Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1950, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.10.1950, Blaðsíða 21
 Smásaga eftir AKSEL SANDEMOSE. Það er eins og liðið hafi hundrað ár. Lassi, Jonni og ég, og nokkrir aðrir strákar, sem ég man ekki lengur nöfnin á, lékum okkur ofan í göml- um lækjarfarvegi með háum sandbökkum á báðar hliðar. Sólin vermdi, en við grófum í sandinn og vor- um í paradís. Ég hélt mig spölkorn ofar en hinir og streittist við gröftinn, svo svitinn bogaði. Ég veit ekki til hvers við grófum þessar holur, en við gerðum það nú samt, og við vorum í sjöunda himni. Þá skeði kraftaverkið. Ut úr gryfjubarminum valt blikkdós, full af peningum. Ég rak upp siguróp, alveg ósjálfrátt og í hugsunarleysi. Lassi og Jonni voru óðar komnir á staðinn. í sannleika sagt er engu líkara en liðið hafi hundr- að ár frá þeim degi. En ennþá man ég eftir hitaólg- unni í blóðinu. Ég var búinn að grafa fjársjóð úr jörðu! Ég var æfur út í Lassa og Jonna. Ef það hefði verið Lassi einn, mundi ég hafa löðrungað hann á kjamm- ann og hlaupið síðan burt með milljónasjóðinn. En undan Jonna var ekki hægt að sleppa. Hann var fjór- tán ára; fimm árum eldri en ég. Við laumuðumst á brott frá hinum slrákunum. Lassi og Jonni heimtuðu sinn þriðjunginn hvor. Ég barðist við grátinn. Af hverju eigið þið að fá svona mikið, j>ar sem ég fann peningana? — Við verðum þá að tilkynna lögreglunni þetta, sagði Jonni niðurlútur. Þetta gerði mig spakari. En ég vildi þó hvað sem tautaði fá að opna dósina sjálfur og verða fyrstur til að uppgötva, hvað hún hafði að geyma. Því það var þó ég, sem fann hana. — Nei, þá hrifsarðu bara eitthvað frá okkur! æpti Lassi. — Við skulum heldur fara til lögreglunnar, hreytti Jonni út úr sér aftur. Ég ríghélt dósinni upp að mér og óskaði að þessir tveir óþokkar féllu dauðir niður á stundinni. Nú skildi ég til fullnustu alla sjóræningjana, sem sjálfir vildu halda ránsfengnum óskiplum; karla eins og Kid skip- stjóra og Morgan . . . Allt í einu fékk ég örvæntingarfulla hugmvnd: Ha- ha! Nú narra ég ykkur laglega! Það var ég sjálfur, sem gróf dósina jiarna, og hún er full af ryðguðum nöglum! En í sama bili laust niður annarri hugsun, og ég stóð eins og negldur við jörðina. Hvílík ógurleg skelf- ing! Auðvitað voru í dósinni eintómir ryðgaðir nagl- ar. Jonni vatt sér alveg að mér með soltnum og undir- förulum augum. Mér var öllum lokið. I dósinni voru fjórar krónur níutíu og tveir aurar í koparpeningum — líklega svo jretta sýndist þeim mun stærri fjársjóður. Þetta var líka mikil fúlga. Hún nam hærri upphæð en afrakstur minn af blaðasölu á heilum mánuði, en þá peninga tók pabbi í sína varð- veizlu. Meðan við sátum þarna og töldum milljónirnar, tók ég eftir því, að neðst í dósinni lá samanbrotinn ]ja])])ír. Peningaseðlar! En því var ekki að heilsa. Þetta var blóði atað skjal, með áteiknuðum drekahaus- um, krosslögðum lærleggjum og djöfullegum hótun- um. Okkur skildist reyndar, að þetta væri ekki svo hættulegt, en við gerðum úr jressu leik og mösuðum hvískrandi um Kid skipstjóra . . . og við gutum horn- auga hver til annars, eins og sannkölluð fúlmenni, og hugðum á manndráp, til að ná fjársjóðnum í eigin hendur. En að baki j>essu öllu lá önnur nagandi hugsun. Nei, ekki var j)að hugsunin um veslings drenginn, sem nú hafði glatað fjársjóði sínum. Börn væru miklu minna aðlaðandi, ef þau findu alltaf til sársauka, j)eg- ar aðrir verða fyrir mótlæti. Það var fyrst eftir fjölda mörg ár, að ég gat gert mér grein fyrir þeirri tak- markalausu hryggð, sem hlotið hefur að gagntaka hann, þegar hann komst að raun um að fjársjóðurinn var á bak og burt. Hver veit nema þessir fátæklegu koparskildingar væru árangur margra ára erfiðrs og sparnaðar . . . og svo draumur um fólginn fjársjóð — Það er talað um að grafa pund sitt í jörðu! Herra minn trúr; — þarna hefur litli sjóræninginn trúlega legið í leyni í lækjarfarveginum margan sumardag, vopnaður trésverði og með fjaðurskrýddan pappírs- hatt á höfðinu, og haldið vörð um fjársjóðinn. Og svo FRJÁLSVERZLUN 157

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.