Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1941, Síða 5

Frjáls verslun - 01.07.1941, Síða 5
Hafberg var fyrstur deildarstjóri í járnvöru- deildinni og var það til 1919, en síðan tók nú- verandi deildarstjóri Jón Guðmundsson vio. I nýlenduvöruverzluninni var fyrst deildarstjóri Haraldur Sigurðsson, en síðan Marteinn Stein- dórsson og var það þar til hann og Sigurgísli Guðnason keyptu vörubirgðir verzlunarinnar og stofnsettu nýja verzlun undir nafninu Ný- lenduvöruverzlunin Jes Zimsen. Var það 1931. Jes Zimsen var um skeið einn af mestu at- hafnamönnum þessa bæjar, enda var hann mjög áhugasamur fyrir öllum framförum, einkum á sviði sjávarútvegsins. Hann komst í kynni við þá menn, sem einna fremstir voru í útgerðarmálum um aldamótin, en það voru þeir Geir Zoega og Tryggvi Gunnarsson. Jes gekk í félag með bræðrunum Birni Guðmunds- syni kaupm. og Þorsteini fiskimatsmanni og keyptu þeir kútterana Stjærnþ, Palmen og Swift. Gerðu þeir skip þessi út í nokkur ár og farnaðist þeim vel. Síðan komu botnvörpuskip- in til sögunnar, því seglskipin þóttu nú of smá og afkastalítil. Jes Zimsen varð fljótur til að koma auga á nytsemi hinna nýju skipa og stofn- aði hann fiskveiðahlutafélagið ísland ásamt Birni Guðmundssyni, Hjalta Jónssyni, Þorsteini Þorsteinssyni og fleiri mönnum. Var það árið 1908. Félag þetta starfaði í 25 ár og gekk því vel. Var Jes Zimsen formaður þess og fram- kvæmdastjóri frá byrjun og þar til tveim árum áður en það hætti. Hann var einnig framkv.- stjóri H.f. Belgaum í mörg ár. Jes Zimsen hafði hinn mesta áhuga fyrir því að hagnýta sjávarafurðirnar sem bezt og gera þær verðmeiri en áður hafði verið. Einkum lagði hann áherzlu á lýsisframleiðslu og framleiddi Lann einnig fyrstur íslenzkt meðalalýsi og var E. Rokstad í félagi með honum um þá starfsemi. Hann var einnig framkvæmdamaður um allt sem laut að rekstri íslenzka flotans, og í því sam- bandi var hann framarlega í flokki um stofnun þilskipaábyrgðarfélagsins og samtryggingar botnvörpuskipaeigenda og fleiri fyrirtækja er mikla þýðingu hafa fyrir útgerð fiskiskipa hér á landi. Þá er það ótalið, að Jes Zimsen var formaður og framkvæmdastjóri Hins íslenzka steinolíufé- lags, og síðustu ár æfi sinnar afgreiðslumaður Sameinaða, að bróður sínum látnum. ir Jes Zimsen hafði með höndum svo umfangs- mikla útgerðarstarfsemi, að hann gat lítið sinnt verzlun sinni, og Helgi Helgason tók við þeim störfum. Fyrst, er Zimsen eldri fluttist frá Ilafnarfirði, hafði hann með sér starfsmenn sína við verzlunina þar, og má nefna þá Th. Mathiesen afgreiðslumann og Jón Jónsson skrif- ara. Voru þeir báðir heimilisfastir í Hafnar- firði fyrst um sinn og gengu heim til sín um helgar, því þá voru engin farartæki á þessari leið. Eins og nærri má geta hefir starfað hinn mesti fjöldi fólks við verzlunina síðan hún var stofnuð, og skal geta þeirra, er starfa þar enn og sem hafa gjört það um tugi ára, en það eru, auk Helga Helgasonar, Rósa Þórarinsdóttir, sem starfað hefir þar frá 1905, Sigurður Þorsteins- son frá 1913, Jónas Helgason, frá 1913, Jón Guðmundsson frá 1914 og Ásmundur Árnason frá 1914. Auk þess má geta Þórarins Jónssonar, sem starfaði þar frá aldamótum og þar til 1931, er nýlenduvöruverzlunin hætti, enda var hann þá orðinn fullra 76 ára. ★ Það þarf auðvitað ekki að fjölyrða um það, að verðlag er nú ekkert sambærilegt við það sem var fyrir 30—50 árum síðan. Til fróðleiks um þennan mikla mun má geta þess, að hurðarskrár kostuðu 70 og 90 aura. Eitt sinn fékk verzlunin sem sýnishorn vandaða skrá með einskonar smekklás. Hún þurfti að kosta 5 kr., en enginn lagði í að kaupa hana vegna verðsins, og eftir að hún hafði legið í búðinni í 3—4 ár tók Helgi Helgason hana og setti hana fyrir hús, er hann Helgi Helgason Jes Zimsen Jón Guðmundsson FRJÁLS VERZLUN 5

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.