Vísbending - 12.12.1984, Side 3
VÍSBENDING
3
Verðbólga, viðskiptajöfnuður og raunvextir
— mlnnkandl mismunur á EBE-löndunum
Viðskiptajöfnuður er I % af þjóðarframleiðslu
1979 19B0 1981 1982 1983 1984
Belgía
verðbólga 4,5 6,6 7,6 8,7 7,5 6,5
vlðskiptajöfnuður -2,7 -4,3 -4,2 -3,2 -1,9 -0,1
raunvextir 1,4 3,6 2,7 3,9 1,7 6,0
Danmörk
verðbólga 9,6 12,3 11,7 10,1 6,9 6,5
viðsklptajöfnuður -4,6 -3,6 -3,0 -4,0 -2,5 -2,9
raunvextir 0,3 6,2 4,7 9,9 6,2 6,8
Frakkland verðbólga 10,7 13,8 13,4 10,8 9,6 7,0
viðskiptajöfnuður 0,9 -0,6 -0,8 -2,2 -0,9 -0,5
raunvextir -4,3 -0,8 4,5 4,9 5,1 5,8
Holland
verðbólga 4,2 6,5 6,7 5,9 2,8 3,2
viðskiptajöfnuður 0,4 -1,7 2,2 2,8 2,7 2,7
raunvextir 2,5 3,4 5,1 5,3 2,5 3,4
frland
verðbólga 13,2 18,2 20,4 17,1 10,5 9,0
viðskiptajöfnuður -11,3 -9,6 -12,6 -8,5 -2,5 -2,3
raunvextir -4,7 -5,0 -3,6 3,2 1,1 6,8
Italla
verðbólga 14,7 21,2 12,8 16,5 14,7 11,0
viðskiptajöfnuður -1,7 -2,4 -2,3 -1,6 -0,1 -0,2
raunvextir -9,3 4,4 3,1 5,2 5,5 5,9
Þýskaland verðbólga 4,1 5,5 5,9 5,3 3,3 2,5
viðskiptajöfnuður -0,8 -1,9 -1,0 0,5 0,5 0,5
raunvextir 2,2 3,6 6,8 4,3 3,3 2,8
.Sterku löndln"
verðbólga 4,1 5,7 6,0 5,4 3,2 2,6
viðskiptajöfnuður -0,6 -1,9 -0,5 0,9 0,9 1,0
raunvextir 1,6 3,6 6,5 5,3 3,2 2,9
,Velku löndin"
verðbólga 11,3 15,3 16,0 14,1 11,0 8,3
vlðsklptajöfnuður 0,7 -1,8 -1,9 -2,3 -1,0 -0,4
raunvextir -5,1 1,6 3,8 5,1 5,9 5,9
Mismunur verðbólga 7,2 9,6 10,0 8,7 7,8 5,7
vlðskiptajöfnuður 0,1 0,1 1,4 3,2 1,9 1,4
raunvextir 3,5 2,0 2,7 0,2 -2,7 -3,0
' Áœtlun
Heimild: International Treasury Management, Euromoney
Taflan sýnir árangur hagstjómar í
fáeinum löndum EBE á mælikvarða
verðbólgu, viðskiptajöfnuðar og vaxta
umfram verðbólgu. í töflunni ereinnig
gerður greinarmunur á „sterku
löndunum”og „veiku löndunum”.
„Sterku löndin” teljast hér Pýskaland
og Holland en hin löndin í töflunni
teljast í hópi „veiku landanna”. Upp-
lýsingarnar koma fram í grein T.J.
O’Neill, hagfræðingi hjá International
Treasury Management, sem nýlega
birtist í Euromoney. Þar eru löndin í
EMS flokkuð í hin „sterku“ og
„veiku“ eftir því hvernig gengi gjald-
miðils þeirra hefur breyst frá stofnun
EMS. Til að reikna meðaltöl verð-
bólgu, viðskiptajafnaðar og vaxta í
hvorum flokki voru tölur frá hverju
landi vegnar saman eftir stærð hvers
þjóðarbús með 1981 vogum frá
OECD. Mismuninum á milli „sterku”
og „veiku“ landanna er ætlað að sýna
árangurinn í samræmingu í hagstjórn í
EMS-löndunum.
Vegna stærðarinnar vega Frakkland
og Þýskaland langþyngst. í báðum er
árangur af þjóðarbúskapnum talinn
hafa batnað á þennan mælikvarða og
mismunurinn á milli landanna hefur
farið minnkandi, einkum síðan franska
stjórnin sneri við blaðinu og beitti sér
fyrir hörðu aðhaldi í efnahagsmálum á
fyrri hluta árs 1982. Vegna hrað-
minnkandi verðbólgu í Danmörku,
írlandi, ftalíu og Belgíu hefur mun-
urinn í verðbólgu á milli landanna
minnkað verulega síðan 1981, þ.e. úr
10% í u.þ.b. 5,7% samkvæmt áætlun
fyrir árið 1984. Munur á jöfnuði í
viðskiptum við útlönd hefur einnig
minrikað úr3,2% afVÞFáárinu 1982 í
1,4% samkvæmt áætlun fyrir árið
1984.
Ef til vill kemur mismunurinn á milli
„sterku“ og „veiku“ landanna á
þessum árum skýrast í ljós á mæli-
kvarða raunvaxta. Raunvextir hafa
breyst frá árinu 1979 frá því að
vera 3,5% hærri í Þýskalandi og
Hollandi heldur en í hinum löndunum í
töflunni í að vera 3,0% lægri í „sterku"
löndunum á árinu 1984 samkvæmt
áætlun. Þessi þróun í raunvöxtum ber
vott um viðleitni stjórnvalda í „veiku“
löndunum til að ná betri jöfnuði við
útlönd, en háir raunvextir heima fyrir
stuðla að sparnaði og dregur úr á-
hættunni að fjármagn leiti úr landi þar
Framhald á bls 6.