Fregnir - 01.12.1994, Blaðsíða 11
FREGNIR
Höfundarréttarleg vandamál varðandi efni á tölvutæku formi snúast
að miklu leyti um hvenær heimilt er að afrita efni til einkanota, en
þessi heimild í lögunum felur í sér undanþágu frá þeim einkarétti,
sem höfundur nýtur til að gera eintök af verki sínu. Andersen taldi
að nýtt frumvarp til danskra höfundalaga leysti ekki nægilega úr því
hvað sé heimil einkaafritun og hvað ekki. Fram kom að í
frumvarpinu er ákvæði, sem ætlað er að banna alla afritun á efni á
tölvutæku formi. Andersen fjallaði einnig um frumvarp að tilskipun
Evrópusambandsins um vernd gagnabanka (COM(93)464 SYN
393). Samkvæmt frumvarpinu er gagnabönkum veitt tvenns konar
vernd. Annars vegar er um að ræða að gagnabanki nýtur
höfundarréttarverndar að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Hins
vegar er um að ræða að gagnabönkum, sem ekki uppfylla þau
skilyrði, er veitt sú vernd að óheimilt er að nota efni þeirra í
ávinningsskyni. þessi vemd er sérstaks eðlis ("sui generis"), en
ekki höfundarréttur. Andersen gagnrýndi nokkuð
tilskipunarfrumvarpið, m.a. benti hann á að hugtakið gagnabanki
væri ekki skilgreint á réttan hátt og að óeðlilegt væri að
vemdartíminn væri háður því að "verulegar breytingar" væm gerðar
á gagnabankanum. Taldi hann að eðlilegast væri að reyna að leysa
höfundarréttarvandamálin með samningum eða með lagaákvæðum
um samnings- eða afnotakvaðir.
Jukka Liedes, lögfræðingur í finnska dómsmálaráðuneytinu
fjallaði um það starf sem verið er að vinna á alþjóðlegum vettvangi
til samræmingar á höfundarréttarlöggjöf einstakra ríkja.
Hann gerði grein íyrir þeim sviðum sem verið er að fjalla um eða er í
undirbúningi að fjalla um innan WIPO (Alþjóðahugverkastofnunar-
innar), í GATT og hjá Evrópusambandinu. Of langt mál yrði að
rekja þetta ítarlega hér en nefna má efni eins og vemd hugbúnaðar,
vemd gagnabanka, leigu- og lánsréttindi, dreifingu með kapli og
gegnum gervihnetti, upptökur til einkanota, lengd vemdartímans og
aukin réttindi flytjenda og hljómplötuframleiðenda.
Tvö erindi voru flutt undir yfirskriftinni "Upplýsingahrað-
brautin, hlutverk bókasafna sem milliliða milli rétthafa
og notenda". Graham P. Cornish talaði hér frá öðmm sjónar-
11