Veðráttan - 02.12.1962, Page 32
Ársyfirlit
VEÐRÁTTAN
1962
árinu itarlegri greinargerð og áætlun um byggingu fyrir Veðurstofu Islands. Að fengn-
um lofsamlegum ummælum og ýmsum leiðbeiningum húsameistara rikisins um þessa
áætlun var hún send Samgöngumálaráðuneytinu, en það sótti með bréfi, dags. 4. maí,
til borgarráðs Reykjavíkurborgar um lóð fyrir bygginguna á austanverðri öskjuhlið. Með
bréfi borgarverkfræðings, dags. 30. okt., var ráðuneytinu og Veðurstofunni gefið vilyrði
um lóð á framangreindum stað. Veðurstofan sótti þá þegar til fjárveitinganefndar Al-
þingis um nokkurt fé til þess að geta hafið framkvæmdir við byggingu á árinu 1963.
Ný bifreiö var keypt í júní og tekin í notkun fyrir eldri bifreið, sem seld var.
Alþjóðasamstarf.
Ráðstefna norrænna veðurstofustjóra var haldin í Reykjavík dagana 23.—29. ágúst.
Ráðstefnur þessar eru jafnan haldnar annað hvert ár. Var þetta 13. ráðstefnan og sú önn-
ur, sem haldin er á íslandi. Gerðar voru 17 samþykktir um sameiginleg mál stofnananna,
svo sem háloftaathuganir, veðurfarsrannsóknir, veðurskeytasendingar, flugveðurþjón-
ustu, sjálfvirkar veðurstöðvar og veðurspár fyrir lengri tíma en tvo sólarhringa.
Dagana 3.—6. desember var i Helsinki haldinn fundur deildarstjóra veðurfarsdeilda
veðurstofanna á Norðurlöndum. Var þar fjallað um veðurfarskort fyrir Norðurlönd og
ýmis önnur sameiginleg mál deildanna. Adda Bára Sigfúsdóttir var fulltrúi Veðurstofu
Islands.
NámsferÖir veöurfrœöinga: Þrír veðurfræðingar fengu á árinu styrk frá Sameinuðu
Þjóðunum til námsdvalar erlendis. Adda Bára Sigfúsdóttir var tvo mánuði í Bretlandi,
lengst af við nám í tölfræði (statistik) í skóla brezku veðurstofunnar í Stanmore, en
einnig kynnti hún sér starfsemi veðurfarsdeildarinnar í Bracknell. Flosi Hrafn Sigurðs-
son var einnig tvo mánuði í Bretlandi, lengst af í aðalstöðvum veðurstofunnar í Brack-
nell. Kynnti hann sér veðurathugunartæki og starfsemi áhaldadeildar. Ferðaðist hann
nokkuð um Suður-England, heimsótti veðurstöðvar og fyrirtæki, sem smíða veðurathug-
unaráhöld. Þórir Sigurðsson dvaldi þrjá mánuði i Noregi. Hann tók þátt í námskeiði
í notkun rafeindareiknivéla og kynnti sér notkun slíkra véla á veðurstofunni í Osló.
Einnig kynnti hann sér útgáfu- og rannsóknarstarfsemi norsku Veðurstofunnar bæði i
Osló og Bergen.
Borgþór H. Jónsson, veðurfræðingur, sótti 10 daga námskeið um ýmis veðurfræði-
leg efni, sem British Council gekkst fyrir í Bretlandi í aprílmánuði.
Hlynur Sigtryggsson, deildarstjóri á Keflavíkurflugvelli, sótti námskeið, sem Al-
þjóðaveðurfræðistofnunin hélt í París i október og fjallaði það um tölfræðilegar veður-
spár. —
Annar alþjóölegi veðurfræðidagurinn var haldinn hátíðlegur 23. marz og helgaður
baráttunni gegn hungri. Veðurstofustjóri flutti erindi í útvarp og dagblöðum voru sendar
greinar í tilefni dagsins.
Viðuuki. Supplement.
Mjólkárorkuver í desember: Úrkoma 162.2 mm, mest 45.0 mm þ. 20. Fjöldi daga
með úrkomu, 20 með snjókomu 10 með hagli 1.
ÆÖey. Mikið tjón varð í æðarvarpi 14.—16. júní, og lömb drápust. Einnig varð
lambatjón á öðrum bæjum í grenndinni.
Leiðréttingar. Corrections.
Ársyfirlit 1961, bls. 126.
1962, Maí bls. 35.
„ Maí bls. 39.
,, Júni bls. 43.
,, Júlí bls. 53.
,, September bls. 69.
Kvísker: Noröurbreidd 63° 59' (65° 39').
Stykkishólmur: Sjávarhiti 5.4 (-), vik 0.3 (-).
Hœll: Fjöldi daga, snjókoma 1 (2).
Stykkishóimur: Sjávarhiti - (5.4), vik - (-2.7).
Staðarhóll: Fjöldi daga, snjókoma ,, (D-
Galtarviti: Fjöldi daga, snjókoma 3 (13).
Tölumar í svigum eru þær, sem skakkt hafa verið prentaðar.
(128)