Fregnir - 01.02.1991, Síða 2
-2-
FRAMHALDSNÁM t BÓKASAFNS- OG UPPLÝSINGAFRÆÐUM
FJARKENNSLA
University College of Wales, Department of Informatlon and Library
Studies (áður College of Librarianship Wales) býður nú upp á mastemám i
gegnum fjarkennslu. Námið er ætlað bókasafnsfræðingum í Bretlandi og
löndum Evrópubandalagsins en bókasafnsfræðingum í öðrum löndum gefst
kostur á að sækja um.
Námið tekur 3 ár og er reiknað með nokkurra daga dvöl að sumri til i
sumarskóla í Aberystwyth. Náminu er þannig háttað að nemendur fá senda
heim lesllsta og nýsigögn og vlnna síðan ýmls konar verkefni og ritgerðir.
Eftir að verkefnln hafa verið samþykkt er skrifuð lokaritgerð (20.000 orð).
Um er að ræða tvenns konar gráður. Annars vegar M.Sc. í rekstri
læknisfræðibókasafna og hins vegar M. Lib. gráða í stjórnun bókasafna.
starfsmannastjómun, kerflsgreiningu og uppbyggingu salfnkosts. Einnig er
boðið upp á sérhæflngu í þjónustu við böm og unglinga fyrir þá sem starfa í
almenningsbókasöfnum og skólasöfnum.
Þeir sem vilja afla sér frekari upplýsinga geta snúið sér til
Upplýsingastofu um nám erlendis, Aðalbyggingu Háskóla íslands.
Skrifstofan er opin alla virka daga nema þriðjudaga frá kl. 10-12 og 13-15
og siminn er 694585.
Ásgerður og Karitas
FRÁFBR
Norræn samvinna
Almennur félagsfundur var haldinn í Kennaraháskóla íslands 20.
nóvember s.l. Fundarefni var: Norræn samvinna - NORDINFO, aðild FBR að
NVBF. Kristín Indriðadóttir skýrði frá starfinu i NORDINFO og Kristín
Bragadóttir frá NVBF. Fundargestir vom fáir en umræður urðu þó líflegar og
fram kom að áhugi er á norrænu samstarfi. Sú hugmynd kom fram á
fundlnum að þeir aðilar sem taka þátt í norrænu samstarfl hittist og ræði
málin og hefur einn slíkur fundur verið haldinn. Þing NVBF var haldið í
Linköping dagana 16.-18. ágúst s.l. Á þinginu vom aðeins þrir íslendingar,
tveir sem hðfðu störfum að gegna og aðeins einn almennur þátttakandi.
Líklegt má þó telja að það hafi fremur verið kostnaðurinn vegna
þátttökunnar en áhugaleysi sem hélt íslendingum heima.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur FBR var haldinn miðvikudaginn 30. janúar s.l. í bókasafni
Hagstofu íslands. Stjórn félagsins skipa: Eydís Arnviðardóttir, formaður,
Ingibjörg Árnadóttir, Sesselja Halldórsdóttir, Sigríður Sigtryggsdóttir og
Viggó Gíslason. Úr stjóm gekk Gísli Ragnarsson.
Nýir félagar á síðastliðnu ári eru: Edda Snorradóttir og María Huld
Jónsdóttir, Háskólabókasafni, Hulda Ásgrimsdóttir, Námsgagnamiðstöð,
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Gangskör, Ragna Steinarsdóttir, bókasafni
Kennaraháskólans, Ragnhildur Bragadóttir, Stöð 2 og Rósa Sólrún
Jónsdóttir, bókasafni SJómannaskólans.
Að aðalfundi loknum sýndi Þóra Gylfadóttir bókavörður, safnið í nýju og
glæsilegu húsnæði Hagstofu íslands.