Frjáls verslun - 01.09.1969, Side 21
FRJALS VERZLUN
ai
VÍÐS VEGAR AÐ
Konur við störf
Atvinnumál kvenna ber alloft á góma. Hafa margir álitið, að
starfsorka kvennanna nýtist ekki sem skyldi og glepji hjónaband og
heimili þar fyrir. Aðrir eru þeirrar skoðunar, að heimilið sé eini rétti
starfsvettvangur konunnar; en sú skoðun mun þó sennilega á undan-
haldi. Árið 1965 var gerð á vegum brezka ríkisins könnun á því, hversu
margar konur vinna úti. Niðurstöður könnunarinnar sem náði til
10.000 heimila, voru birtar fyrir nokkru, og kom m.a. eftirfarandi í ljós.
Meira en helmingur kvenna á aldrinum 16—64 ára er við störf
utan heimilis, og vinnur V3 hluti þeirra hluta úr degi. Algengara er,
að konur vinni þar til þær eignast fyrsta barn sitt, heldur en að þær
hætti störfum við giftingu. Flestar konur voru við störf á aldrinum
16—19 ára og unnu % hlutar þeirra allan daginn. Fátíðast var, að
konur ynnu fullan vinnudag á aldrinum 30—34 ára, en flestar þær
konur, sem ekki unnu. voru á aldrinum 25—29 ára. Nærri helmingur
giftra kvenna var við störf, og voru þær því sem næst % hlutar af
öllum þeim, sem unnu úti. Fróðlegt væri að vita, hvernig starfsorka
íslenzkra kvenna nýtist, og kann samskonar könnun hérlendis vel að
vera réttlætanleg.
Vörn fjofjn tonn-
sk om nt tl n nt
Tannfræðideildin við Royal College of Surgeons í London hefur
uppgötvað, að ákveðin tegund sveppa gefur frá sér efnahvata, sem
hindrar, að bakteríur geti starfað á tönnum manna og valdið þannig
tannskemmdum. Efnahvati þessi, Dextranasi, hindrar, að á tönnum
myndist lag af efni, sem Dextran nefnist. Dextran er framleitt af
bakteríum, sem brjóta niður sykur í munni. Strax og Dextran hefur
orðið til, loðir það við tennurnar og myndar lag á yfirborði þeirra.
Undir þessu lagi geta svo bakteríurnar brotið niður sykurinn, og
myndast þá sýrur þær, er valda tannskemmdum.
Tilraunir, sem gerðar hafa verið á tönnum, sýna, að örlítið magn
af Dextranasa leysir upp Dextran-lagið. Dextranasa má setja í fæðu
eða taka hann beint inn. Efnið er með öllu bragðlaust og veldur eng-
um óþægindum.
Ætla mætti, að efnið ætti allnokkui't erindi hingað til lands, þar
sem sykurneyzla á hvern íbúa mun óvíða meiri en hér. A. m. k. munu
margir fagna því að fara sjaldnar ,,í stólinn". Og auk alls þessa eiga
menn heilbrigði sitt allmjög undir góðum tönnum komið.
JVtj fjcrö stjninfjartjaltlu
Brezkt fyrirtæki hefur framleitt sýningartjald, sem sýna má á
myndir, þó í skjanna dagsbirtu sé, án þess að gæði myndarinnar dofni
og minnki. Sýningartjald þetta er aðallega ætlað til notkunar við
kennslu. Það er gert úr sérstökum kristöllum, sem endurkasta ljósinu
á mjög skýran hátt. Tjaldinu má renna saman, þannig að mögulegt
er að bera það eins og ferðatösku, og það má nota við allar gerðir
sýningarvéla. Sýningartjaldið fæst í ýmsum stærðum.