Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1987, Side 16

Frjáls verslun - 01.07.1987, Side 16
100 stærstu Skýringar á hugtökum y | • HH i Hér á eftir fara skýringar á þeim upplýsingaliðum, sem fram koma á aðallista. Sumir liðanna skýra sig sjálfir, eins og nafn fyrirtækis, röð 86 og röð 85. Velta í milljónum króna. Eins og áður er fyrirtækjunum rað- að á aðallistann eftir veltu þeirra. Er velta þá talin sama og brúttótekjur fyrirtækja áður en nokkur kostnaður eða umboðslaun eru dregin frá. Að sjálfsögðu er þarna um að ræða mis- jafnar stofntölur, allt eftir því hvers eðlis reksturinn er. Varðandi venjuleg verslunar- og iðnfyrirtæki er málið tiltölulega ein- falt, brúttótekjur þeirra eru ljósar. Þó skal tekið fram, að söluskattur er innifalinn í veltunni. Kaupfélögin fylla sama flokk og önnur verslunarfyrirtæki í það minnsta að mestu. Þau eru þó mörg með ýmiskonar rekstur, sem leggst ofan á veltu þeirra. Má þar nefna út- gerð, fiskvinnslu, iðnrekstur og rekstur sláturhúsa. Skýringar á þess- um liðum koma hér á eftir. Utgerðarfyrirtæki og félög sem stunda fiskvinnslu eru oft með bland- aðan rekstur. Sum fyrirtækin standa bæði fyrir útgerð og fiskvinnslu. í þeim tilvikum er aflaverðmæti skip- anna lagt við verðmæti afurða í fisk- vinnslu. Velta banka og sparisjóða er talin brúttó rekstrartekjur þeirra að við- bættum verðbótum. Tryggingarfélög eru talin hafa veltu, sem er samtala reikningslið- anna „iðgjöld ársins“ og „fjármuna- tekjur“. Það gildir bæði um banka og tryggingafélög að reikningar þeirra eru mjög staðlaðir. Er gildi saman- burðar á milli þeirra því mikið. Fyrirtæki sem stunda útflutning eru talin hafa þá veltu sem nemur útflutningsverðmæti þeirra afurða sem þau hafa flutt út á vegum umbjóð- enda sinna. Breyting í % f.f.á. Þessi liður sem þarfnast ekki nánari skýringa, kemur öðru hvoru fyrir á hinum ýmsu listum. Er þá vísað í næsta dálk fyrir framan í hverju tilviki. Veltubreyting að frádregnum verðbreytingum I þessum lið er reynt að draga frá þann hluta veltubreytingar í krónum talið, sem orðið hefur vegna verð- lagsbreytinga. Ákveðið var að miða við breytingu á lánskjaravísitölu frá janúar 1986 til janúar 1987. Hún var 14,7%. Til samanburðar má nefna, að sam- bærileg hækkun vísitölu vöru og þjónustu varð 9,79%, framfærsluvísi- tölu 11,5% og byggingarvísitölu 17,2%. Breyting veltu fyrirtækja vegna verðlagsbreytinga verður á ýmsan hátt. Lánskjaravísitalan er þar síður en svo einhlítur mælikvarði. Hér er þó ekki kostur á að taka tillit til slíks. Hagnaður í milljónum króna Að þessu sinni er hagnaður fyrir- tækja gefinn upp fyrir skatta (tekju- og eignaskatta). Þar sem í fyrra var reiknað með hagnaði eftir skatta er ekki unnt að bera þessar tölur saman á milli ára. Við uppsetningu listanna er tekið tillit til þessa. Ástæðan fyrir því, að valinn er hagnaður fyrir skatta er sú, að það þykir gefa betri upp- lýsingar um afkomu fyrirtækjanna hvert ár, heldur en hagnaður eftir skatta. Á aðallistanum er vegna þessa tek- inn sá kostur, að gefa einnig upp hagnað ársins 1985, það er eftir skatta. Breytingar á hagnaði á milli ára er ekki gefinn upp af framansögð- um ástæðum. Hagnaður í % af veltu Að þessu sinni er miðað við hagnað fyrir skatta eins og áður hefur komið fram. Þetta hlutfall hefur það sér til gildis að vera einfaldur og auðveldur samanburður á þróun á milli ára. Hvort réttast sé að miða við hagnað fyrir skatt eða eftir skatt er álitamál. Enn meira álitamál er hvort rétt sé að taka þetta hlutfall fyrir frádrátt vegna vaxtagjalda eða afskrifta. Hagnaður í % af eigin fé Þetta hlutfall gefur til kynna arð- semi eiginfjármagns ífyrirtæki. Eigið fé er hér talið hlutafé, varasjóðir og annað það sem telst til eiginfjár. Af þessu hlutfalli má draga nokkrar ályktanir um hugsanlega arðgreiðslu til hluthafa, þó svo hún geti oft á tíðum farið eftir allt öðrum forsendum. Rétt er að benda á, að hér er um að ræða svonefnda einkaarðsemi, sem er arð- semi eiginfjár fyrirtækis. Eigið fé í millj. króna Hér er átt við þann hluta fjármagns fyrirtækis, sem ekki er talinn til lang- tíma- eða skammtímaskulda. En fjár- magnshlið (passiva) hlið efnahags- reiknings byggist á þessum skuldum auk eigin fjár. Eigið fé er hlutafé, varasjóðir, end- urmatssjóðir, reiknaðar tekjur vegna verðlagsbreytinga, séreignasjóðir, stofnsjóðir o.fl. Hafa ber í huga að eigið fé fyrir- tækja kann að vera nokkuð vanmetið. 16
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.