnefndar.
Nefndaskipun
Stjórnin lagði til, að þannig yrði skipað í starfsnefndir
fundarins og var það samþykkt.
Fjárhagsnefnd: Stefán Sigurðsson, Sigurður Guttormsson,
7