Frjáls verslun - 01.08.1940, Blaðsíða 31
graphical Society", í London um ísland, og mun þaÖ
sennilega hafa verið eitthvað í sambandi við þvætting
Burtons. Sýndi Þorlákur skuggamyndir með erindinu,
og var gerður að hinn bezti rómur, enda var Þorlákur
gerður heiðursfélagi félagsins. Pélag þetta er heims-
frægt, og er í alfræðiorðabók, sem ég er að handleika,
talið merkilegasta landfræðifélag í heimi; þetta var því
fátíður heiður. Oft endranær flutti Þorlákur ei'indi um
ísland í ýmsum merkum brezkum félögum.
Meðan Þorlákur var á Englandi var auðvitað, að
hann væri hægri hönd Jóns Sigurðssonar um allt þar í
landi. Hann hafði á hendi afgreiðslu Bókmenntafélags-
ins, og var afarötull að afla því meðlima. En auðvitað
fór mestur tími hans í að afla sér þekkingar, ekki að-
eins í verzlunarfræðum, heldur og hverju því, sem
manni er gott að vita og kunna. Sem dæmi þess, hvað
þekkingaráhugi hans var víðfeðmur, er það, að hann
stundaði minnisstælingarnám við Pelmans School í Lond-
on, alþekktri stofnun í þeirri grein. Þegar Þorlákur
yfirgaf England 1873, var það ekki aðeins prýðilega
sérmenntaður maður, heldur hámenntaður maður á al-
menna vísu, sem lagði frá landi. Fi-h.
ísland í erlendum blöðum frh. af bls. 9.
Besta aug-
lýsingingin í
síðasta blaði.
ALLSKONAR
AUGLÝSINGA-
TEIKNINGAR.
YÖRUUMBÚÐIR,
YÖRUMIÐAR,
BÓKAKÁPUR,
BRÉFHAUSAR,
YÖRUMERKI.
YERZLUNAR-
MERKI, SIGLI.
AUGLÝSINGASKRIFSTOFA
TEIKKAHI: STEPAN JÓNSSOH
v -J
Myndin hér að neðan birtist í ensku blaði.
Undir henni stendur að hún sýni hátíðahöld
í Reykjavík í tilefni af komu brezku hermann-
anna. Myndin mun vera frá Barnadeginum.
Occupation
Of Iceíandi
Flokkar Míl<ur og kyrrstaða,
Framhald af bls. 3.
„--------Margir embættismenn eru starf-
andi, sem væri hagnaður fyrir þjóðina að
drægi sig í hlé á fullum launum frekar en að
halda áfram moð-starfinu og fálminu. Hinir
duglegu samverkamenn þeirra mundu vinna
starf sitt betur án þeirra. Látum oss hreinsa
burtu klaufana, dugleysingjana og þröngsýn-
ar smásálir. Vort margþætta lýðræði þarfnast
athugunar og eftirlits. Vér höfum mennina til
að gera það. Látum þá taka við starfinu“.
Svona talar einn skarpskygnasti og gáfað-
asti blaðamaður Englendinga. — Þetta þolir
brezka þjóðin að heyra og vill heyra — á
þeim tíma, sem hún berst fyrir lífi sínu. Þegar
einn maður gerist hér til að rita á svipuðum
grundvelli, þjóta sumir upp með heilagri vand-
lætingu og stimpla hann sem tækifærissinnað-
an fávita, sem ekki hafi leyfi til að ræða um
opinber mál.
En þeir sem svo haga sér, geta vel lesið sér
til gagns það, sem hér hefir verið þýtt eftir
enska blaðamanninn. Orð hans eiga heima víð-
ar en í Bretlandi, þau eru stíluð upp á slíka
starfsmenn hins opinbera.
Lýðræðið á íslandi byggist á því, ,,að hver
skynbær og heiðarlegur maður geti látið í ljós
skoðanir sínar án þvingunar".
❖ * ❖
FRJÁLS VERZLUN
31