Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1962, Blaðsíða 31

Veðráttan - 02.12.1962, Blaðsíða 31
1962 VEÐRÁTTAN Ársyfirlit 1 Garði II i Kelduhverfi hófust athuganir í október. Athugað er kl. 8, 14 og 20 og mánaðarskýrsla send Veðurstofunni. Mælaskýli og úrkomumælir voru sett upp á stöð- inni. Athugunarmaður er Sigurður Jónsson, bóndi. Á Vagnsstöðum í Suðursveit hófust úrkomumælingar i júlí og í Skógargerði við Húsavík í september. Á Vagnsstöðum athugar Gunnar Gíslason, bóndi, en í Skógargerði Helgi Jónsson, bóndi. Athuganir utan fastra veSurstöOva: Athuganir voru gerðar í Hvitárnesi við Hvit- árvatn í ágúst og sólskinsmælingar á Hveravöllum, en á báðum stöðunum höfðu verið sett upp mælaskýli og úrkomumælar.. Á Sámsstöðum í Þjórsárdal var settur upp úrkomumælir í júní, og þar voru gerðar athuganir flesta virka daga frá 13. júní til 28. september. Hitamælingar voru gerðar með sveifarmæli. Á Korpúlfsstöðum i Mosfellssveit var mælaskýli og regnmælir sett upp í apríl og nokkrar athuganir gerðar á vegum Atvinnudeildar Háskólans um sumarið. Nýtt mœlaskýli og úrkomumælir voru sett upp upp á Hamraendum í maí. Öll ný mœlaslcýli, sem sett eru upp, eru sérstæð og allir úrkomumælar með hlíf. EftirlitsferÖir: Eftirtaldar athugunarstöðvar voru heimsóttar á árinu: Akureyri, Arnarstapi, Búðardalur, Dalatangi, Djúpivogur, Egilsstaðir, Fagridalur, Flatey, Garð- ur, Grindavik, Gunnhildargerði, Hallormsstaður, Haukatunga, Hellissandur, Hof, Hól- ar í Hjaltadal, Hólar í Hornafirði, Húsavík, Hveravellir, Hvítárnes, Hæll, Höskuldarnes, Kambanes, Korpúlfsstaðir, Ljósafoss, Mánárbakki, Mýri, Möðrudalur, Papey, Raufar- höfn, Reykjanesviti, Sámsstaðir í Fljótshlíð, Sámsstaðir í Þjórsárdal, Sandhaugar, Sand- ur, Sauðárkrókur, Seyðisfjörður, Skógargerði við Húsavík, Skoruvík, Skriðuklaustur, Stykkishólmur, Teigarhorn, Vagnsstaðir, Vegatunga og Þorvaldsstaðir. Athuganir á skipum: Á eftirtöldum skipum voru gerðar veðurathuganir og skeyti send fyrir atbeina Veðurstofunnar: Ms. Arnarfelli, Brúarfossi, Dettifossi, Dísarfossi, Goðafossi, Gullfossi, Hamrafelli, Fjallfossi, Kötlu, Lagarfossi, Reykjafoss, Tröllafossi, Tungufossi og vs. Ægi. Útgáfustarfsemi og útvarp veðurfregna. Prentuð voru mánaðaryfirlit Veðráttunnar frá apríl 1961 til júní 1962 ásamt árs- yfirliti 1961 og gefnar út bráðabirgða jarðskjálftaskýrslur fyrir mánuðina nóvember 1961 til ágúst 1962. Útvarp veðurfregna var óbreytt frá því sem tilgreint er í ársyfirliti 1961. Veðurspár voru gerðar fyrir Austurdjúp (66° N og suður undir Færeyjar, 12°-3° W) frá 17. ágúst til 21. september. Mánaðartöflur Veðráttunnar. Tvær nýjar stöðvar bætast við á árinu og fara hitastuðlar þeirra hér á eftir í hundraðshlutum úr stigum: Ci = tm tg + t20 2 ÖAoa C°). Jan. Febr. Marz Apr. Maí Júní Júlí Ágúst Sept. Okt. Nóv. Des. Garður II 05 15 40 25 -05 -15 -15 15 35 35 10 00 Papey 00 20 30 15 -05 -10 -05 00 20 25 10 00 Ýmislegt. Iiúsnœöismál: Veðurstofan á Reykjavíkurflugvelli flutti í nýjan flugturn á vellin- um í febrúarlok. Húsnæðið, sem áður hafði verið notað, var orðið með öllu óhæft. Nýja húsnæðið, sem er eign Flugmálastjórnarinnar, er vandað, en of lítið og útsýni mjög tak- markað. Er hér um bráðabirgðalausn að ræða. Adda Bára Sigfúsdótir, Flosi Sigurðsson og Páll Bergþórsson, sem veðurstofustjóri hafði falið að gera frumtillögur um veðurstofuhús, skiluðu veðurstofustjóra snemma á (127)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.