Frjáls verslun - 01.05.1985, Síða 35
ur og tollar svo eitthvað sé nefnt
og án þess að ég sé aö hallmæla
því að kröfur séu gerðar til
íslenskrar framleiðslu þá hljóta
að vera til takmörk fyrir öllu,
sagði Jón Viglundsson.
— Við erum ekki að amast við
því að bakarar framleiði sælgæti,
heldur viljum við að stjórnvöld
taki sig saman i andlitinu og
gangi þannig frá málum að sæl-
gætisframleiðendur sitji við sama
borð og bakararnir i þessum efn-
um. Það hlýtur að vera réttlát
krafa aö sömu lög gildi fyrir alla
þegna þessa lands, sagði Krist-
inn Björnsson, forstjóri i Nói-Sirí-
us hf. er vörugjalds- og sölu-
skattsmálin voru borin undir
hann.
Að sögn Kristins eru nú uppi
gjörbreytt viöhorf i þessum mál-
um en voru fyrir nokkrum árum
siðan.
— Það sér hver heilvita maöur
sem hér fer inn i bakari að mörg
þeirra eru orðin meö glæsilegri
„konditorum“ sem til eru. Þarna
eru seldar kókos- og súkkulaði-
bollur, ýmis konar marsipanbrauð
og sambærileg vara við það sem
sælgætisframleiðendur eru með
og geta framleitt. Munurinn er
bara sá að önnur framleiðslu-
greinin er botntolluð á meðan
samkeppnisgreinin borgar engin
gjöld. Þaö er óneitanlega gremju-
legt, svo ekki sé meira sagt, aö
sjá nákvæmlega eins vöru og t.d.
erframleidd hér i Nóa-Sírius hf. á
sama eða jafnvel hærra verði í
bakariunum og vita að á meðan
maður ber sjálfur sáralítið úr být-
um, þá geta þakararnir selt vör-
una meö gifurlegri álagningu.
Öll lög þverbrotin
Að sögn Kristins er fariö með
þessi mál eins og mannsmorð
hjá þeim aðilum sem eiga að hafa
stjórnina með höndum.
—Það er búið að þverbrjóta lög
og reglur og ráðherrabréfið sem
gefið var út um niðurfellingu á
vörugjaldi og söluskatti á brauði
og brauðvörum á sinum tíma,
brýtur t.d. gjörsamlega i bága við
lög um friverslun sem Islendingar
eru aðilar aö. Þetta gjald er ekki
innheimt af islenskri framleiðslu
en það er innheimt af innfluttri
vöru. Það yrði lagleg sprenging ef
einhver kærði þetta til EFTA,
sagði Kristinn Björnsson.
I máli Kristins kom fram að
sælgætisframleiöendur hafa ekki
horn i síðu bakaranna vegna
þessa en Ijóst sé vegna gjör-
breyttra aðstæðna að eitthvað
þurfi að gera i málunum.
— Ég get nefnt það sem dæmi
að bakarar hafa nú sjálfir sett á
fót sultu- og efnaverksmiðju sem
fest hefur kaup á vélum til að
framleiöa súkkulaði. Þetta
súkkulaði er selt til bakaríanna i
blokkum og bakararnir bræða
það niður á brauð og kökur og
framleiða sælgæti. I þessu tilviki
ber verksmiöjunni að innheimta
vörugjaldið af súkkulaðinu fyrir
Ríkið og ég trúi ekki öðru en að
það sé gert.
— En hvað er til ráða? Menn
virðast nokkuð sammála um að
það sé illmögulegt að fara eftir
þessari reglugerð. Er ekki nær að
búa til lög og reglur sem hægt er
að fara eftir i stað þess að beygja
menn undirómöguleg lög?
— Auðvitað er það eina ráðið.
Við sælgætisframleiðendur bið-
um þolinmóðir eftir virðisauka-
skattinum sem leyst hefði þessi
mál fyrir fullt og allt en hann virð-
ist nú úr sögunni a.m.k. í einhvern
tíma. Það þarf því að byrja upp á
nýtt og við biðjum aðeins um rétt-
láta lausn.
Til síðasta blóðdropa
— Nú er þitt fyrirtæki og fleiri
farið að framleiða súkkulaðikex i
bitum og selja í pokum, án þess
að greiða söluskatt. Eruð þið ekki
að fara þarna i kringum lögin?
— Þetta mál erþannig tilkomið
að söluskattur var felldur niður af
matvælum, m.a. kexi. Það sem
viö gerðum var einfaldlega það
að við fórum i Hagkaup og keypt-
um einar tiu tegundir af erlendu
súkkulaðikexi. Fórum þvi næst
með þessa vöru til matvælafræð-
ings og sögðumst vilja framleiða
svona vöru og selja, auðvitað án
söluskatts. Nú matvælafræðing-
urinn kom meö uppskriftina og
við framleiðum sambærilegt kex
og það erlenda, sem selt er án
söluskatts. Það má vera að ein-
hverjum detti i hug að mismuna
íslenskum iðnaði og erlendum
með þvi að reyna að innheimta
söluskatt af þeirri islensku, en við
munum berjast til síðasta blóð-
dropa i þvi máli. Ég segi það fyrir
mig. Ég mun aldrei, að óbreyttu
ástandi, borga söluskatt af þess-
ari vöru, sagði Kristinn Björns-
son.
35