Frjáls verslun - 01.08.1940, Blaðsíða 1
8. TBL.
2. ÁRG.
19 4 0
VERZLUNARMANNAFELAG
REYKJAVSKUR
FRJALS
VERZLUN
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR heíur undantarið
barist tyrir því að tá laun verzlunarfólks bætt og hafa nú tekist samningar
við flesta atvinnurekendur. Hefðu ekki verið til samtök meðal verzlunar-
manna er hætt við að útkoman heíði orðið sú, að mjög hetðu kjarabætur
starfsfólks orðið misjafnar en löggjafarvaldið hefir ekki fengist til þecs að
bæta kjör starísmanna við verzlanir og á skrifstofum á sama hátt og laun
opinberra starfsmanna og verzlunarmanna.
Verzlunarmannatélagið hefir með höndum ýms mál er verzlunarstétt-
ina varðar miklu og miða að þvi að efla samtök hennar.
Eitt stærsta málið er húsnæðismál télagsins, sem virðist hata verið
ráðið vel til lykta og eru nú að verða tilbúin hin vistlegustu húsakynni
fyrir félagið.
Pað þarf að keppa að þvi, að hver einasti verzlunarmaður sé félagi
i V. R. Bráðum nálgast sá tími að félagið minnist fimtugsafmælis síns og
ætti þá að vera búið að safna öllum verzlunarmönnum undir merki félags-
ins, og þó helst fyr.
Félagar i V. R. ættu að gera það sem unt er til þess að útvega
nýja meðlimi, því margir eru það enn innan verslunarstétfarinnar, sem
ekki eru félagar en ættu að verða það, bæði sjálfra sín vegna og félagsins.
Máttur samtakanna er mikill.
Verzlunarmenn geta ekki fremur en aðrar stéttarheildir verið án þess
styrks, sem öflugt félag veitir.