Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1995, Page 55

Frjáls verslun - 01.02.1995, Page 55
Hér er konan í aðalhlutverkinu. Hún er í dæmigerðri blárri aðskorinni dragt sem gefur henni kvenlegt en jafnframt virðulegt útlit. Hún klæðist vesti til að brjóta upp línuna. Skyrtan er kremlituð sem gefur stöðugleika í útliti. Hann er aðstoðarmaður, leiður á „afa-útlitinu“, og fer ótroðnar slóðir. Lætur bindið og skyrtuna gossa en nýtir sér hátthneppt vesti til að halda virðugleikan- um. Dæmigerður kvenstjómandi á leið á mikilvægan fund. Yfirlitið er fremur frjálslegt en engu að síður virðulegt. Dragtin er úr góðri ullarblöndu og blá á litinn. Dökkblátt er einn af klassískum „viðskiptalitum" og stendur fyrir heiðarleika. Vesti og slæða brjóta upp stílinn og gefa kvenlega ímynd. Margar konur halda að þær virki eldri ef þær klæðast drögtum. Þær geta samt sem áður verið sportlegar, það fer eftir dragtinni. Ungur stjórnandi, til dæmis í iðnfyr- irtæki, sem hefur mikið að gera. Viðskiptavinir hans em mjög lík- lega ekki formfastir í klæðaburði og þess vegna er hann heldur ekki of formfastur í klæðnaði. Þannig er hann í takt við viðskiptavinina sem skiptir miklu máli. Virðuleikanum nær hann með jakkanum. Dæmi um klæðnað stjómenda sem ekki er of stífur. Hún gæti verið stjórn- andi í verslun. Hún sleppir skyrtunni og er aðeins í vesti. Þannig nær hún því að vera öðm vísi en jafnframt smart. Hann gæti verið millistjómandi, til dæmis í heildverslun, og þarf að hafa mikil samskipti við framleiðslu- fyrirtæki. Til að yfirtrompa ekki klæðnað viðskiptavina er hann í bol sem táknar látleysi. Jakkinn gefur honum hins vegar stöðugleika. 55

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.