Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1950, Blaðsíða 17

Frjáls verslun - 01.10.1950, Blaðsíða 17
Sigbjörn Artnann kaup- maður í Reykjavík andað- ist 14. ágúst s.l., og hafði þá kennt sér meinsemdar um nokkurra ára bil. Sigbjörn fæddist 12. nóv- ember 1884 á Vestdalseyri við Seyðisfjörð, og voru foreldrar hans Ármann Bjarnason verzlunarstjóri frá Viðfirði og kona hans, Katrín Sigfúsdóttir. Hann fluttist ungur með foreldr- um sínum til Stykkishólms, en þar tók faðir hans við stjórn Tangsverzlunar. Var ætlunin að Sigbjörn gengi menntaveginn og gekk hann í fyrsta bekk Latínuskólans í Reykjavík, en að því búnu hælti hann námi. vegna fremur þröngs fjárhags föður lians. Gerðist hann þá verzlunarþjónn hjá Thomsensverzlun og var þar nokkra liríð. Þaðan fór liann til ísafjarðar og vann þar hjá Jóni Laxdal tónskáldi, sem þá var verzlunarstjóri vestra. Árið 1907 sigldi Sigbjörn til Þýzkalands og hugðisl stofna þar viðskiptafirma, er annast skyldi verzlun milli íslands og Þýzkalands, en sú.fyrirætlun náði ekki fram að ganga með ærkilegum árangri. Svo hann vendi sínu kvæði í kross, hélt til Ameríku, sett- ist að í New York og bjó þar um tíu ára skeið. Árið 1917 kom Sigbjörn heim aftur og stofnaði þá heildverzlun með hróður sínum, Ágúsli, en í verðfall- inu mikla eftir heimsstyrjöldina fyrri biðu þeir stóran hnekki og urðu að leggja við kipti sín niður. Eftir þetta sneri Sigbjörn sér að íshúsrekstri og flutti þá ísfisk í kössum til Englands. Var hann upphafsmaður að slíkri útflutningsverzlun. Þegar stofnað var til happdrættis Háskóla Islands fyrir nær 20 árum, gerðist hann ásaml Stefáni A. Páls- syni umboðsmaður þess og stundaði það starf æ síðan. Ymislegt fleira fékkst Sigbjörn Ármann við um dag- ana. Hann var t. d. ákafur stuðningsmaður laxaklaks og hverskonar laxveiðimenningar. Lagði hann á sig gríðar mikla vinnu í þessum tilgangi, án þess að skeyta um persónulegan hagnað. Þá lét hann mikið til sín taka })jóðfélagsmálin og var öflugur málsvari persónu- legs alhafnafrelsis og sjálfstæðis lands og þjóðar. Hann var fastur fyrir og ákveðinn í hverju því máli. er átti fylgi hans, og talaði hreint úr pokanum við hvern, sem í hlut átti. Var einlægnin og festan þannig eitt höfuðeinkenni Sighjarnar, en jafnframt var liann tíðast léttur í skapi og hressilegur og mikill vinur vina sinna. — Sigbjörn var félagi í Verzlunarmanna- félagi Reykjavíkur um langt árabil, var tíður gestur á fundum }iess og lét þá oft í Ijós skoðanir sínar á málefnunum. Sigbjörn var kvæntur Pálínu Sæmundsdóttur, og lifir hún mann sinn ásamt tveim börnum þeirra hjón- anna. Helgi Helgason verzlun- arstióri hjá Zimsensverzlun í Reykjavík andaðist 4. september s.l. Hann var fæddur 27. maí 1876 í Móakoti í Garða- hreppi, sonur hjónanna Helga Guðmundssonar bónda þar og Rannveigar Magnúsdóttur. Ólst hann upp hjá Jóni Mathiesen fiskimatsmanni í Hafnar- firði allt fram til 18 ára aldurs, er hann flutti til Reykjavíkur. Hafði hann áð- ur útskrifast úr Flensborgarskólanum. I Revkjavík gekk Helgi í þjónustu Zimsensverzlunar, og eftir það FRJÁLSVERZLUN 153

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.