Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1941, Page 27

Frjáls verslun - 01.07.1941, Page 27
Nýjar vörutegundir Landbúnaður og iðnaður jarðarinnar eru í hinum nánustu tengslum. Jarðargróður hefir frá ómunatíð lagt iðnaðinum til efni þeirra hluta, sem smíðaðir eru. Landbúnaðurinn hef- ir lagt ullina til klæðagerðar, leður til skógerð- ar, timbur til húsa o. s. frv., en nú virðist að ýmsu leyti vera að renna upp ný öld. Þrátt fyrir það þótt efnafræðingar hafi fundið upp sæg af gerfiefnum, sem unnin eru úr málm- um eða úr loftinu, þá heldur landbúnaðurinn áfram að vera undirstaða iðnaðarins og með hinni nýju tækni færist hann inn á nýjar og nýjar brautir. Bandaríkjamenn lifa að verulegu leyti á landbúnaði og þeir hafa framkvæmt víðtæk- ar rannsóknir á því, hvernig landbúnaðaraf- urðir verði sem bezt hagnýttar í þágu iðnaðar- ins. Velgengni í heiminum og atvinna almenn- ings byggist að þeirra áliti ekki sízt á því að rétt hlutfall sé á milli framleiðslu landbúnað- arafurða og nota þeirra í þágu iðnaðarins. Soya-baunin er ein af nýjustu vörutegundum á heimsmarkaðinum, en hún hefir opnað land- búnaðinum í Ameríku nýja möguleika. Upp- runalega var hún ræktuð í Manchukuo og var þar notuð til fóðurs. Það er aðeins skammt síð- an að hún var ræktuð í stórum stíl af hvítum mönnum. Á síðustu 10 árum hefir framleiðsl- an í Ameríku aukizt úr 8 millj. skeppa upp í 80 millj. skeppa. Baunin getur þrifist á hinum ólíkustu stöðum og er því þægilegri til rækt- unar en ýmsar aðrar svipaðar jurtir. Hún hef- ir verið ræktuð eftir vísindalegum aðferðum þ'annig að olíumagn hennar hefir verið aukið. Nú er soya-baunin orðin dýrasta afurð akur- yrkjumanna í Bandaríkjunum og framleiðsla hennar eykst sífellt. Ennþá er mesta soya-baunaframleiðslan í Austurlöndum, en þaðan fást 90% af heims- framleiðslunni, sem er 13 milljónir smálesta. í verksmiðjunum er olían unnin úr bauninni FRJÁLS VERZLUN og er hún notuð til hinna margvíslegustu þarfa. Auk þess sem soya-baunin er notuð til ýmislegrar matvælaframleiðslu, svo sem smjörlíkis og bökunarfeiti, er hún mjög not- uð í málningu, sápur, linoleum og til olíufafa. Sérstaklega er hún hentug til bílamálningár. Þegar olía hefir verið pressuð úr einni smá- lest af baunum er eftir mikið af mjöli, sem er ekki síður verðmætt en olían. Soya-mjölið er notað í pappír, síróp, vatnsliti og fjölda margt annað. Einnig er mjölið pressað saman þar til úr því verður hart efni og er það notað í ým- islegt, svo sem hurðarhúna, hnappa o. s. frv. Úr soya-bauninni er einnig unnin hin bezta gerfi-ull, sem til er. Þessari soja-ull má blanda við bómull eða sauðull, og sumir telja að sá tími muni koma að ull af kindum verði óþörf, þegar framleiðsla soya-ullar hefir náð fullum framförum. Á síðari árum hefir mikið verið talað um ýms gerfiefni, sem unnin eru úr mjólk. Efna- fræðingar um víða veröld hafa lengi spreytt sig á þessu viðfangsefni og hefir tekizt að hag- nýta mjólkina til hinna margvíslegustu þarfa. I Soya-baunin.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.