Frjáls verslun - 01.07.1943, Síða 23
Lestaferö til Krýsivíkupr. — (llr bók Mackenzies).
Þegar herramenn hittust í gamla daga
Það var á hundadagatímanum fræga eða um 1810, sem skotskur
barón, Mackenzie, Iagði leið sína til íslands með fríðu föruneyti. Barón-
inn skrifaði stóra bók um för sína, skrýdda glæsilegum litmyndum,
en hann hitti hér marga að máli og heimsótti m. a. Ólaf Stephensen í
Viðey. Þeim, sem hafa gaman af að bera gamla tímann saman við þann
nýja, þykir ef til vill fróðleikur að frásögn barónsins um heimsóknina
til Viðeyjar og fer hún hér á eftir:
Við töldum það skyldu okkar að fara í kurt-
eisisheimsókn til Ólafs Stephensens leyndarráðs,
sem fyrrum var landsstjóri. Okkur var sagt að
honum væri ánægja að taka á móti okkur og
fórum við síðan heim til hans, þar sem hann
býr í eynni Viðey, sem er um það bil 3 mílur
frá Reykjavík. Húsið er byggt úr steini og er
hrörlegt að sjá að utan. Hinsvegar stendur
Iiúsið á fögrum stað milli tveggja grænna hæða
og hallar þá niður að sjónum. Vestan við það
er snotur kirkja en þar messar presturinn í
FRJÁLS VERZLUN
Reykjavík þriðju hverja viku. Utan um kirkj-
una er lítill garður umgirtur torfgarði. Bak
við húsið eru smáhýsi fyrir vinnufólk og lengra
frá fjós og fjárhús.
Gamli herramaðurinn var klæddur í einkenn-
isbúning danskra lífvarðarforingja og tók hann
á móti okkur við húsdyrnar með mikilli kurteisi
og virtist mjög ánægður yfir gestkomunni. —
Hann bauð okkur inn í stórt herbergi, en í því
voru gömul húsgögn, nokkrar stungumyndir,
mannamyndir og skuggamyndir allmargar, en
23