Frjáls verslun - 01.09.1969, Blaðsíða 19
FRJÁLS VER2LUN
19
tíma nákvæmlega, heldur reynt
að mætast á miðri leið, ef svo má
að orði kveða.
Þess má geta, að fyrirtækið
hefur tvö undanfarin ár framleitt
„smóking‘-föt fyrir nýstúdent.a
Menntaskólans við Lækjargötu, og
hefur sú vara líkað vel.
40—50 manns vinna hjá Föt
h.f., þar af 3 klæðskerar. Fyrir-
tækið hefur á sínum vegum mjög
hagan sniðmeistara, Kristján Óla-
Frá fatasýningu fyrir nokkrmn ár-
um
son, sem fylgist reglulega með
því, sem fram fer úti í heimi á
sviði karlmannafatnaðar, og inn-
leiðir hann það hérlendis með
sniðum sínum hjá Föt h.f. Efni
þau, sem fyrirtækið notar, eru að
lang mestu leyti frá Englandi, en
einnig kaupir það nokkuð af efn-
um frá Þýzkalandi, Hollandi og
Svíþjóð. Mest er framleitt úr uli-
arefnum, sem nú eru aftur að
sækja á, eftir mikla notkun gervi-
efnanna, og aðaláherzla lögð á
efnisgæði.
Föt h.f. skiptir reglulega við
viðskiptavini á Akureyri, ísafirði,
Keflavík, Vestmannaeyjum og
Ólafsvík, en auk þess selur fyr-
irtækið föt til fjögurra verzlana
í Reykjavík, auk verzlana Ander-
sen & Lauth.
í verksmiðju Föt h.f. er æ meira
unnið eftir reglum um ákvæðis-
vinnu, og þykir forráðamönnun-
um það bæta framleiðslu og fram-
leiðsluafköst. Þá tekur fyrirtæk-
ið innan skamms í notkun nýja
tækni við framleiðslu á fötum,
en hún byggist á því, að í stað
þess að þræða millifóður í fötin,
er flutt inn ný tegund millifóðurs,
sem límt er við ytra byrði fat-
anna, en þessi aðferð geiúr það
að verkum, að fötin halda mun
betur lögun.
Sem stendur, eru svo til ein-
göngu framleidd lagersaumuð föt
hjá Föt h.f., en í þeim tilfellum,
er menn ekki geta fengið viðun-
andi fjöldasaumuð föt, eru þau
saumuð eftir máli hvers og eins.
6—8 mánaða afgreiðslufrestur
er á þeim efnum sem verksmiðj-
an kaupir til framleiðslunnar frá
útlöndum, og þarf því ávallt að
áætla gerðir efnis og efnismagn
frarn í tímann. Hjá fyrirtækinu
starfar því sérstök nefnd, sem
annast áætlun fyrir hverja árs-
tíð fyrir sig; áætlar gerð og magn.
Föt h.f. hefur tekið þátt í inn-
lendum fatakaupstefnum, og
kváðu forráðamenn fyrirtækisins
kaupstefnurnar ánægjulega þró-
un og dýrmæta reynslu fyrir
fataframleiðendur að taka þátt í
þeim.
Föt h. f. selur karlmannaföt und-
ir vörumerkinu ,,ARISTO“ og
buxur undir merkinu „ATHOS“.
BLDM.
BLDMASKREYT-
iNGAR.
GJAFAVÚRUR.
□ PIÐ FRÁ KL. 9 F.H.
TIL KL. 1 □ E.H.
ALLA DAGA
BLÓMABÚÐIN
DÖGG
ÁLFHEIMAR 6
SÍMI 33978
REYKJAVÍK