Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1965, Blaðsíða 3

Frjáls verslun - 01.06.1965, Blaðsíða 3
læknir verður ætíð að vera reiðubúinn. Hann verð- ur að vera viss um að hann sjúkdómsgreini sjúkling- inn rétt, og liið sama gildir um okkur. Ef við ber- um ekki kennsl á einkenni viðskiptavina okkar, hvernig gætum við hjálpað þeim?“ Bachmann talar hratt, en skýrt og öruggt. Lítils- háttar íslenzks hreims gætir. Þegar hann talar, tott- ar hann gjarnan vindil, ellegar veifar honum til áherzlu orða sinna. Hann missir aldrei af neinu því, sem fram fer í skrifstofunni hvern vinnudag, og hann notar líka hvert tækifæri til þess að líta á tölurnar um hlutabréfaverð, sem sjá má frá skrif- borði hans gegnum glervegginn. ISM: Við höfum heyrt að þér séuð einn dugmesti sölumaðurinn í verðbréfaviðski])tunum i dag. Hvað er það, sem gerir yður svo áhugasaman í starfi yðar? BACHMANN: Þessi geysimikla hlið viðskipta- lífsins hefur töfrað mig. Það er alltaf eitthvað að gerast. Við störfum að því að auka peninga fólks, og þegar það gerist, hefur það mikil áhrif á mann. Sem verðbréfasali að atvinnu kemst maður að raun um mikilvægi þess að reyna að vinna að fullkomn- un, færa fórnir og vera hreinskilinn. í þessu starfi verða menn að fylgjast með öllu því, sem er að ger- ast í þessum þætti viðskiptalífsins, í landinu og raunar í heiminum öllum. Ég liefi starfað að þessu í sjö ár, og verðbréfaviðskiptin eru mér í dag jafn spennandi og fróðleg og þau voru fyrsta daginn. ISM: Komuð þér til Bandaríkjanna fyrir sjö ár- um? BACHMANN: Nei, ég fór frá íslandi 1954, fyrir 11 árum. Ég var 23 ára gamall, og eirðarlaus. Ég vann í banka í Reykjavík. ISM: Ráðgerðuð þér að stunda verðbréfaviðskipti í Bandaríkjunum? BACIIMANN: Nei, alls ekki. Ég vissi ekkert um verðbréfaviðskipti, enda þekkist slíkt ekki á íslandi. Flestöll viðskipti þar eru rekin af ríkiseinokunum, og hlutirnir eru þar mjög ólíkir því, sem hér gerist. í raun og veru hljómar koma mín til Bandaríkj- anna einsog kafli úr melódrama-leikriti. Mér leidd- ist í bankanum. Dag einn kallaði bankastjórinn mig inn til sín og sagði: „Jón, þú eyðir tímanum til ónýtis í Reykjavík. Við skulum lána þér peninga til að fara til Bandaríkjanna.“ ISM: Hafði hann eitthvað sérstakt í huga — eða vissuð þér hvað þér vikluð í þessum efnum? BACHMANN: Ég var viss í minni sök. Ég sótti um styrk til Menntamálaráðs til viðbótar láninu. „Tími er ekki peningar. Tími er hagnaður." „Persónulegt samband er mesta sölutæki mitt." „Ég skildi fólkið alltaf, en það skildi mig ekki aUtaf." FRJÁLS VERZLUN 3

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.