Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 55
Hér er konan í aðalhlutverkinu. Hún er í dæmigerðri
blárri aðskorinni dragt sem gefur henni kvenlegt en
jafnframt virðulegt útlit. Hún klæðist vesti til að brjóta
upp línuna. Skyrtan er kremlituð sem gefur stöðugleika
í útliti. Hann er aðstoðarmaður, leiður á „afa-útlitinu“,
og fer ótroðnar slóðir. Lætur bindið og skyrtuna gossa
en nýtir sér hátthneppt vesti til að halda virðugleikan-
um.
Dæmigerður kvenstjómandi á leið á mikilvægan fund.
Yfirlitið er fremur frjálslegt en engu að síður virðulegt.
Dragtin er úr góðri ullarblöndu og blá á litinn. Dökkblátt
er einn af klassískum „viðskiptalitum" og stendur fyrir
heiðarleika. Vesti og slæða brjóta upp stílinn og gefa
kvenlega ímynd. Margar konur halda að þær virki eldri
ef þær klæðast drögtum. Þær geta samt sem áður verið
sportlegar, það fer eftir dragtinni.
Ungur stjórnandi, til dæmis í iðnfyr-
irtæki, sem hefur mikið að gera.
Viðskiptavinir hans em mjög lík-
lega ekki formfastir í klæðaburði og
þess vegna er hann heldur ekki of
formfastur í klæðnaði. Þannig er
hann í takt við viðskiptavinina sem
skiptir miklu máli. Virðuleikanum
nær hann með jakkanum.
Dæmi um klæðnað stjómenda sem ekki er of stífur. Hún gæti verið stjórn-
andi í verslun. Hún sleppir skyrtunni og er aðeins í vesti. Þannig nær hún
því að vera öðm vísi en jafnframt smart. Hann gæti verið millistjómandi, til
dæmis í heildverslun, og þarf að hafa mikil samskipti við framleiðslu-
fyrirtæki. Til að yfirtrompa ekki klæðnað viðskiptavina er hann í bol sem
táknar látleysi. Jakkinn gefur honum hins vegar stöðugleika.
55