Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1941, Qupperneq 23

Frjáls verslun - 01.07.1941, Qupperneq 23
föðurbróðurnum Brodie Duke og George W. Watts í Baltimore. Duke-fjölskyldan lagði fram 70,000 dollara og nýja félagið bætti við tóbaksræktina og hirti eingöngu um að fram- leiða fullunnið tóbak og kaupa uppskeru bændanna. Þótt James Buchanan væri yngstur í fyrir- tækinu, gafst honum brátt tækifæri til að sýna, hvað í hann væri spunnið. Hann hafði komið auga á nýja tóbaksvörutegund: sígarett- una. Framleiðsla hennar var enn í bernsku og í Bandaríkjunum seldust einar 200 millj. á ári. James tókst brátt að sýna félögum sínum fram á kosti þessarar vörutegundar, sem hann ætlaði að gera að vöru fyrir allan heiminn: Það var því ákveðið að James skyldi ráða, þótt hann væri yngstur og hinir lúta boði hans. Hann starfaði af afarmiklu kappi og er á leið varð sígarettuframleiðslan meira gróðafyrir- tæki, en þá hafði grunað. Duke tók upp nýtízku aðferðir til þess að vekja athygli almennings á vöru sinni. Hann auglýsti meira en nokkur annar — varði 800,000 dollurum á ári til þeirra hluta. — I hverju blaði, á hverjum húsvegg, kílómetra- steini og símastaur gat að líta auglýsingar um ,,Duke of Durham“. Eftir aðeins eitt ár var byggð ný verksmiðja í Durham og jafnframt var ákveðið að reisa verksmiðju í New York. Þangað var Duke sendur til að sjá um sölu framleiðslunnar. Hann komst að raun um það, að eftirspurnin væri svo mikil, að engin leið væri að full- nægja henni. Þá fyrst sýndi Duke raunveru- lega hvílíkur dugnaðargarpur hann var. — Hann hugsaði eingöngu um fyrirtækið og sinnti engu öðru. Hann sparaði allt við sig, sem hægt var og af 50,000 dollara launum sínum lagði hann 49,500 aftur í fyrirtækið, en lifði á 500 dollurum, minna en verkamenn hans. Hann fékk það samþykkt, gegn mikilli mótspyrnu þó, að enginn hluthafi, kvæntur eða ókvæntur, mætti taka meira en 1000 doll- ara úr fyrirtækinu á ári. Hann ætlaði fyrir- tækinu að verða miklu stærra. Þegar á árinu 1885 var ársframleiðslan orðin einn milljarð- ur sígarettna og voru það um tveir fimmtu hlutar allrar neyzlunnar í Bandaríkjunum. James hefir alltaf líkt eftir Rockefeller, þegar um skipulag fyrii’tækis hans var að ræða. Um þetta leyti réði Rockefeller yfir um tíundu hlutum olíuframleiðslunnar í landinu. Duke unni sér engrar hvíldar. Hann sá pant- anirnar streyma inn, tækifærið brosa við sér, en hann gat ekki gripið það. Svo fór ráða- gerðin að fá á sig ákveðna mynd. Hversvegna ekki steypa stóru fyrirtækjunum saman? Það hlaut að auka fjármagn hans og völd og þá var jafnvel hægt að brjótast inn á Evrópu- markaðinn. Duke þurfti tvö ár til að fram- kvæma samsteypu sína og árið 1890 var stofn- aður tóbakshringurinn ,,The American Tobacco Company“, sem sameinaði fjögur stærstu tó- baksfyrirtækin félagi Dukes. ,,Ég vinn að aukinni umsetningu og skyn- samlegu verzlunarfyrirkomulagi“, segir Duke um samsteypuna. „Til þess að geta þjónað al- menningi betur og ódýrar en nokkuð annað fyrirtæki, þarfnast ég umsetningar. Við ósk- uðum að auka tóbaksnotkunina og að selja góðar vörur við sanngjörnu verði. Stefna okk- ar hefir reynzt rétt. „Ameríska tóbaksverzl- unin“ stækkaði svo ört, að áður en hún var leyst upp — með stjórnartilskipun 1911, sem var liður í baráttu Roosevelts gegn hringun- um — var árleg umsetning 325 miljarðar doll- ara. Við réðum 80% af allri tóbaksframleiðslu heimsins. Vörur annara framleiðenda voru seldar í öllum verzlunum um allt landið, en okkar þóttu betri og seldust betur. Ég vildi líka að við seldum jafnt sígarettur sem reyk- tóbak. Um þetta leyti voru sígarettur seldar í landinu fyrir 8 milljónir dollara — 2 milljarð- ár sígarettna — en reyktóbak fyrir 100 millj. dollara. Fyrir litlu tóbaksekrurnar, sem Duke-fjöl- skyldan byrjaði að rækta á sjöunda tug síð- ustu aldar, var greitt árið 1890 eigi minna en 7,5 milljónir dollara. En þessar milljónir út- veguðu amerísku tóbakskaupmönnunum for- ingja, sem var James Duke. Það var þörf slíks foringja, því að nú byrjuðu ensku keppinaut- arnir að sækja á. Þá ákvað Duke, að bezt væri að leggja sjálfur til orustu. Hann fór til London 1901 og á fimm dög- um undirbjó hann árásina og lét senda sér „skotfæri“ símleiðis, fimm milljónir dollara. Afskaplegar deilur hófust og vöktu þær al- þjóðarathygli í marga mánuði. Ensku blöðin studdu sína eigin framleiðendur og um tíma birtu öll ensk blöð skopteikningar af „ósvífna Bandaríkjamanninum“. Duke segir svo frá, að hann hafi útvegað sér upplýsingar um tóbaksiðnaðinn brezka og hafi komizt að þeirri niðurstöðu, að hann yrði annaðhvort að kaupa Players- eða Ogden- verksmiðjurnar. Hann fór fyrst til Players í FRJÁLS VERZLUN 28

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.