Frjáls verslun - 01.06.1965, Page 13
amia um 281 millj. kr. Jafnframt minnkuÖu stutt
erlend vörukaupalán innfiytjenda um 78 millj. kr.,
enda var á miðju árinu afnumin heimild til notkun-
ar slíkra lána við innflutning á fjölmörgum vörum,
til þess að draga úr áhrifum þeirra innanlands. Þar
sem innflutningur skipa og flugvéla var að mestu
greiddur með erlendum lánum, snerti hann iítið
gjaldeyrisstöðuna, lieldur jukust erlendar skuldir
einkaaðila til langs tíma. A hinn bóginn minnkuðu
opinber lán nokkuð.
Staða bankanna í frjálsum gjaldeyri batnaði að
mun á sl. ári, en á viðskiptunum við Austur-Evrópu-
löndin varð halli, og mynduðust skuldir við sum
þeirra. Þetta varð til þess, að undir árslokin voru
athugaðir möguleikar á aukningu frílistans. Ýtar-
legar viðræður fóru fram við viðskiptamálaráðu-
neytið og milli samtaka verzlunar og iðnaðar inn-
byrðis, og sendu þau ráðuneytinu sameiginlcga álits-
gei'ð.
Ilinn 29. janúar birti viðskiptamálaráðuneytið
nýja reglugerð um gjaldeyris- og innflutningsleyfi,
sem fól í sér allmikla aukningu á frílistanum og
auglýsingu um innflutningskvóta með hækkunum
á upphæðum margra liða. Helztu vörur, sem bætt
var á frílistann voru þessar: Niðursoðinn fiskur,
ávaxtapulpa, gúmmígólfdúkur, linoleum, þakpappi,
flóki, prjónaður ytri fatnaður úr baðmull, hlutar til
mannvirkja úr járni og stáli, miðstöðvarofnar og
katlar, málmsmíða- og trésmíðavélar og hlutar,
leikföng, blýantar, krít og ýrnsir smærri liðir. Þá
voru um leið auglýstar vörur, sem bættust við frí-
listann 1. júlí sl.: prent- og skrifpappír og pappírs-
vörur, baðmullarvefnaður, borðbúnaður úr leir,
postulíni og gleri, naglar og ritvélar.
Innflutningskvótar voru auknir mest á eftirtöld-
um vöruflokkum: byggingarplötur ýmis konar, gólf-
teppi, sokkar, gúmmískófatnaður og húsgögn.
Þegar litið er á þróun efnahags- og gjaldeyris-
mála á þessu ári, svipar henni um margt þróuninni
á sl. ári, þótt ekki sé hún eins liagstæð. Þorskaflinn
er um 23% minni en í fyrra, en hann hefur nýtzt
betur, og verðþróunin á mörkuðum erlendis hefur
orðið hagstæð. Síldaraflinn fyrir norðan og austan
hefur nú náð sama marki og um þetta leyti í fvrra,
og eru horfur taldar góðar á áframhaldi veiðanna.
Síldaraflinn við Suður- og Vesturland er meira en
tvöfaldur á við sama tíma í fyrra, og þar til kemur
loðnuaflinn, sem hefur fimmfaldazt.
Útflutningurinn til ágústloka sl. nam 3300 millj.
kr., en það er 15,4% meira en á sama tíma í fyrra.
Birgðaaukning útflutningsafurða er þó um 400 millj.
kr. minni. Sé birgðaaukningunni bætt við útflutn-
inginn hvort árið, fæst nokkur bending um fram-
Ieiðsluverðmæti útflutningsins og er niðurstaðan sú,
að aðeins um rúmlega 1% aukningu er að ræða.
Innflutningurinn til ágústloka er rúmlega 5%
meiri en á sama tíma í fyrra, en minni innflutningur
fiskiskipa vegur þar allmikið. Sé innflutningur flug-
véla og skipa dreginn frá, nemur aukning innflutn-
ingsins um 10%.
Gert er ráð fyrir, að innflutningur skipa og flug-
véla á þessu ári verði 350—400 millj. kr. minni en
á sl. ári. Ennfremur er búizt við, að jöfnuður af svo-
nefndum duldum tekjum og gjöldum í erlendum
gjaldeyri verði hagstæðari. Með hliðsjón af þessu
má ætla, að greiðsluhallinn verði minni í ár en í
fyrra.
Gjaldeyriseign bankanna í heild nam i lok ágúst-
mánaðar 1811 millj. kr. og hefur hún aldrei verið
meiri. Frá ársbyrjun hefur hún aukizt um 218
millj. kr., og á sama tíma hafa birgðir útflutnings-
afurða aukizt um 170 millj. kr. Hins vegar hafa
stutt erlend vörukaupalán aukizt um 202 millj. kr.
Á sarna tímabili 1964 var aukning þeirra 91 millj kr.
Aukning gjaldeyrisforðans er fólgin í frjálsum
gjaldeyri, en staðan í vöruskiptagjaldeyri hefur
versnað ,og töluverð skuld myndazt við jafnkeypis-
löndin. Þetta er framhald þeirrar þróunar, sem átti
sér stað á sl. ári og reyndar áður. Jafnframt hafa
Austur-Evrópulöndin sýnt minnkandi áhuga á vöru-
skiptasamningum, en vilja heldur verzla á frjálsum
grundvelli. Allar horfur benda því til þess, að unnt
verði að auka frílistann að verulegum mun um
næstu áramót.
Hin hagstæða þróun peningamála á sl. ári hefur
haldið áfram á þessu ári. Á sl. ári snerist afstaðan
milli sparifjáraukningar og útlána í hagstæða átt,
og peningastofnanir styrktu mjög aðstöðu sina
gagnvart Seðlabankanum. Bundnar innstæður voru
þar þyngstar á metunum, og átti aukning þeirra
drýgstan þátt í að draga úr þensluáhrifum frá halla
ríkissjóðs og hinum stórauknu gjaldeyriskaupum,
jafnframt því sem hún styrkti gjaldevrisstöðu lands-
ins.
Á þessu ári hefur haldizt hagstætt hlutfall milli
útlána og sparifjárinnlána, og staða peningastofn-
ana styrkzt gagnvart Seðlabankanum, þótt ekki sé
það í sama mæli og á sl. ári. Bundnar innstæður
hafa aukizt heldur meira til ágústloka í ár en á
sama tíma i fyrra. Aukning almennra innstæðna
FRJÁLS VERZLUN
13