Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1940, Blaðsíða 17

Frjáls verslun - 01.08.1940, Blaðsíða 17
Þorlákur: ,,Ég er mikið vel ánægður með allar málalyktir á Alþingi, jafnvel þótt ég sé á þeirri meiningu, að þetta bragð1) verði til þess að skilja oss við Dani (ultimately), but never mind, það er einmitt það, sem ég fyrir mitt leyti óska eftir“. Þá er viðfangsefnið, sem hann með Bret- landsveru sinni er að búa sig undir að fást við. Á það hefir þegar verið drepið. Það er að svifta af verzluninni einokunarbragnum gamla, sem hvoi'ki konungsúrskurðinum frá 18. ágúst 1786, né lögunum frá 15. apríl 1854 um siglingar og verzlun á íslandi hafði tekizt að vinna bug á, eins og getið hefir verið hér áður. Ástandinu lýsir hann í „Mínir vinir“ (bls. 15—22). Danskir kaupmenn, eða íslenzk- ir kaupmenn, sem taka sér hina erlendu til fyrirmyndar, líta á hina íslenzku skiptavini sem ,,dónana“, og telja að kaupmenn „ættu þá með húð og hári“, eins og hann segir í vöru- lista sínum 1887. Búðarlokurnar, danskar og íslenzkar, semdu sig að háttum húsbændanna og hundsuðu almenning. 1 lýsingunni í „Mínir vinir“ kemur íslenzkur bóndi til Svendsens k.aup\manns, sem líka er Islendingur. Hann spyr um inneign sína, sem reynist 100 kr„ og vill síðan taka út 20 pund af kaffi, 20 pund af sykri og 20 krónur í peningum, en kaupmaður- inn segir, að hann fái ekki nema 10 pund af kaffi, 5 pund af sykri og enga peninga. Ofan á þessa ófremd bætist, eins og Þorlákur orðar það í vörulistanum 1887, að „alþýðá hefði haldið áfram að stara á þá (þ. e. grósserana) eins og æðri verur“. Þá sé enn það að verzlun- inni, að engin tilbreytni sé í vörutegundum; sömu vörurnar flytjist ár eftir ár og sé slengt saman við vöruleyfarnar frá fyrra ári, sem þó ætti að selja á uppboði. Enn sé það, að vörurn- ar séu vondar og oft úrgangsvöruleifar búð- anna í Kaupmannahöfn. Hvað hafi og kaup- mennirnir lagt af mörkum til landsþarfa, spyr Þorlákur, og hann svarar því víða, fyrst og fremst í bréfi til Jóns Sigurðssonar 7. nóv. 1872. Hann segir þar: „Er nokkurs staðar á guðs grænni jörðu eins úrættuð kaupmannastétt eins og hjá oss heima. Ég tala ekki um danska kaupmenn ... Má ég spyrja, hver íslenzkur kaupmaður hefir gefið ærlega gjöf til Bók- menntafélagsins? Hvar eru tillög þeirra til Al- þingishússins? Hvað hafa þeir gefið Þjóðvina- félaginu eður öðrum stofnunum, sem landinu má verða til sæmdar og frama? Hversu mikið 1) Hér mun átt við það, að þingið 1869 hafði ekki aðeins mótmælt því, að „stöðulögin“ yrðu gerð að lög- um, heldur jafnframt neitað að ræða þau í einstökum atriðum og gera við þau breytingartillögur, FRJÁLS VERZLUN hafa þeir gefið til spítala og annarra stofn- ana? Hreint ekki neitt. Þó eru þeir svo blygð- unarlausir, að þeir bera oss á brýn, að við ekki berum nóga virðingu fyrir þessum ættlerum, sem hvorki eru hreinir Baunsar, og þá vorir mótstöðumenn, né íslendingar“. I „Mínir vin- ir“ í ræðu Slimons í brúðkaupinu á Elliðavatni kemur sama fram; hann er látinn segja: „Yð- ar kaupmenn eru meira eða minna tengdir yð- ar landi af eintómum gróðahug; en áhugi þeirra og hjarta er langt í burtu frá íslandi. Má ég spyrja, hvar eru þau minnismerki, er þeir hafa látið eftir sig, sem geta sannað ör- lyndi þeirra eða borið vott um það, að þeir sýni áhuga sinn fyrir velferð og verklegum framförum yðar lands? Hvar eru skólar þeir eða velgerðastofnanir, er þeir hafa byggt? Hvar eru búgarðarnir, er þeir hafa hjálpað til að yrkja? Hvar eru gufuskip þeirra, er fara frá einum firði til annars?“. Hér er og svarað einni markverðri spurningu, til hvers kaup-. maðurinn eigi að græða fé. Svarið er, að það sé til þess að geta eytt því til þjóðþrifafyrir- tækja. Hvernig ætlar svo Þorlákur sér að vinna bug á þessu ástandi? Það les maður líka út úr „Mínir vinir“. Gunnar bóndi á Elliðavatni segir þar til. Það þurfi að kjósa efnilegustu bændur á þing. Bændur þurfi að stofna með sér verzl- unarfélög líkt og „Gránufélagið“. íslendingar þurfi sjálfir að kaupa sér gufuskipastól, og þeir þurfi að slíta verzlunarsamböndunum við Dani og beina viðskiptum sínum til annarra þjóða. Islendingar þurfi að reka verzlun sjálf- ir og þurfi að koma sér upp verzlunarskóla með ensku sniði. „Þá fyrst mun hverfa þessi leiðinlegi og ódrengilegi andi, er ennþá dreg- ur alla þjóðlega sómatilfinningu og heiður úr verzlunarstétt vorri; þá fyrst mun hverjum búðardreng þykja sómi að sinni fósturjörðu, og hverjum kaupmanni það skylda sín að efla velmegun skiptavina sinna jafnt og sína“. Þá þarf að nýta auðsuppsprettur landsins. „Skeyt- ið ei um þá villu, að land yðar sé óbyggilegt. Island hefir í sér fólgnar óþrjótandi auðsupp- sprettur, ef þeir einungis vilja nota þær“, læt- ur Þorlákur Slimon segja. Landið hefir nógar seljanlegar vörur, sem á að afhenda fyrir bein- harða peninga, því án peninga verði engum framförum hleypt af stokkunum. Þá er iðju- leysið Þorláki þyrnir í augum. Hann ræðir það oftar en einu sinni, og hann lætur Slimon segja í brúðkaupsræðunni: „Gjörið allt, sem í yðar valdi stendur til þess að reka á brott yðar versta óvin, sem er iðjuleysið“. Þetta er glæsileg stefna, og hún kemur þeg- ar í ljós hjá Þorláki við fyrstu kynni, hún er 17

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.