Frjáls verslun - 01.12.1969, Blaðsíða 10
!□
völl Flugfélags fslands og SAS
um „pool“-samvinnu. Ef haldið
er áfram í þeim dúr má líka segja
sem svo, að félögin gætu hagað
samningsgjörð á annan hátt, til
dæmis með því, að Flugfélagi ís-
lands yrði tryggð miklu betri nýt-
ing en nú gerist á Boeing-þotu
sinni með flugi til Grænlands í
framhaldi af ferðum SAS til
Keflavíkur, auk þess sem þotan
færi ákveðinn ferðafjölda á hin-
um hefðbundnu millilandaflug-
leiðum frá íslandi, eins og áður.
Hlutur SAS á flugleiðinni milli
Norðurlanda og íslands yrði þá
líka meiri en hann er nú, sam-
kvæmt slíku ímynduðu sam-
komulagi.
GOTT SAMSTARF F.I. OG
SAS.
Um áratuga skeið hefur verið
náin samvinna með Flugfélagi fs-
lands og SAS. Dæmi um marg-
háttaða fyrirgreiðslu SAS við
Flugfélag íslands á þessum tíma
eru fjölmörg, og fyrirsvarsmenn
Flugfélagsins líta þetta erlenda
fyrirtæki ekki því hornauga sem
almenningi á íslandi virðist tamt.
Hinu má ekki gleyma, að SAS er
rekið sem einkafyrirtæki, þó að
ríkisstjórnir Norðurlandanna séu
aðiljar að því. SAS-menn hugsa
vitanlega fyrst og fremst um af-
komu síns félags, en aftur á móti
virðast fjölmörg dæmi þess, að
þeim hafi tekizt að efna til sam-
starfs á jafnréttisgrundvelli við
erlend félög, þannig að báðir að-
iljar hafi haft hag af. Hvergi er al-
þjóðlegt samstarf sennilega jafn
víðtækt og í flugmálunum, póli-
tíkin meiri eða ,,diplómatíið“
nauðsynlegra.
Þetta er íslendingum hollt að
hugleiða, því að gagnlegt samstarf
þarf ekki að þýða, að annar að-
ilinn, þó að sterkur sé, ætli að
gleypa smælingjann í sig og ganga
af íslenzku framtaki í flugmálum
dauðu. Þess háttar aðferðir yrðu
FRJALS VERZLUN
SAS mjög hættulegar, og er ekki
ástæðulaust að ætla, að félagið
myndi fremur leggja sig fram um
að gera rekstrargrundvöll íslenzka
samstarfsaðiljans sem beztan, því
að íslendingum yrði ekki skota-
skuld úr því að stofna Flugfélag
fslands hið fjórða, ef landsmenn
vöknuðu allt í einu upp við þann
illa draum, að SAS væri einrátt
í loftflutningum á íslandi.
Framámenn Flugfélags íslands
óttast sennilega ekki samstarf við
SAS. Þvert á móti. En vegna al-
mennrar andstöðu á íslandi við
SAS, hafa Flugfélagsmenn líklega
ekkiséð sér fært að minnastáþann
möguleika, að víðtækt samstarf
við hið erlenda félag yrði hafið.
En þar sem almenningi er nú
Ijós sú hætta, að íslenzku flugfé-
lögin fari að berjast í bökkum áð-
ur en varir, má vera, að menn
yrðu skilningsríkari á nauðsyn
einhverra breytinga í þessum mál-
um, og þá hugsanlega með sam-
vinnu við SAS.
IIERIKAJAKKAIt OG
OltEIV G JA JAKKAlt
Mikið úrvail
Prjónastofan
IÐIJIMINl
Skerjabraut I. — Seltjarnarnesi