Frjáls verslun - 01.07.1941, Síða 10
Starfsmannahold í verzlunum Sovét-Rússlands
Eins og menn vita, er verzlun Rússa þjóð-
nýtt eins og iðnaðurinn. Blöðin í landinu
minnast sjaldan á stöðu afgreiðslufólksins í
verzlununum og verja ekki miklu rúmi til
þess, en við og við er þó hægt að lesa í rúss-
neskum ritum um það, hvernig verzlunin er
skipulögð. Fyrir nokkru síðan, nánar tiltekið
14. janúar 1941, birti ,,Pravda“, sem er aðal-
málgagn Sovétstjórnarinnar, grein, sem er vel
þess verð, að hún sé lesin með athygli. 1 þess-
ari grein er nefnilega skrifað um starfsfólk
vérzlananna í sambandi við sjálft fyrirkomu-
lag rússneskra verzlana og stjórn þeirra.
I greininni er gefið glöggt yfirlit yfir ár-
angur rannsóknar, sem var látin fara fram á
starfsfólki í eigi færri en 800 matvöruverzl-
unum í Moskva, Leningrad, Kief, Baku og
öðrum stórborgum í Sovétríkjunum. — Sam-
kvæmt frásögn ,,Pravda“ leiddi rannsóknin í
ljós, að allsstaðar er ,,gnótt verzlunarmanna
og engin skynsamleg notkun á vinnuafli." Er
bent á það sérstaklega, að í mörgum verzl-
unum sé afgreiðslufólkið ekki nema einn þriðji
hluti starfsmannanna, en hinsvegar hafði
fjöldi starfsmanna við stjórn verzlananna og
aðstoðarmanna í lægra flokki aukizt ískyggi-
lega.
Það sést af eftirfarandi dæmi: í matvöru-
verzlun nr. 251 í Moskva voru aðeins níu af-
greiðslumenn, en við sömu verzlun var for-
í Sovjet-verzlun.
stjóri, fjórir varaforstjórar, bókhaldari, einn
aðstoðarmaður hans, og loks tíu aðstoðar-
menn og konur við ýms óæðri störf. Það er
ekki hægt annað að segja, en að tölurnar tali
hvað stjórn fyrirtækisins viðkemur. I öðrum
verzlunum þessa sama matvörusöluhrings vann
fjöldi afgreiðslumanna 50%, í sumum 56,8%
og í enn öðrum 41%. Að meðaltali eru 10
starfsmenn við stjórn verzlananna fyrir
hverja 9 afgreiðslumenn, en í sumum hverfum
borgarinnar er þó hægt að finna verzlun, þar
sem aðeins starfa fjórir við stjórn fyrir jafn-
marga afgreiðslumenn, þ. e. níu.
Ekki er hægt að segja annað, en að þetta
séu allmiklir gallar. En rannsóknin leiddi líka
í ljós, að á fjölda starfsmanna í líkum störf-
um, er óeðlilega mikill munur hjá verzlunum,
sem hafa jafnmikla umsetningu. Til dæmis
eru 29 starfsmenn í verzlun nr. 55, en 40 í
verzlun nr. 53. Umsetningin er jafnmikil hjá
báðum. I verzlun nr. 514 í Baku voru alls 22
starfsmenn, þar af 7 afgreiðslumenn, en í
verzlun nr. 40 í sömu borg eru 15 starfsmenn,
þar af 7 afgreiðslumenn. Umsetning þessara
verzlana er næstum því hin sama, nefnilega
420,000 og 405,000 rúblur í hvorri um sig.
f matvöruverzlununum nr. 8 og 12 í Moskva
er umsetningin í hvorri verzlun um 1,1 milljón
rúblur. f báðum þessum verzlunum er unnið
með flokkaskiptingu, en í verzlun nr. 8 eru 42
starfsmenn, og í verzlun nr. 12, hvorki meira
né minna en 56 manns.
Það verður að teljast mjög misráðið, að
smáverzlanir skuli nálgast stórverzlanir hvao
snertir starfsmannafjölda við stjórn þeirra.
Það eru stofnaðar margar deildir með for-
stjórum, deildarstjórum, bókhöldurum o. s.
frv. Sem dæmi þessa má nefna, að í 14 verz-
unum í Leningrad voru fjöldi deildarstjóra
og varamanna þeirra, einum fjórða hluta alls
starfsmannafjöldans. Móti 206 afgreiðslu-
mönnum í þessum verzlunum, koma 114
st j órnarmeðlimir.
Að meðaltali voru ekki alveg tveir af-
greiðslumenn fyrir hvern skrifstofumann í
þessum matvöruverzlanahring. í matvöru-
Frh. á hls. 25.
10
FRJÁLS VERZLUN