Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1962, Blaðsíða 30

Veðráttan - 02.12.1962, Blaðsíða 30
Ársyfirlit VEÐRÁTTAN 1962 ÁRSSKÝRSLA Starfslið Veðurstofunnar. Jóna Sigfúsdóttir aðstoðarmaður í veðurfarsdeild andaðist 27. desember. Hún hafði verið starfsmaður Veðurstofunnar í ellefu ár og áunnið sér traust og vinsældir á stofnun- inni með samvizkusemi í starfi og prúðmennsku í framgöngu. Reykjavíkurflugvöllur: Salóme Herdís Björnsdóttir var ráðin aðstoðarmaður í maí. Keflavíkurflugvöllur: Eyjólfur Þorbjörnsson, cand. mag., var ráðinn veðurfræð- ingur í ársbyrjun. Hann hafði frí frá störfum þrjá síðustu mánuði ársins. Aðstoðar- mennirnir Jón Ferdínandsson og Sæþór Skarphéðinsson hættu í aprílmánuði, en Sigur- jón Magnússon var ráðinn aðstoðarmaður í marz. Jaröeölisfrœðideild: Eysteinn Tryggvason, deildarstjóri, hætti störfum í september, en hann hafði fengið stöðu við háskóla í Bandaríkjunum. Ragnar Stefánsson, fil., cand., tók við störfum Eysteins. Áhaldadeild: Þorsteinn Ársælsson, áhaldasmiður, hætti störfum í lok nóvember, og kom ekki maður í hans stað á árinu. Engar breytingar urðu á starfsliði skrifstofunnar. Bóka- og skjálasafn: Svanlaug Baldursdóttir var ráðin til starfa við bóka- og skjala- safn mánuðina júni—desember og vann þar einnig stuttan tíma fyrri hluta ársins. Veöurfræöinemarnir Ásgeir Sigurðsson, Markús Einarsson og Þór Jakobsson unnu á stofnuninni í sumarleyfum sínum, Ásgeir á Keflavíkurflugvelli, Markús í áhaldadeild og Þór í veðurfarsdeild. Stúdentarnir Helgi Björnsson og Þorleifur Pálsson unnu skamman tíma í jarðeðlis- fræðideild. Veðurstöðvar. Athugunarmenn: Þórður Þórðarson hætti athugunum á Suðureyri í janúar vegna veikinda og hafði þá starfað af trúmennsku fyrir Veðurstofuna í 15 ár. Við starfinu tók Þórður Maríasson. Jónas Pétursson, tilraunastjóri, hætti athugunum á Skriðuklaustri snemma á árinu eftir 10 ára ágætt starf. Jóhannes Geir Gíslason og Haraldur Antonsson önnuðust athug- anir á Skriðuklaustri fram í desember, en þá tók við Matthías Eggertsson, tilraunastjóri. Valgarð Blöndal hætti athugunum á Sauðárkróki í maí, og við þeim tók þá Jón Friðbjörnsson. Hann hætti eftir skamman tíma, og féllu þá niður athuganir á staðnum fram í ágústbyrjun, en þá tók örn Sigurðsson við starfinu. Henríetta Berndsen hætti athugunum í Búðardal í maí, og fékkst ekki annar at- hugunarmaður í þorpinu fyrr en í nóvember. Þá tók Vívi Kristóbertsdóttir við starfinu. Kjartan örvar, stöðvarstjóri í Elliðaárstöð, lét af störfum fyrir aldurs sakir í júní og hafði þá verið traustur athugunarmaður í 10 ár. Við störfum hans tók Jón Ásgeirsson. Sigurður Elíasson, tilraunastjóri á Reykhólum, hætti í september. Hann hafði verið mjög áhugasamur athugunarmaður frá því að athuganir voru teknar upp á Reykhólum 1948. Við athugunarstarfinu tók Sigurgeir E. Ágústsson. Arnþór Ágústsson, bóndi í Bjólu, hætti úrkomumælingum í október, en við þeim tók Sæmundur B. Ágústsson. Á þessu ári hefur Ólafur Sveinsson, bóndi á Lambavatni, gert þar athuganir í 40 ár, og vill Veðurstofan þakka honum óvenju langt og mjög gott samstarf. Þá vill Veður- stofan einnig þakka sérstaklega þeim Einari Gestssyni, bónda á Hæli, og Oddnýju S. Wiium, húsfreyju í Fagradal, 30 ára störf. Nýjar stöövar: Veðurathuganir hófust í Papey í september, en þar hafði mæla- skýli og úrkomumælir verið sett upp í júlí. Athuganir eru gerðar kl. 8, 17 og 20 og skeyti send kl. 8 og 17. Athugunarmaður er Gústaf Gíslason, bóndi. Athuganir voru áður gerðar um mjög langan tíma í Papey eða árin 1874—1949. (126)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.