Frjáls verslun - 01.09.1969, Qupperneq 9
FRJÁLS VERZLUN
9
Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri.
„Ég vil á þcssu stigi ekki hugsa um
annað en að Sjálfstæðisflokkurinn haldi
meirihluta sínum í Borgarstjórn Reykja-
víkur. Ef svo illa fer, að þessi meirihluti
glatist, þá hlýtur það að vera dómur
kjóscnda, að stefna Sjálfstæðisflokks*
ins hafi ekki verið rétt eða ekki vel unn-
ið að framkvæmd hennar. Virðist því
eðlilegast, að stefnumörkun eftir kosn-
ingar breytist og aðrir taki vlð stjóm,
að fengnum slíkum úrslitum."
nefndum framkvæmdum, sem kostaðar eru af
borgarsjóði, má nefna:
Til nýrra gatna og holræsa verður varið 187
millj. kr. á árinu. Gatnakerfi borgarinnar er nú
182 km., þar af 73% malbikað eða steypt. En það
svarar til þess, að nú hefur mestur hluti allra full-
byggðra hverfa götur með varanlegu slitlagi, en
hingað til hefur ekki verið talið ráðlegt að full-
gera götur, fyrr en hverfin eru fullbyggð. Þó eru
uppi ráðagerðir um að setja malbiksslitlag á þessu
eða næsta ári í götur í nýjum hverfum, áður en
húsbyggingar hefjast.
Til skólabygginga eru ætlaðar á fjárhagsáætlun
1969 70 millj. kr. En unnið er nú að framkvæmd-
um við 5 skóla:
Álftamýrarskóli .. .... 5.500 m3 lokið 1969
Árbæjarskóli .... .... 9.800 — — 1971
Ármúlaskóli .... 8.200 — — 1970
Vogaskóli 1970
Breiðholtsskóli .. . .... 25.500 — — 1971
Alls 64.000 m3
Á næstu tveimur árum munu því bætast skólahús-
næði sem nemur 64.0000 ml En nú eru í notkun
skólar, sem samtals eru 186.000 m3 að stærð, og
þá er auðvitað Miðbæjarskóli ekki talinn með.
Verður því um 34% aukningu húsnæðisins að
ræða.
Þá ber þess að geta, að borgarsjóður keypti á
síðasta ári húseignina Skaftahlíð 24, sem nú heit-
ir Tónabær. Þar er nú rekin starfsemi fyrir æsku-
lýðinn og aldraða, eftir að nauðsynlegar breyÞ
ingar voru gerðar.
Á Miklatúni er unnið að byggingu listamiðstöðv-
ar fyrir höfuðborgina. Húsin verða fokheld í vet-
ur. Þau eru yfir 13.000 m3. Fyrri salurinn verður
tekinn í notkun næsta vor, en fullgert á húsið að
vera um önnur áramót. Borgarsjóður leggur 10
millj. kr. til framkvæmdanna á þessu ári.
Unnið er að lokaframkvæmdum við Borgarspit-
alann, en kostnaður frá upphafi er orðinn nær 400
millj. kr. með áhöldum, tækjum og innbúi. Stærð
hans er 55.000 m3.
Við Sólheima er nú að ljúka framkvæmdum við
leikskóla og dagheimili, og í undirbúningi eru fram-
kvæmdir við leikskóla og dagheimili í Breiðholti.
En alls áætlast 21.5 millj. kr. til barnaheimila á
þessu ári.
Til íþróttamála er á árinu varið 17 millj. kr. Ber
þar hæst stækkun áhorfendastúku við íþróttavöll-
inn í Laugardal og bygging þaks, sem lokið verð-
ur við næsta vor, svo og er unnið við ýmsan frá-
gang við sundlaug og íþróttahöllina í Laugardal.
Þá má geta þess, að víðs vegar um borgina er
unnið að gerð leiksvæða fyrir börn og framkvæmd-
um við gæzluvelli í nýjum hverfum.
Gerð er svo ráð fyrir, að innan skamms hefjist
framkvæmdir við hjúkrunarheimili og íbúðir fyr-
ir aldraða, auk þess sem borgin mun standa að