Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 48
NÆRMYND
Hann gjörnýtir tímann. Gott dæmi er þegar Sigurjón var við annan mann í biðröð
utan við kvikmyndahús í New York. Hann lét kunningja sinn standa í röðinni en fór
sjálfur í símklefa á meðan til að viðhalda sambandi við þá sem hann átti í
viðskiptum við. Síminn er stanslaust að hringja eða þá að hann er að hringja í
einhvern. Maðurinn hættir hreinlega aldrei að vinna.
festa. Þrátt fyrir „hið ljúfa líf“ hljóm-
sveitabransans, sem hann fór sosum
ekki varhluta af frekar en aðrir popp-
arar þess tíma, missti hann ekki sjón-
ar á takmarki sínu, að afla sér mennt-
unar og koma undir sig fótunum fjár-
hagslega. Hann lagði fyrir af tekjum
sínum úr spilamennskunni og áður en
hann varð tvítugur hafði hann komið
sér upp íbúð. Dugnaður og ráðdeild-
arsemi voru og eru tvö af aðalsmerkj-
um Sigurjóns Sighvatssonar.
„Þótt Jonni væri að spila þá gætti
hann sín alltaf mjög vel í peningamál-
um, hafði sitt á þurru. Hann tók tak-
markaðan þátt í „ljúfa lífinu“ og ein-
setti sér að standa sig í skólanum,"
segir samferðamaður Sigurjóns frá
hlj óms veitarárunum.
Sigurjóni gekk alltaf vel í skóla og
sýndi góðan árangur þrátt fyrir mikla
vinnu. Samhliða spilamennskunni og
rekstri Hljóðrita í Hafnarfírði stundaði
Sigurjón nám í Verzlunarskóla íslands
og varð stúdent þaðan árið 1973.
Hann lét ekki þar við sitja og hélt
áfram námi í Háskóla íslands. Útskrif-
aðist hann þaðan 1977 með BA-gráðu
í bókmenntum og ensku.
„Sigurjón einsetti sér snemma að
ná langt í lífinu og reri að því öllum
árum. í dag, þegar velgengni hans er
orðin staðreynd, er hann ekkert að
slá af, öðru nær. Sigurjón setur vel-
gengni ofar öllu og gerir allt til að ná
settu markmiði. Sumum leiðast þess
konar menn en það eru einmitt slíkir
menn sem ná árangri," segir gamall
skólafélagi Sigurjóns úr Verzlunar-
skólanum.
Eftir að Sigurjón útskrifaðist úr Há-
skólanum hélt hann til Bandaríkjanna.
Hann stundaði nám í kvikmyndagerð
við Háskólann í Suður-Kalifomíu á ár-
unum 1978-1980. A þeim árum samdi
hann handrit að og leikstýrði kvik-
myndinni The Story of L. Sharkey,
sem vann Focus-verðlaunin 1979.
Næstu tvö ár nam Sigurjón leikstjóm
hjá American Film Institute og vann
síðan við framleiðslu kvikmynda og
tónlistarmyndbanda í Los Angeles
eftir það. 1986 stofnaði hann síðan
Propaganda Films ásamt Steve Gol-
in. Seinna keypti stórfyrirtækið Poly-
gram 49 prósenta hlut í fyrirtækinu
og eignaðist það síðan allt. Síðustu
misserin vann Sigurjón sem fram-
kvæmdastjóri hjá fyrirtækinu og
framleiðandi kvikmynda en hætti ný-
lega eins og greint var frá hér að
framan.
Þó að Sigurjón hafi nær eingöngu
starfað í Bandaríkjunum hefur leið
hans einnig legið heim á Frón. Haust-
ið 1983 leikstýrði hann og setti upp
söngleikinn Litlu Hryllingsbúðina í ís-
lensku Óperunni ásamt Páli Baldvini
Baldvinssyni, leikstjóra hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Þá var Sigurjón fram-
leiðandi kvikmyndarinnar Ryð sem
Lárus Ýmir Öskarsson leikstýrði
1990.
Sigurjón er kvæntur Sigríði Jónu
Þórisdóttur, sérkennara fyrir heym-
arskerta. Saman eiga þau Þóri Snæ
sem nú er 21 árs gamall og hefur
mestmegnis alið manninn hér á Fróni
undanfarin ár. Sigurjón og Sigríður
stækkuðu fjölskylduna á dögunum
þegar þau ættleiddu ungabarn,
stúlku.
ELSKAR AÐ VINNA
En hvemig maður er Sigurjón Sig-
hvatsson og hvaða eiginleikar eru það
sem hafa komið honum jafn langt og
raun ber vitni? Ef draga á svör við-
mælenda Frjálsrar verslunar saman í
örfá orð verður niðurstaðan vinna,
vinna og aftur vinna eða eins og einn
samstarfsmanna hans segir: „Sigur-
1. P»if ofbMiruwithihclvmg
2. Tranivcrw bcam for longside huidiíng
3. Poit guardi
4. H»lf-p»ll« itipporun
GALVANISERAÐIR
BRETTARE KKAR
BQ Electrolux
COHSTKUCTOK
I mismunandi hœðum.
Einfaldir í uppsetningu.
Margir aukahlutir s.s.
venjulegar hillur, sld fyrir tromlur o.fl.
(IJJI PTmucfX Borgartúni 26, Reykjavík.
jjg Sími 91-622262. Símbréf 91-622203,
48