Frjáls verslun - 01.09.1969, Blaðsíða 17
FRJALS VERZLUN
17
Karlmannafötin frá FÖT H.F. skipa öruggan sess
á markaðnum, enda áherzla lögð á góð efni,
vandað og smekklegt útlit.
Ragnar Guðmundsson
Laugavegi 39.
í verzlun Andersen & Lauth,
FYRIRTÆKI
FÖT H.F. - ANDERSEN & LAUTH H.F.
FRJÁLS VERZLUN kynnir hér einn viðurkenndasta karlmanna-
fataframleiðanda landsins og sölufyrirtœkið — hina vinsœlu
verzlun Andersen & Lauth.
Andersen & Lauth h.f. er fyr-
ir löngu orðið vel þekkt fyrirtæki,
enda stendur það á gömlum merg.
Karlmannaföt hafa frá öndverðu
verið helzta söluvara verzlana
fyrirtækisins, en nú rekur Ander-
sen & Lauth tvær karlmanna-
fataverzlanir; aðra á Vesturgötu
17, en hina á Laugavegi 39. And-
ersen & Lauth er systurfyrirtæki
Föt h.f., sem framleiðir árlega
mikið magn karlmannafata, sem
seld eru víða um land, auk þess
sem þau eru á boðstólum í verzl-
ununum tveimur.
Árið 1913 stofnaði danskur
klæðskeri fyrirtækið L. Andersen,
sem veitti alla þá þjónustu við-
víkjandi karlmannafötum, sem
þá tíðkaðist í Reykjavík. Árið
1918 gerðist Skotinn O. J. Lauth
félagi Andersens í fyrirtækinu,
og hlaut það þá nafnið Ander-
sen & Lauth. Var fyrirtækið gert
að hlutafélagi árið 1935. Föt h.f.
var stofnað árið 1942, en Föt h.f.
keypti hlutafélagið Andersen &
Lauth árið 1944. Stjórnarformað-
ur Föt h.f. frá upphafi og Ander-
sen & Lauth frá 1944 hefur verið
Helgi Eyjólfsson.
Verzlanir Andersen & Lauth
eru í glæsilegum húsakynnum.
Þótt verzlunin á Laugaveginum sé
í hjarta verzlunarhverfis borgar’
innar, hefur mörgum ekki þótt
síðra að koma á Vesturgötu 17,
en í sannleika sagt er sú verzlun
ein þeirra skemmtilegustu í að
koma í allri Reykjavík. Húsnæð-
ið á Vesturgötunni hefur tvisv-
ar sinnum verið stækkað og er
nú mjög rúmgott. Um þessar
mundir er einnig unnið að
stækkun húsnæðisins að Lauga-
vegi 39.
Verzlanirnar selja svo til ein-
göngu „ARISTO“ karlmannaföt
frá Föt h.f. Þar eru þó einnig fyr-
irliggjandi flestar þær fatnaðar-
tegundir, sem karlmenn þarfn-
ast, aðrar en skór, og einnig má
þar fá snyrti- og gjafavörur fyr-
ir karlmenn. í verzlununum vinna
7 manns. Meðal þeirra vöruteg-
unda, sem verzlanirnar bjóða
upp á, eru Angli-skyrtur, en Angli
er aðal skyrtutegundin, sem þar
faest. Af þeim vörutegundum, sem
verzlanirnar hafa einar, má
nefna Scott karlmannahatta, sem
mjög voru þekktir fyrir fáum ár-
um, og Peter Scott ullarpeysur,
ásamt sumarfatnaði frá Mara-
thon fyrirtækinu. Þá hafa verzl-
anirnar sölumboð fyrir karl-
mannafrakka frá verksmiðjunni
Elg.
Aðspurðir kváðust forráðamenn
fyrirtækisins leggja sig fram
um að kynna fyrir starfsfólki sínu
fataefnin og þá vöru, sem í verzl-
ununum væri til sölu til þess að
geta sem bezt liðsinnt viðskipta-
vinunum um vöruval.
Föt h.f. framleiðir eingöngu
karlmannajakkaföt, stakar bux-
ur og jakka. Kváðust forráða-
mennirnir hafa tekið þá ákvörð-
un, eftir nokkra yfirvegun, að
bezt væri að starfa á sem
þrengstu sviði, til að góður árang-
ur væri fremur tryggður.
Árlega sendir fyrirtækið menn
erlendis til að kynna sér nýjustu
tízku í karlmannafatnaði, og gera
þeir innkaup um leið, í samræmi
við það sem fyrir augu hefur
borið. Föt h.f. framleiðir föt
fyrir karlmenn á öllum aldri, en
hvað táningatízkunni viðvíkur,
hefur ekki verið framleitt sam-
kvæmt tízkustraumum hvers