Veðráttan - 02.12.1992, Blaðsíða 39
1992
VEÐRÁTTAN
Ársyfirlit
Alþjóðasamstarf.
Fram var haldið þátttöku í EGOS-samstarfsráði Evrópuþjóða um rekstur veöurdufla á
Norður-Atlantshafi. Voru 14 EGOS rekdufl til veðurathugana prófuð í tækni- og
veöurathuganadeild og sjósett frá íslenskum skipum á leið til Bandaríkja N-Ameríku. Auk
þess var sjósett eitt rekdufl í eigu frönsku veðurstofunnar, þannig aö alls voru á árinu sjósett
15 veðurdufl frá íslenskum skipum.
Fram var haldið samstarfi við prófessor J. Prospero frá Háskólanum í Miami í
Bandaríkjunum um mælingar á brennisteinssamböndum og ýmsum snefilefnum í
andrúmslofti á Stórhöfða í Vestmannaeyjum. Fráhaustinu 1992voruloftmengunar-mælingar
þar auknar til muna í samstarfi við bandarískar stofnanir sem leggja til mælitæki og annast
efnagreiningar. Þrír bandarískir sérfræöingar komu í þessu sambandi til íslands í september,
Samuel Oltmans og Lee Waterman frá NOAA og Bruce Dodderidge frá Háskólanum í
Maryland. í samstarfi við NOAA er safnað loftsýnum eihu sinni í viku til ákvörðunar á
magni koltvísýrings (C02) og framkvæmdar símælingar á ósoni (03) í andrúmslofti viö
yfirborð. í samstarfi við Háskólann í Maryland eru hins vegar geröar símælingar á kolsýrlingi
(CO) í yfirboröslofti. Óskar Sigurðsson vitavörður annast sýnatöku og gæslu mælitækja á
Stórhöfða, en tækni- og veðurathuganadeild hefur umsjón með starfseminni. í Reykjavík
var fram haldið símælingum á ósoni við yfirborð í samvinnu við S. Oltmans frá NOAA, en
þær hófust í október 1991. I apríl hófst í Reykjavík tveggja ára samstarf við Háskólann í
Þessaloniki í Grikklandi um mælingar á heildarmagni ósons og efnasambandanna S02 og
N02 upp í gegnum lofthjúpinn með Brewer litrófsmæli, en mælitækið er einnig notaö til aö
mæla geislaorku á útfjólubláu ljósi (UV-B).
Mánuðina janúar til mars, og aftur í desember, var haldið áfram mælingum á
Keflavíkurflugvelli á ósoni og ýmsum snefilefnum í andrúmsloftinu. Mælingar þessar hófust
í nóvember 1991. Starfsmenn Veöurstofunnar annast mælingarnar, en þær eru geröar í
samvinnu við rannsóknaraðila frá Grikklandi, Spáni og Belgíu.
í samvinnu við aðildarþjóðir HIRLAM, um tölvuspár á takmörkuðum svæðum, voru
gerðar tilraunir til að spá einstökum óveörum, þ.á.m. ofviðrinu 3. febrúar 1991. Ráðgjafi
var einkum Jón Egill Kristjánsson, sem dvaldist viö rannsóknir í Los Alamos í
Bandaríkjunum.
Páll Bergþórsson sat í janúar fund norrænna veðurstofustjóra í Kaupmannahöfn um
fyrirhuguö hagsmunasamtök veðurstofa í Evrópu. í maí sat hann fund veðurstofustjóra V-
Evrópu í Bergen. í júní og desember sótti hann fundi Evrópuveöurstofunnar í Reading, og
í ágúst var hann á fundi norrænna veöurstofustjóra í Finnlandi.
Flosi Hrafn Sigurösson sat fundi stjómar og tækninefnda EGOS, samstarfsráðs Evrópuríkja
um veðurdufl, 11.-12. júní í Reykjavík og 15.-16. desember í Genf. Sem fyrr var hann
varaformaður EGOS og gegndi formennsku tækninefndar. Þá sótti hann fund
samvinnunefndar um athugunarkerfi á N-Atlantshafi (CGC) í Genf 26.-28. ágúst og fund
alþjóölegs samstarfsráðs um veðurdufl (DBCP) sem haldinn var í París 14.-17. október.
Ásdís Auðunsdóttir og Einar Sveinbjörnsson fóru á 18. norræna veðurfræðingafundinn í
Hirtshals í júní, og þar flutti Einar erindi.
Borgþór H. Jónsson sat í nóvember ráöstefnu í Portúgal um endurskipulagningu
fjarskipta-, umferðarstjórnunar- og veðurþjónustu við millilandaflug á N-Atlantshafi.
Borgþór var fundarstjóri og formaður veðurþjónustunefndar.
(135)