Frjáls verslun - 01.08.1950, Blaðsíða 13
ur. Ef til vill væri eðlilegast að fylgja opinberum
starfsmönnum algjörlega, hvað snertir kaup og kjör,
en væntanlega verður ákvörðun í þessum efnum tekin
mjög fljótlega. Þá er það ekki síður nauðsynlegt að
sameina öll verzlunarmannafélög (launþegafélög) á
landinu undir eitt merki, og ætti V. R. að hafa for-
ystu í því. Slíkt verzlunarmannasamband gæti orðið
sterkur aðili í þessum málum. Stjórn- og launakjara-
nefnd V. R. eru sér þess fyllilega meðvitandi, að fram
úr þessum málum verður að ráða fljótt og vel, og mun
ekkert látið ósparað til að svo megi takast.
Að lokum vil ég svo þakka meðnefndarmönnum mín-
um, þeim Björgúlfi Sigurðssyni, Njáli Símonarsyni,
Bjarna Halldórssyni, Einari Elíassyni, Ólafi Stefáns-
syni og Daníel Gíslasyni ágætt samstarf, en þó sérstak-
lega flyt ég formanni félagsins, Guðjóni Einarssyni og
varaformanni þess, Sveinbirni Árnasyni, mínar beztu
þakkir fyrir þau störf, sem þeir unnu í sambandi við
þessi mál.
Samningur
um launakjör verzlunarfólks milli Kaupfélags Reykja-
víkur og nágrennis og launasamninganefndar Verzlun-
arráðs íslands, fyrir hönd sérgreinafélaga kaupsýslu-
manna, annarsvegar og Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur hinsvegar. um breytingu á samningi frá 3. marz
1948.
1. gr. Allir launþegar, er heyra undir A-lið 1. og
2. flokk og B-lið 1. flokks, skulu fá greidda 15% kau])-
uppbót á grunnkaup það, sem ákveðið var með samn-
ingi áðurgreindra aðila þ. 3. marz 1948 með áorðinni
breytingu sbr. 5. gr. laga um gengisskráningu, launa-
breytingar, stóreignaskatt, framleiðslugjöld o. fl. frá
18. marz 1950, en þeir, sem heyra undir alla aðra
flokka, skulu fá 17% kaupuppbót. Kaupuppbótin
greiðist frá 1. júlí að telja, og skal greiða kaupgjalds-
vísitölu á liana sem annað kaup.
2. gr. Samningur þessi gengur í gildi, þegar rík-
isstjórnin hefur látið birta þá hækkun á álagningu, sem
lofað hefur verið.
3. gr. I stað tveggja fyrstu málsgreina 13. gr.
samningsins (aftur að orðunum: Með þessum . ..)
komi:
Samningur þessi gildir til 1. janúar 1951, en fram-
lengist sjálfkrafa verði honum ekki sagt upp af öðr-
um hvorum samningsaðila. Uppsagnarfrestur skal vera
einn mánuður.
Reykjavík, 10. ágúst 1950.
F. h. stjórnar Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis.
Sigfús Sigurhjartarson, H. Sigtryggsson, Þorl. Ottesen.
(sign.) (sign.) (sign.)
Bókadálkur
TVÆR ÞJÓÐLÍFSBÆKUR
eftir Oscar Clausen. — Ið-
unnarútgáfan.
Skyggnir íslendingar. Þessi bók geymir aragrúa
af sögnum um fyrirbæri, er skyggnir menn hafa haft
frá að segja á síðustu öldum. Sögumenn eru um 50
skyggnisgæddir menn og konur, flest hið nafnkennd-
asta af slíku fólki, og er að mörgu leyti ágætt að hafa
frásögum þessum safnað saman í eitt rit. Þær eru
margar merkilegar og sjálfsagt engin ástæða að ef-
ast um sannleiksgildi þeirra.
Ævikjör og aldarfar. Þarna rilar Oscar Clausen
fjórtán þætti um menn og málefni og tekst vel upp,
eins og hans var von og vísa. Allir eru þættirnir fróð-
legir og skemmtilegir aflestrar, lýsa flestir „ævikjörum
og aldarfari“ á síðustu öld eða byrjun þessarar. Má
þar einkum nefna ritgerð um Emil Nielsen, fyrsta fram-
kvæmdastjóra Eimskipafélagsins, tvær greinar um
Jón Sigurðsson, eina um Stefán Gunnlaugsson bæjar-
fógeta og syni hans og tvær um síldveiðar á Faxaflóa
og Breiðafirði á árum áður.
Oscar Clausen er búinn að vinna þarft verk með
fræðimennsku sinni, og er óskandi að honum gefist
enn tóm til að sinna þessum hugðarefnum sínum, því
maðurinn er orðinn hafsjór af gömlum fróðleik. Hann
hefur hið bezta lag á að skrifa alþýðleg fræði við al-
þýðuhæfi og nær þannig lífrænni tilgangi en margur
lærdómsmaðurinn, sem keyrir viðfangsefni sín í viðj-
ar freðinna röksemda og beingaddaðs stílsmáta. Osc-
ar Clausen er svo mátulega hátíðlegur í frásögn og
orðfari, þótt einstöku setning sé kannski ofurlítið
„dönskuskotin“.
Báðar ofangreindar bækur eru alls góðs maklegar.
Ytri frágangur er einnig ákjósanlegur.
F. h. Launasamninganefndar
Helgi Bergsson,
(sign.)
S. Kristjánsson.
(sign.)
Verzlunarráðs íslands.
Hjörtur Jónsson.
(sign.)
Karl Þorsteins.
(sign).
F. h. Verzlunarmannafélags Reykjavíkur.
Þórir Hall. Njáll Símonarson. Björgúlfur Sigurðss..
(sign.) (sign.) (sign.)
Ólafur Stefánsson, Daníel Gíslason, Bjarni Halldórss.
(sign.) (sign.) (sign.)
Einar Elíasson.
(sign.)
FRJÁLS verzlun
117