Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1969, Síða 15

Frjáls verslun - 01.09.1969, Síða 15
FRJÁLS VERZLUN 15 TÆKNI — NÝJUNGAR TVEGGJA MANNA LOFTPÚÐATÆKI Fyrirtæki í Kaliforníu hefur nú sett á markaðinn farartæki, sem „flýtur“ yfir yfirborðinu á loft- púða, á sama hátt og loftpúða- farartæki það, sem reynt var hér á landi í fyrra. Ekki er þetta bátur, ekki bíll og ekki flugvél, svo við skulum nota orðið farartæki. Kallar fyrir- tækið þetta fyrirbæri Airscat. Farartæki þetta kostar þar vestra fullbúið 3695 dollara eða rúmar 300 þúsund krónur. Vélin er venjuleg 45 hestafla Volks- wagenvél, sem tryggir að viðhald og rekstur á að vera einfalt. Mjög einfalt er að aka Airscat. Eitt handfang stjórnar bæðistefnu og hraða. Tvær loftskrúfur eru í farartækinu, önnur, sem heldur því á lofti og hin, sem drífur það áfram. Drifskrúfan er með breyt- anlegum skurði til að bakka. Airscat er 51 fet á lengd, 300 kíló að þyngd og ber um 200 kíló. Rúm er fyrir tvo menn. Á vatni er hámarkshraði 55 kílómetrar á klukkutíma og nokkru minni á landi. Airscat flýtur um hálft fet yfir jörðu eða vatni. Hér er um að ræða fyrsta loft- púðafarartækið, sem selt er á al- mennum markaði, á verði, sem er ekki hærra en svo, að möguleiki er að selja nokkurt magn. Fyrst og fremst munu það vera veiðimenn, sem kaupa tækin, enn sem komið er. Fyrsta loftpúðafarartæk- ið á almennum niarkaði. LANDBUNAÐUB OFFRAMLEIDSLA LANDBIÍNAÐARVARA HÆTTULEG Landbúnaðarráðherrar þess 21 lands, sem er aðili að Efna- hagssamvinnustofnun Evrópu — OECD —, hafa varað við þeim hættum, sem fylgja offramleiðslu á landbúnaðarafurðum. Á fundi þeirra í nóvember 1968 var fjallað um áætlanir fyrir ár- in 1975 til 1985, sem gáfu til kynna, að mjög alvarleg offram- leiðsla yrði á landbúnaðarvörum í þessum ríkjum, ef sömu land- búnaðarstefnu væri fylgt, sérstak- lega yrði offramleiðsla mikil á kornvörum. Hefur framleiðsla á mörgum matvörum í Evrópu vaxið mun hraðar en markaðurinn, jafnvel þó tekinn sé með í reikninginn útflutningur út fyrir svæðið. Al- varlegir erfiðleikar hafa myndazt í sölu landbúnaðarafurða. Meira að segja hefur stundum myndazt samkeppni á milli ríkisstyrktra matvæla frá mismunandi löndum. Tvær meginástæður eru fyrir þessari miklu framleiðslu. Önnur er aukin tækni í framleiðslunni, sem gerir mögulega stóraukna framleiðslu á hvern mann, sem vinnur við hana. Hin er margvís- legir styrkir og niðurgreiðslur, sem halda verði hærra en mark- aðurinn myndi leyfa, ef hann væri frjáls. Ráðherrarnir bentu á, að hér væri ekki um að ræða tímabund- ið ástand, heldur virtist allt benda til, að það yrði varanlegt, nema gripið yrði til róttækra ráðstaf- ana nú þegar. Bar þeim saman um, að vandamálið yrði því verra, sem lengra liði, án þess að nokk- uð væri að gert.

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.