Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1941, Qupperneq 9

Frjáls verslun - 01.07.1941, Qupperneq 9
Þessar skoðanir Smiths höfðu mikil áhrif á stjórnmálamenn, og má telja hann frömuð hinn- ar frjálslyndu stefnu á sviði utanríkisverzlun- ar, sem ruddi sér til rúms um og eftir miðja 19. öld. Án verzlunarfrelsisins hefði hin nýja vélamenning aldrei getað skapað þann grund- völl efnalegra framfara sem raun varð á. Hér verður eigi tóm til að rekja kenningar Smiths nánar í einstökum atriðum. Þær hafa síðar verið ákaft gagnrýndar, og víst er um það, að framfarir þær, sem hin nýja tækni og hin nýja viðskiptastefna skópu, hafa ekki fært mannkyninu óblandna hamingju. Hin aukna efnalega velmegun skiptist ójafnt niður, og hefði það án efa valdið Smith vonbrigðum, því enda þótt ýmsir hafi talið Smith sem talsmann stór- iðjuhölda og annarra auðkýfinga, er slíkt þó eigi rétt, samúð hans var fyrst og fremst með hinum fátækari stéttum þjóðfélagsin, og hann bar kjarbætur þeirra fyrst og fremst fyrir brjósti. Ágreiningur hans og sósíalista t. d. var ekki um markmið heldur leiðir að takmarki. Margir síðari áhangendur Smiths hafa líka tekið dýpra í árina en hann gerði um nauðsyn þess að athafnafrelsi einstaklingsins væri sem mest, og hafa ýmsar öfgar í þá átt þannig ver- ið eignaðar honum ranglega. En hvað sem því líður ber jafnan að minnast Smiths sem eins ótrauðasta og áhrifamesta brautryðjenda verzlunarfrelsisins og þeirra framfara sem án þess hefðu ekki átt sér stað, og enn þann dag í dag geta allir þeir sem áhuga hafa á því að kynna sér rök hinnar frjálslyndu viðskiptastefnu lært mikið af hinu nær 170 ára gömlu höfuðriti hans „Wealth of nations“ þar sem rök þessarar stefnu eru sett fram á svo ó- venju snjallan og Ijósan hátt. 35 ára verzlunarafmæli Hinn 15. júlí 1906 byrjaði Halldór Jónasson kaup- maður að reka verzlun á Siglufirði, og eru því um þess- ar mundir 35 ár síðan firmað Halldór Jónasson á Siglu- firði var stofnsett. Halldór stofnaði verzlun sína um það leyti, er sild- veiðar hófust frá Siglufirði, og voru það Norðmenn, sem þann atvinnuveg hófu, eins og' kunnug't er. Náði Halldór þegar miklum viðskiptum við Norðmenn og aðra og rak verzlun sína með mildum dugnaði óg' framsýni. I nokkur ár rak hann einnig brauðgerðarhús í sambandi við verzlunina, og árið 1922 setti hann á stofn vefnaðarvörudeild, sem hann rak ásamt nýlendu- vörudeild sinni. Lánsverzlun tíðkaðist lengi á Siglufiiði sem víðar og fékk Halldór hennar vegna mörg áföll, eins og svó margir fleiri, enda eru allar þær verzlanir, er störfuðu þegar hann byrjaði, eða byrjuðu um svipað leyti, fyrir löngu úr sögunni. Var sérstaklega áhættusamt að reka verzlun á Siglufirði þau ár, er síldveiðar brugðust eða gengu illa, ehda var sá atvinnuvegur miklu áhættu- meiri þá en nú. Þeim sem þessar línur ritar er líka kunnugt um, að árið 1924 tók Halldór saman skrá yfir þá kaupmenn, er höfðu hætt að verzla eða orðið gjald- þrota í þau 18 ár, er hann hafði þá verzlað, eða frá 1906—1924, en það voru 32 kaupmenn og fyrirtæki og þar af 15 g'jaldþrota. Um Halldór mætti skrifa margt merkilegt, en það verður ekki gert í þessum fáu línum, enda kunnugt að hann var maður stórvel gefinn, hagyrtur og vel mennt- aður, þó sjálfmenntaður væri, maður sem með dugn- aði og orðheldni skapaði sér álit innanlands sem utan algerlega með eigin afli og framtaki. Þegar Halldór lézt árið 1928 tók Hafliði sonur hans við verzluninni og síðar Kristinn, og hafa þeir rekið hana ásamt konu Halldórs, frú Kristinu, æ síðan. Vita allir að verzlunin nýtur hvarvetna hins fyllsta trausts og álits. Það er von flestra, sem frjáísri verzlun unna, að hið frjálsa framtak eigi mikla framtíð fyrir höndum, og sannast hér sem víðar að dugnaður og framsýni fær miklu áorkað, þótt við ýmsa erfiðleilca og ágengni sé að etja. EÞir CASSO N : „Fjórar skyldur „Ég hefi fjórar skyldur", sagði fram- mínar“. kvæmdastjóri mjög góðs fyrirtækis. „þær eru að læra, hugsa, undirbúa framtíðarstörf og framkvæma þau“ þetta er góð lýsing á störfum duglegs framkvæmda- stjóra. Hann á að verja næstum öllum tíma sínum til Þess að vinna skapandi störf. Hann á að láta aðra að mestu um hin daglegu störf. Hann á aldrei að liætta að læra. Ilversu iðinn og ástundunarsamur sem hann er, getur hann aldrei lært allt. Hann verður að vita livað er raunverulega að ger- ast í öllum deildum fyrirtækisins. Ef hann er fyrir stóru fyrirtæki, á hann að hafa hagfræðing sér við hlið, sem sendir honum í sífellu upþlýsingar — tölur og annað — um rekstur og gang fyrirtækisins. Ef hann er framkvæmdastjóri stórfyrírtækis verð- ur hann að hafa augun opin. Ilann verður að hafa góða eftirtektárgáfu. Hann verður að taka eftir hvað starfsfólk hans er að gera og gefa því Íe'iðbeiningar. Hánn verður að læra moira en það, sem liann get- ur lrert af fyrirtæki sínu einu. Hann getur lært af bókúm, ferðalögum, samtölum og af mönnum, sem hafá lagt stund á sérgreinar í kaupsýslu. Hver sá, sem ver mestum tíma síns til að læra, hugsa, undirbúa framtíðarstörf og framkvæma þáu, hlýtur að hafa alla kosti til að byggja upp stórfyrir- tæki. FRJÁLS VERZLUN 9

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.