Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1969, Blaðsíða 20

Frjáls verslun - 01.12.1969, Blaðsíða 20
ZD FRJÁLS VERZLUN samningana, en ekki vitað hve- nær niðurstaðan yrði gerð opin- ber. Ríkisstjórnin lítur svo á, að al- menningur geri sér of háar hug- myndir um greiðslugetu atvinnu- veganna. Þetta er án efa hárrétt mat. En ríkisstjórnin og málgögn hennar eiga nokkra sök á þessu sjálf. Til að vega upp á móti svart- sýnisáróðri stjórnarandstöðunnar var gripið til þess ráðs að koma á framfæri við almenning öllum þeim upplýsingum, sem voru til þess fallnar að vekja vonir fólks um stöðugt og batnandi efnahags- ástand. Það hefur meira að segja verið gengið svo langt, að fleira er tínt til en það, sem unnt er að standa við. Þannig hefur verið á það bent, að gjaldeyrisstaðan fari stöðugt batnandi. En bati gjaldeyrisstöð- unnar er ekki jafnmikill og hann virðist vera, þegar fljótt er á töl- urnar litið. Lántökur eiga veru- legan þátt í þessu. Greiðslugeta atvinnuveganna er mjög mismunandi og erfitt að meta hana í svipinn. Augljósasta dæmið um févana atvinnugrein er verzlunin. Útvegsmenn eru mjög misjafnlega á vegi staddir, en frystihúsin eru almennt bæri- lega stödd. Niðurstaða verður því í stuttu máli sú, að gjaldeyrisstaðan sé í hættu, ef launahækkanir verða miklar, og að framkvæmdir muni minnka í öfugu hlutfalli við allar launahækkanir, nema fyllsta að- gæzla verði viðhöfð á öllum svið- um. Menn velta því fyrir sér, hvort verkföll muni setja svip sinn á vinnumarkaðinn eftir áramót. í augnablikinu er stórt spurninga- merki við sjómenn og þeirra samninga. BRAUÐBORG Njálsgötu 112 Sími 1-86-80 ♦ SMURT BRAUÐ ♦ KJÚKLINGAR ♦ SÚPUR ♦ SÍLDARRÉTTIR ♦ KAFFI „biíjib um brauiii frá Brauiborg" OPIÐ DAGLEGA KL. 9-11.30 Framhald af bls. 29 AKUREYRI Vegna hinnar óvæntu en tiltölu- lega miklu uppbyggingar atvinnu- húsnæðis, hefur verið mun meira að gera hjá byggingariðnaðinum en horfur voru á í ársbyrjun. Þó hefur það ekki verið fullnægjandi, enda hefur bygging íbúðarhúsa dregizt stórlega saman á árinu. Hefur aðeins verið byrjað á 34 íbúðum í ár móti 84 í fyrra og 89 árið þar áður. Þessi samdrátt- ur getur haft alvarlegar afleið- ingar fyrir byggingariðnaðinn áð- ur en varir, en að auki eykst hús- næðiseklan, sem hefur verið til- finnanleg um árabil, hvað þá þeg- ar litið er á stóraukna fólksþörf á næstunni með þeirri auknu og nýju atvinnu í iðnaði og þjónustu, sem nú er á næstu grösum, ef svo fer sem horfir. Allar vorur til skipaútgerðar Páll Þorbjörnsson Sími 1332

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.