Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1958, Blaðsíða 8

Frjáls verslun - 01.06.1958, Blaðsíða 8
Ljóst er, að beinir skattar skipta ekki miklu máli í tekjuöflun ríkissjóðs. Þeir námu bæði í reikningum ársins 1950 og fjárlögum ársins 1958 um 15% af heildartekjum. Af beinum sköttum til ríkisins voru skattar frá hlutafélögum og samvinnufélögum um 17% á árinu 1956. Þeir voru því aðeins 2%—3% af heildartekjum ríkissjóðs. 2. Bæjarsjóður Reykjavíkur Andstætt því, sem gildir um ríkissjóð, er tekna Reykjavíkurbæjar aflað að langmestu leyti með beinum sköttum. Arið 1956 voru lagðar á 170 millj. kr. í sköttum, og þar við bættist 5 millj. kr. hlutdeild bæjarins í stríðsgróðaskatti. Sam- anlagt námu þessir skattar yfir 90% af heildar- tekjum bæjarsjóðs. Og jafnvel þótt reiknað sé í krónum eru skattar Reykjavíkurbæjar talsvert hærri upphæð en beinu skattarnir til ríkissjóðs. Utsvör fyrirtækja til bæjarins voru 34 millj. kr. árið 1956 (þar af 3 millj. kr. frá samvinnu- félögum) að ótalinni hlutdeild þeirra í stríðs- gróðaskatti. Fyrirtækin í Reykjavík greiddu á sama ári 12 millj. kr. í skatta til ríkissjóðs, þann- ig að skattálagning bæjarins er af allt annarri stærðargráðu en álagning ríkisins. Þess ber að geta, að útsvör fyrirtækja til Reykjavíkurbæjar hafa farið ört vaxandi á und- anförnum árum. Alagðir skattar þeirra námu 23 millj. kr. 1955, 34 millj. kr. 1956 og 41 millj. kr. 1957, að frátalinni hlutdeild í stríðsgróða- skatti. D. SKATTLAGNINGIN f NOKKRUM ATVTNNU- GREINUM Taflan á næstu síðu sýnir áhrif skattlagn- ingar ársins 1957 til ríkis og Reykjavíkurbæjar á fyrirtæki í nokkrum þýðingarmiklum atvinnu- greinum. Tölurnar eru samkvæmt upplýsingum, sem opinberar skrifstofur hafa góðfúslega látið mér í té. Hreinar tekjur samkvæmt töflunni eru teknar úr yfirliti, sem skattayfirvöldin í Reykja- vík hafa gert. Það er ekki fyllilega ljóst, hvort þessar tekjur voru lagðar til grundvallar við skattálagninguna til ríkisins og bæjarins. í töflunni er ekki meðtalinn eignarskattur til ríkisins, sem draga má frá við ákvörðun hreinna tekna. í sköttunum til ríkisins er innifalið tekju- skattur, eignarskattur og kirkjugarðsgjald; í sköttunum til bæjarins tekjuútsvar, eignarút- svar og veltuútsvar. Veltuútsvarið er sýnt eins og það var áður en leiðrétting fór fram á heildar- útsvari. Taflan sýnir, að heildarskattálagning fyrir- tækja í viðkomandi atvinnugreinum nam til jafnaðar 98% af uppgefnum hreinum tekjum. Skattaálagið er frá 58% upp í 1766%. Síðari hlut- fallstalan á við skipafélögin, þar sem stærsti skatt- liðurinn er eignarútsvar. Heildarskattar fara einn- ig yfir 100% hjá frystihúsum, flugfélögum, olíu- félögum og stórútgerðarfélögum. Skattarnir nema yfir 90% í 10 af 18 meðtöldum atvinnugreinum. Af heildarsköttum í þessum atvinnugreinum er hlutur ríkisins 40% og hlutur bæjarins 60%. Á öll fyrirtæki í Reykjavík voru á árinu 1957 lagðir alls 31.647 þús. kr. skattar til ríkisins og 40.649 þús. kr. til bæjarins, þ. e. samtals 72.296 þús. kr. Skattskyldar tekjur fyrirtækjanna eru af bænum taldar vera 75.654 þús. kr. í þessari upphæð eru þó ótaldar tekjur nokkurra fyrir- tækja, sem ekki skiluðu framtali og lagt var á samkvæmt mati. Útsvör þessara fyrirtækja námu 4% af heildarútsvörum allra fyrirtækja. E. NOKKUR ALMENN SJÓNARMH) VARÐANDI SKATTLAGNINGU FYRIRTÆKJA Skattar voru áður fyrr lagðir á í því skyni einu að afla tekna til þess að standa straum af útgjöldum ríkis og sveitarfélaga, en gegna nú miklu víðtækara hlutverki. Meðan skattstig- arnir voru hlutfallslega lágir miðað við tekjur, hafði skattálagningin ekki eins víðtæk áhrif og nú á atvinnuvegina og þjóðarbúskapinn í heild. Samhliða aukningu opinberra útgjalda hefur vaxandi hluti tekna skaltgreiðenda verið inn- heimtur í skatta. Þetta hefur leitt til þess, að skattlagningin hefur haft vaxandi áhrif á þjóðar- búskapinn, og henni er nú beitt sem þýðingar- mikluin þætti í opinberum efnahagsráðstöfun- um. Tímabilið frá stríðslokum hefur almennt ein- kennzt af efnahagslegri velmegun, aukinni neyzlu og fjármunamyndun, ónógum sparnaði og meira eða minna öflugri verðþenslu. Skattálagningin er orðin eitt af þeim tækjum, sem ríkisvaldið hefur beitt til þess að reyna að koma á jafnvægi í efnahagsmálum. Þetta gildir bæði um skatt- lagningu einstaklinga og fyrirtækja. í fyrra til- fellinu getur skattlagningin haft áhrif á neyzlu einstaklinga og sparnað þeirra, í síðara tilfellinu 8 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.