Frjáls verslun - 01.10.1950, Side 14
staði hið læsilegasta og flytur greinar um málefni
iðnaðarins, svo og fréttir um iðnaðarmál, innlendar
og erlendar. Á árunum 1946—49 gaf Félag ísl. iðn-
rekenda út Iðnaðarritið ásamt Landssambandi Iðnað-
armanna. Var það í raun og veru hið gamla Tímaril
Iðnaðarmanna, en hreytti um nafn meðan útgefend-
urnir voru tveir. Nú hafa þessi samtök hætt sameigin-
legri útgáfu tímarits, en Landssamband iðnaðarmanna
ákveðið að halda áfram útgáfu Tímarits iðnaðar-
manna. Er áformað, að þetta nýja blað Félags ísl.
iðnrekenda verði 4 síður hverju sinni, þéttprentað á
vandaðan pappír, birli ekki auglýsingar og fjalli ein-
göngu um mál, er verksmiðjuiðnaðinn varða. Ritstjóri
þess er Páll S. Pálsson, frkvstj. félagsins.
í septemberblaði „íslenzks iðnaðar“ er m. a. greint
frá hversu mikilvæg Marshall-aðstoðin hefur reynzt
íslenzkum iðnaði og segir þar svo: „Þegar sýnt þótti,
að alger stöðvun var framundan í þýðingarmiklum
greinum íslenzkrar iðnaðarframleiðslu á fyrri hluta
yfirstandandi árs sökum gjaldeyrisskortsins, var unnið
að því af hálfu Félags ísl. iðnrekenda, við Fjárhags-
ráð og skrifst.stj. Viðskiptamálaráðuneytisins, að leit-
að yrði eftir þvi að meðal innfluttra Marshall-vara
væru vinnsluefni til verksmiðjanna. Máli þessu var
prýðilega tekið af öllum þeim, er um það fjölluðu,
og árangurinn hefur orðið sá, að iðnaðurinn hefur
á þessu ári fengið efnivörur frá Bandaríkjunum, greitt
með Marshall-fé, fyrir rösklega 964 þús. dol!ara,“
Og ennfremur segir í greinakorni þessu: „Liggur í
augum uppi, hverja þýðingu þessi gjaldeyrislind liefur
haft fyrir iðnaðarframleiðslana, þegar aðrar voru
þornaðar, og verður vá fyrir dyrum hjá íslenzkum
verksmiðjum um útvegun efnivörunnar, eins og nú
horfir um gjaldeyrisöflun, ef eigi verður áframhalc!
leyfisveitinga fyrir efnisvörur eftir þessum leiðum."
„Frjáls verzlun“ óskar Félagi ísl. iðnrekenda allra
heilla með þelta nýja málgagn sitt.
•
HAFNFIRÐINGAR Imfa nú reist einum mesta al-
hafnamanni sínum í lok átjándu og byrjun nítjándu
aldar, Bjarna riddara Sívertsen, minnismerki í hinum
fagra skrautgarði sínum, Hellisgerði. Er þetta fagur
vottur um minningu þessa mæta manns og ætti að vera
öðrum til fyrirmyndar. Nú er röðin komin að Reyk-
víkingum að sýna sína ræktarsemi.
Langt er síðan farið var að ræða um það hér í
höfuðstaðnum, og ekki vansalaust, að Skúla fógeta
Magnússyni hefði ekki verið reist neitt minnismetki.
Má þó telja Skúla föður Reykjavíkur, þar scin Inn-
réttingar hans voru fyrsti vísirinn að hér í landnáms-
b.æ Ingólfs reis úpp kaupstaður og semna höfuðliorg
landsins.
Þetta mál hefur þó oft borið á góma meðal manna
í verzlunar- og iðnaðarstétt, en lítið orðið um fram-
kvæmdir. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur hefur nú
tekið mál þetta á sína arma og starfar nú sérstök
Bókadálkur
GENGIN SPOR. Ljóð eftir
Guðrúnu Árnadóltur frá
Oddsslöðum. — Útgefandi.:
Minningarsjóður Hlöðvers
Arnar Bjarnasonar.
Þessi bók kom út fyrir síðustu jól, og er hún eín
hinna sárfáu ljóðabóka, sem komu nýjar á markaðinn
á s.l. ári. Kvæðaskáld eru sem sé næsta óframfærin um
þessar mundir, ef ljóðhneigð og yrkisefni eru þá ekki
á annað borð mjög til þurrðar gengin.
Höfundur bókar þessarrar er rígfullorðin kona, sem
fált hcfur látið frá sér ganga á þrykk til þessa, utan
hvað hún vakti athygli á sér fyrir hlut sinn í safnrit-
inu „Borgfirzk ljóð“. Hún varð fyrir því hörmulega
áfalli á s. 1. ári, að missa einkason sinn, Hlöðver Örn
Bjarnason verzlunarmann, mesta efnispilt (sbr. minn-
ingarorð um hann í Frj. verzlun), og eftir það afhendir
hún ljóðasafn sitt til útgáfusjóði þeim, sem vinir hans
og vandamenn stofnuðu til minningar um hann.
Ljóðabókin, sem geymir u. þ. b. sextíu ljóð og stök-
ur, ber vitni um góðan smekk og tilfinningu fyrir ís-
lenzku máli og lýsir vönduðu brageyra. Ljóðin eru
mild og flest vel fáguð, ekkert bögl eða stagl, heldur
slétt og felld. Yrkisefnin eru að vísu ekki rishá eða
bragðmikil, en látlaus og viðkunnanleg. Og. þó er
töggur í ýmsu, eins og t. d. þessu niðurlagserindi kvæð-
is um „Hafið“:
Ég veit þinn hamslausa heiftarleik,
er hrynja þín fjöll í smátt
og lífin slokkna, sem logi á kveik,
er létu sér títt um þinn mátt.
Tdin stolta gnoð verður staðlaust sprek, '
hjá ströndinni b.oðinn vís.
Þá lætur höndin sitl hinzta þrek,
er hafið í æði rís.
Það hefur enginn illt af að líta yfir „gengin spor“
frú Guðrúnar, og tilefni útgáfu þeirra má vera ljóð-
elsku fólki, ekki sízt innan verzlunarstéttarinnar, hvöt
til að kaupa bókina. — Einnig að ytri gerð er vel frá
henni gengið. B. B.
Skúlanefnd á vegum félagsins til þess að vinna að
framgangi málsins. Stjórn félagsins hefur nýlegs sam-
þykkt að veita eitt þúsund krónur í minnismerkjasjóð
Skúla Magnússonar, og er nú vænzt, að ekki verði
látið staðar numið, fyrr en við höfum sýnt Skúla þá
ræktarsemi, sem hann verðskuldar. Verzlunar- og iðn-
aðarstéttirnar þurfa nú að vinna ötullega að fram-
gangi þessa máls, en láta það ekki sofna Þyrnirósa-
svefni á nýjan leik.
150
FRJÁLS VERZLUN