Frjáls verslun - 01.08.1940, Blaðsíða 27
Samningarnir við atvinnurekendur
Hér fer á eftir samningur sá, sem Verzlun-
armannafélag Reykjavíkur hefir gert við at-
vinnurekendur um greiðslu verðlagsuppbótar
á starfslaun. Eins og sést á undirskriftunum,
þá hafa nú þegar langflestir atvinnurekendur
skrifað undir samninginn, en söfnun undir-
skrifta stendur enn yfir. Er þess að vænta, að
allir atvinnurekendur fáist til að undirrita
samninginn, en þegar undirskriftasöfnun er að
fullu lokið, munu nöfn allra þeirra atvinnu-
rekenda, sem eru aðiljar að samningnum,
verða birt hér í ritinu, svo og nöfn hinna, sem
ekki eru það, ef nokkrir verða.
Samningurinn hljóðar svo:
SAMNINGUR
milli Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og
atvinnurekenda um greiðslu verðlagsuppbót-
ar á laun starfsmanna í verzlunum, lyfjabúð-
um og á skrifstofum.
1. gr.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur annars
vegar og þau félög atvinnurekenda og einstak-
ir atvinnurekendur hins vegar, sem skrifa nöfn
sín undir samning þennan, koma sér saman
um að greidd skuli verðlagsuppbót á laun
allra starfsmanna, sem starfa í verzlunum,
lyfjabúðum og skrifstofum samningsaðila, eft-
ir sömu reglum og ríkið greiðir verðlagsupp-
bót á laun embættismanna og starfsmanna í
ríkisstofnunum, samkvæmt lögum nr. 77, 7.
maí 1940.
2. gr.
Starfsmenn í verzlunum, lyfjabúðum og í
skrifstofum skulu samkvæmt samningi þess-
um teljast allir þeir starfsmenn, sem taka laun
fyrir störf við þessar starfsgreinir þeirra at-
vinnurekenda, sem eru aðilar að samningi
þessum, og ekki fá greidda verðlagsuppbót á
laun sín samkvæmt sérstökum lögum eða
samningum vegna annara starfsgreina.
3. gr.
Greiðsla verðlagsuppbótarinnar eins og um
ræðir í 1. gr. samnings þessa skal miðast við
FRJÁLS VERZLUN
að greidd sé eða greidd hafi verið verðlags-
uppbót á launin frá 1. apríl 1940. Gjalddagi
þeirrar verðlagsuppbótar, sem vangreidd kann
að vera fyrir tímabilið frá 1. apríl 1940 til 1.
ágúst 1940, skal vera 31. júlí n.k.
4. gr.
Rísi ágreiningur út af samningi þessum, skal
hann úrskurðaður af föstum gerðardómi, sem
skipaður sé 3 mönnum, og skal einn skipaður
af stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur, annar af stjórn Verzlunarráðs íslands, en
hinn þriðji af fjármálaráðherra ríkisins. Úr-
skurður gerðardóms skal vera bindandi fyrir
alla aðila. Kostnað við gerðardóminn greiðir
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, nema at-
vinnurekandi biðji um úrskurð gerðardóms,
og skal hann þá sjálfur greiða þennan kostn-
að, eftir mati gerðardómsins.
5. gr.
Samningi þessum má segja upp með þriggja
mánaða fyrirvara með tilkynningu í ábyrgð-
arbréfi, en verði úr gildi numin lög nr. 77, 7.
maí 1940, þau er um ræðir í 1. gr. samnings
þessa, skal samningur þessi falla úr gildi án
uppsagnar, frá sama tíma og umrædd lög
ganga úr gildi.
Reykjavík, 29. júlí 1940.
Verzlwnarmannafélag Reykjavíkur: F. O. Johnson.
Elís Ó. Guðmundsson. Félag ísl. skókaupmanna: Stefán
Gunnarsson. Verzl. Höfn: Dagbj. Sigurðsson. Skipaafgr.
J. Zimsen: Erl. Pétursson. Félag matvörukaupmanna:
Guðm. Guðjónsson. Félag ísl. stórkaupmanna: Eggert
Kristjónsson. Vélsmiðjan Héðinn: Kristinn Guðjónsson.
Veiðarfæraverzl. Geysir: Kristinn Markússon. H.f. Eim-
skipafélag Islands: Sig. Guðmundsson. L. Andersen. Fé-
lag ísl. iðnrekenda: Sigurjón Pétursson. Harald Faaberg.
Félag búsálialdalcaupmanna í Reykjavílc: H. Biering.
Gunnar Guðjónsson. H.f. Hamar: Ben. Gröndal. Lyf-
salafélag íslands: P. L. Mogensen. H.f. Edda: Karl Þor-
steins. G. Helgason & Melstcd H/f. Páll Melsted. Máln-
ing & Jámvörur: Gunnbjörn Björnsson. Leðurverzl. Jóns
Brynjólfssonar: Magnús J. Brynjólfsson. Félag kola-
verzlana í Reykjavík: Geir Borg. Lárus G. Lúðvígsson.
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda: Kristján Einarsson.
Sjóváti'yggingarfélag íslands: Egill Daníelsson. Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar: Björn Pétursson.
27