Frjáls verslun - 01.07.1943, Qupperneq 8
mig upp hr. alþm. Ólafur Thors, formaöur
Sjálfstæðisflokksins, og tilkynnti mér að hann
hefði með höndum 50 þúsund kr. fjárupphæð
frá föður sínum Thor Jensen, sem væri gjöf
frá honum til V. R. Óskaði Ólafur Thors jafn-
framt að mega hafa persónulegt samtal við
formann V. R. þennan sama dag kl. 1,45 e. h.
og mundi hann þá um leið afhenda honum áð-
urnefnda fjárupphæð. Fór ég síðan á fund Ólafs
á tilteknum tíma og tók á móti gjöf þesari 50
þús. kr., ásamt. skjali dagsettu 17. sept. þ. á.,
er á var ritað tildrögin að þessari veglegu gjöf
ög í hvaða skyni hún væri gefin V. R. (Skjal
þetta er birt á næstu síðu í eftirmynd).
Að loknu samtali mínu við hr. Ólaf Thors,
bað eg hann að skila innilegri kveðju til gef-
endans, föður hans Thor Jensen, með alúðar
þakklæti fyrir hina höfðinglegu gjöf hans. —
Óskaði eg þess jafnframt að stjórn V. R. mætti
við fyrsta tækifæri, fá leyfi til að heimsækja
föður hans að heimili hans, þegar bezt stæði á
fyrir honum. Lofaði Ólafur að bera þessa ósk
mína fram við föður sinn.
Næsta dag, sem var sunnudagurinn 26. sept.
boðaði eg til stjórnarfundar kl. 3 síðd., þar sem
eg skírði stjórninni frá gjöf þessari og las upp
bréf það er fylgdi gjöfinni. Afhenti eg síðan
gjaldkera félagsins Stefáni G. Björnssyni, áð-
ur nefndar 50 þús. krónur til varðveislu. Stakk
eg síðan upp á að skipuð yrði 5 manna nefnd,
er semja skyldi skipulagsskrá fyrir fyrirhugað-
ann sjóð -og velja honum nafn. — 1 nefndina
voru svo skipaðir:
Hjörtur Hansson, Stefán G. Björnsson, Hall-
Guttormsson, Hallgrímur Benediktsson, stór-
kaupm., og Einar Ásmundsson, hrm.
Var ákveðið að minnast ekki á gjöf þessa
út á við að svo komnu máli, fyrr en búið væri
að ganga frá skipulagsskránni og að því loknu
skýra fyrst frá gjöf þessari, á sem ítarlegastan
hátt í næsta blaði af „Frjáls verzlun". Því miður
hefur blað þetta ekki náð því að koma út íyrir
þennan aðalfund eins og þó var til ætlast. Boðaði
ég svo síðan áður nefnda nefnd á fund, þar sem
samþykkt var að fela Einari Ásmundssyni, hrm.
að semja uppkast að skipulagsskránni.
Þá er Einar Ásmundsson hafði lokið við
samning uppkastsins, var nefndin á ný kölluð
saman og endanlega gengið frá skipulags-
skránni. Varð það að samkomulagi innan nefnd-
arinar, að sjóður þessi skyldi bera nafnið
„Námssjóður Thors Jensen“.
Eftir að nefndin hafði gengið frá skipulags-
skránni, þótti henni sjálfsagt að hún yrði borin
undir Ölaf Thors, son gefandans, til yfirlesturs
og athugunar. Samkv. yfirlýsingu Ólafs, þá
hafði hann ekkert við skipulagsskrána að at-
huga, og sagði að hún væri að öllu leyti í sam-
ræmi við óskir gefandans.
Á stjórnarfundi þriðjudaginn þann 2. nóv.,
voru eftirtaldir 3 stjórnarmeðlimir kosnir í
sjóðstjórnina:
Hjörtur Hansson, Stefán G. Björnsson og
Adolf Björnsson.
Gefandi sjóðsins hafði fyrir sína hönd ti 1-
nefnt í nefndina son sinn Hauk Thors, fram-
kv.stj., sem er og samkv. skipulagsskránni for-
maður nefndarinnar. — Verzlunarráð Islands
tilnefndi Hallgrím Benediktsson, stórkaupm.
Varamenn í sjóðstjórnina hafa aðalmenn
hvor fyrir sig tilnefnt, og eru þeir þessir:
HjÖrtur Hansson tilnefndi Egil Guttormsson,
Stefán G. Björnsson tilnefndi Þórarinn Björns-
son, Adolf Björnsson tilnefndi Óskar A. Gísla-
son, Hallgrímur Benediktsson tilnefndi Svein
M. Sveinsson, og Haukur Thors hefur tilnefnt
Jóhann Hafstein, lögfr.
Sjóðstjórnin hefur enn ekki komið saman, en
hún mun gera það á næstunni og þá skifta með
sér verkum og taka fyrir aðrar nauðsynlegar
ákvarðanir í samræmi við skipulagsskrána.
Að lokinni skýrslu sinni, minntist formaður
Thors Jensen og rakti í fáum dráttum starfsfer-
il hans og athafnalíf, og sagði að lokum: Um
leið og eg hefi nú minnst í höfuðdráttum þess
stóra viðburðar í félagi voru á liðnu starfsári,
í sambandi við hina miklu gjöf er félaginu hlotn-
aðist og heiðursfélaga vors Thors Jensen, þá
leyfi eg mér, fyrir hönd félagsins, að árna þess-
um stórmerka öldungi, Thor Jensen og konu
hans, allra heilla á ófarinni æfibraut og bið
fundarmenn að rísa úr sætum sínum í þakk-
lætis- og virðingarskyni við Thor Jensen,
sem nú fyllir áttunda tug æfi sinnar næstkom-
andi 3. desember og hylla hann með ferföJdu
íslenzku húrrahrópi.
Eindregið með lýðveldismálinu.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt á fundin-
um: —
„Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur, haldinn 30. nóv. 1934, lýsir eindregið
fylgi sínu við stofnun lýðveldis á Islandi, eigi
síðar en 1. júní 1944“.
8
FRJÁLS VERZLUN