Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 54
Klæðnaður fyrir stjórnendur í fjármálafyrirtæki. Herrann er klæddur í dökkblátt sem ber vott um heiðarleika. Hann
er með fíngerð gleraugu sem gefur fágað útlit. Konan er í gráu sem er tákn um stöðugleika. Svart pilsið er klassískt.
Litir eru mikilvægir vegna þess að þeir skapa viss hughrif. Gleraugun eru virðuleg og úr títaníum sem er afar létt
efni. Létt gleraugu leka síður niður á nefið. Gleraugu verður ætíð að velja eftir lífsstíl og andlitsfalli. Gróf gleraugu
gefa sportlegt útlit. (Fatnaður: Frá Fasa) (Kvenskyrta: Frá Kotra). (Gleraugu: Gleraugnamiðstöðin í Mjódd).
KLÆÐABURÐUR STJÓRNENDA
Anna Gunnarsdóttir útlitshönnuður gefur stjórnendum hérgóö ráö um klæönaö
Horstjórar eru í ákveðnu hlut-
verki. Þeir eru þar af leiðandi
tilneyddir að fylgja ákveðnum
reglum, bæði hvað varðar
starfið og klæðaburð." Þetta
segir Anna F. Gunnarsdóttir,
snyrtifræðingur og útlitshönn-
uður, sem rekur fyrirtækið
Anna og útlitið.
Aðalstarf Önnu er að leið-
beina einstaklingum og hópum
við val á klæðnaði auk þess
sem hún fjallar um framkomu
og snyrtingu. Hún segir að allt
hafi þetta áhrif þegar utanað-
komandi fólk komi inn í fyrir-
tæki. Litir skapa viss hughrif
og Anna bendir á nokkra „við-
skiptaliti"; dökkblátt er heið-
arleiki, svart er glæsileiki og grátt er
jafnvægi. „Fólk þarf að vita hvaða litir
eru viðskiptalitir, sportlitir og spari-
Anna F. Gunnarsdóttir útlitshönnuður, sem rek-
ur fyrirtækið Anna og útlitið, stjórnaði öllum
myndatökum í greininni. Hér undirbýr hún eina
tökuna.
litir og ennfremur þarf það að vita
hvaða litir gerir það feitt, grannt, ungt
eða gamalt.“
Anna segir að yfir höfuð séu
konur sem stundi viðskipti í
pilsum. „Gallabuxur eru nátt-
úrlega bannaðar inni á skrif-
stofum. Flauelsbuxur eru
heldur ekki hentugar. Mér
finnst að konur í viðskiptum
megi flagga því meira að þær
séu konur. Þegar ég byijaði að
ráðleggja konum í sambandi
við fataval fyrir fimm árum,
héldu þær konur, sem komust
áfram í viðskiptum, að þær
ættu að vera í tvíhnepptum
jakka og buxum. Þær voru að
„breyta sér“ í karla. Þetta hef-
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR MYNDIR: BRAGIJÓSEFSSON
54