Frjáls verslun - 01.07.1943, Page 17
meginstarf hans var stofnun og rekstur Kveld-
úlfs, með umfangsmikilli útgerð, verksmiðju-
í'ekstri og fiskverzlun víða um lönd. Tóku synir
hans síðan við stjórn þessara fyrirtækja.
Hugur Thor Jensen mun einnig allsnemma
hafa hneigst að landbúnaði og hann velt því
fyrir sér, hvert búskaparlag mundi hér hent-
ast. Hann keypti Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi og
Melshús á Seltjarnarnesi, en stórbúskap hóf
hann fyrir alvöru, er hann keypti Korpúlfs-
staði í Mosfellssveit. Gerði hann þar stórbýli
úr lítilli jörð og rak þar mikinn búskap í mörg
ár. —
Thor Jensen hefur verið fremur fáskiftinn
um þau efni, sem ekki tóku beinlínis til verka-
hrings hans og áhugaefna í atvinnumálum. En
hann mun hafa fylgst vel með opinberum mál-
um og haft á þeim ákveðnar skoðanir og ein-
dregnar. Hann er einnig, að sögn, allvíðlesinn
maður, t. d. vel að sér í fornum íslenzkum
sögum og hefur haft áhuga á sumum nýjung-
um í heimspeki.
Thor Jensen er nú maður hniginn að aldri,
nýlega orðinn áttræður, fæddur 3. desember
1863. Seinustu árin hefur hann að mestu sest
í helgan stein og búið búi sínu á Lágafelli.
Kona hans er Margrét Þorbjörg Kristjánsdóttir
frá Hraunhöfn hjá Búðum, búsýslukona og
merkiskona. Þau hafa eignast tólf börn. Thor
Jensen hefur við ýms tækifæri sýnt örlæti sitt
og vinarhug til ýmissa fyrirtækja og stofnana
og verið stórgjöfull. Hann hefur gefið um 65
þús. kr. til annara fyrirtækja um líkt leyti og
hann hefur gefið Verzlunarmannafélaginu hinn
rausnarlega námssjóð.
Saga Thor Jensen verður annars ekki rakin
hér. Það er hvorutveggj a, að mig brestur per-
sónulega þekkingu á henni og svo hitt, að sá
þáttur hennar, sem út á við snýr, er miklu um-
fangsmeiri en svo, að hann verði rakinn hér,
því að þar koma jafnframt til álita ýmsir
meginþættir í starfssögu þjóðarinnar á seinustu
áratugum.
En „Frjáls verzlun" hefur viljað minnast
hans sem heiðursfélaga Verzlunarmannafélags-
ins með þakklæti' fyrir góðan hug til félagsins
og' fyrir stórhug hans, í þeirri von, að hinn
nýi námssjóður hans eigi eftir að verða mörgum
verzlunarmanni til styrktar og ánægju og
menntun verzlunarstéttarinnar til eflingar.
Vilhj. Þ. Gíslason.
Alþingishátíðarbékin
Á árunum 1874 til 1930 héldu Islendingar
enga þjóðhátíð. Aldarafmæli Jóns Sigurðssonar
1911 varð ekki þjóðhátíð í venjulegri merkingu
þess orðs, en hefði vafalaust orðið það, ef skuggi
hatrammra deilna um landsmálin og þá ekki sízt
sambandsmálið, hefði ekki hvíit yfir landinu.
Islendingar voru ekki í hátíðaskapi 1908 og ár-
in þar næstu á eftir. Það gegndi öðru máli 1930.
Kreppan var ekki enn skollin á og góðæri höfðu
verið um nokkurn tíma. Þótt deilur risu þá all-
hátt í landinu, eins og oft endranær, voru þær
ekki þess valdandi, að þjóðin gæti ekki samein-
ast um að halda afmæli Alþingis hátíðlegt, enda
varð sú raunin á, að hún varð hinn mesti mann-
fagnaður, sem verið hefur á þessu landi.
H.f. Leiftur hefur unnið mjög gott verk með
því að gefa út hina glæsilegu bók dr. Magnúsar
Jónssonar um hátíðina. I bókinni er safnað sam-
an öllu því helzta, sem hátíðina varðar, og rnynd-
irnar eru bæði margar og ágætar. Það fer ekki
hjá því, að hjá mörgum, sem á hátíðini voru og
bókina lesa, rifjast upp g'óðar endurminningar,
og ef til vill vaknar þá margt upp aftur, sem
hefur hálfgleymst á þeim 13 árum, sem liðin eru.
Á Alþingishátíðinni sýndu Islendingar göf-
ugum fulltrúum stórra þjóða og smárra helgi-
dóm sinn á Þingvöllum og birtu fyrir þeim sögu
liðins tíma og þær vonir, sem tengdar eru við
framtíðina. Hátíðin hefur vafalaust haft sína
þýðingu, jafnt út á við og inn á við. Hún var
glæsileg og þjóðinni til sóma.
Bók dr. Magnúsar er kærkominn gestui'. Hún
er ein af þeirn bókum, sem öllum mun þykja
vænt um að eignast.
Ný fyrirtœki o. fl.
Söluturninn í Beykjavík. Ólafur Sveinsson er orð-
inn einkaeigandi þeirrar verzlunar eftir lát föður
síns, Sveins Gunnarssonar.
Ó. V. Jóhannesson & Co, Reykjavík. Þorv. Þor-
steinsson hefur fengið prókúruumboð fyrir það
firma.
Verzlunin Svalbarði, Reykjavík. Kristján P.
Andrjesson hefur selt Gesti Guðmundssyni verzlun
þessa.
Nýja blómabúðin, Reykjavík, er rekin með ótak-
markaðri ábyrgð af Hendrik Berndsen og Stefáni
Thorarensen.
Daníel Ólafsson, s. f., hefur hætt störfum.
Verzlunin Stígandi, Reykjavík, er rekin af Jó-
hannesi Bjarnasyni, með ótakmarkaðri ábyrgð.
FRJÁLS VERZLUN
17