Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1971, Síða 26
Yfirlitsskýrsla um jarðabætur í Múlasýslum gerðar árið
1970.
Norður-Múlasýsla Suður-Múlasýsla
1970 1971 1970 1971
Endurvinnsla túna ha.......... 32,1 (28,6) 41,7 (29,0)
Nýræktir ha..................... 243,0 (178,6) 128,4 (143,7)
Frumvinnsla ha ................. 188,9 (106,0) 75,1 (65,7)
Grjótnám m3 ...................... 135 338
Girðingar km................... 43.708 30.520
Áburðargeymslur m-i............. 1.360 843
Þurrheyshlöður mS .............. 1.107 501
Votheyshlöður m3 ................. 601 59
Súgþurrkunarkerfi m2 ............. 588 61
Vélgrafnir skurðir m:i ....... 169.865 (142.302) 164.696 (77.737)
Plógræsi km.................. 42,8
Búfiórrækt
Sauðfjárrœkt. Við höfum eins og að undanförnu lagt all-
mikla vinnu í ýmiskonar aðstoð við sauðfjárræktarbændur.
Hefur hún nær alveg verið bundin við þá, sem eru félags-
menn í sauðfjárræktarfélögum. Aðstoð þessari má skipta í
þrjá þætti.
a. Kjötrannsóknir vegna afkvæmarannsókna á hrútum. Slík-
ar afkvæmarannsóknir voru gerðar í 2 félögum, Breiðdal
og Jökulsárhlíð. Komum við til aðstoðar á báðum þessum
stöðum, með því að mæla og meta föll lamba í sláturhúsi
undan þeim hrútum, sem verið var að prófa og reiknuðum
síðan út mismun á eiginleikum hópanna.
b. Fyrri hluta vetrar heimsóttum við félagsmenn allra félag-
anna, sátum við fundi í félögunum og skoðuðum sauðfjár-
bú félagsmanna.
c. Við gerðum upp afurðaskýrslur Sf. Borgarfjarðar og reikn-
uðum út kynbótagildi hverrar kindar eftir þeim upplýs-
ingum, sem fyrir lágu. Skýrslur Sf. Vopnafjarðar gerðum
við upp á sama hátt með nokkurri hjálp heimamanna. Þá
veittum við Sf. Hjalta aðstoð við uppgjör á sínum skýrsl-
um, sem að mestu voru þó unnar heima.
28