Alþýðublaðið - 19.09.1969, Blaðsíða 3
Alþýðublaðið 19. september 1969 3
Nokkrfr nýir þælfir í velrardagskrá sjón-
amtíðar-
og Á
áldaþingi
- e:
□ Revkjavík — SSB.
Ef til viíl er örðugí að úrskurða, hvenær telja skuli,
f;5 vetrarrigningar séu teknar við af vor-, sumar- og
haustrigningum, en hvað sjónvarpið snertir, hefst
vcturinn 1. cktóber eða a.m.k. vetrardagskráin.
Breytingar verða ekki stór-
vægilegar frá sumardagskránni,
þó fáum við eitthvað af nýju-
um kunningjum fram á skerm-
inn og missum jafnframt
nokkra af þeim gömlu. Útsend-
ingartíminn lengist lítið eitt;
hann er venjulega u.þ.b. 80—
90 klukkustundir á sumrin og
100 á vetuina.
DAVID FROST Á
SUNNUDÖGUM
Á sunnudögum fáum við
skopsnillinginn brezka, David
Frost, í heimsókn hálfsmánað-
arlega, og munu áreiðanlega
margir fagna því.
Á mánudögum verða fram-
haldsmyndaflokkar, og er sá
fyrsti frá norska sjónvarpinu,
tekinn eftir skáldsögu Alexand-
ers Kielland, „Worse skip-
stjóri“.
SAMTÍÐARMENN
Á þriðjudögum verða inn-
lendir umræðu- og viðtalsþætt
ir, „Setið fyrir svörum“, „Á
öndverðum meiði“ og nýr þátt-
ur, „Samtíðarmenn“, sem kem-
ur í stað þáttarins „í brenni-
depii“. Ekki er fullvíst hvort
„Munir og minjar“ halda
áfram.
Og „Á flótta“ verður einnig
á þriðjudögum. Alls eru 300
þættir í þeim flokki, en frem-
ur ólíklegt, að þeir verði sýnd-
ir allir. Trúlega munu forráða-
menn sjónvarpsins sjá aumur
á vesalings flóttamanninum og
stytta hörmungar hans með því
að flýta leikslokum.
GFIMMSÆ VINTÝRI
Á miðvikudögum verða sýnd-
ar myndir fyrir börn og ung-
linga milli kl. 18 og 19. Hrói
höttur heldur áfram, og við
bætist nýr myndaflokkur um
hestinn Gust. Ennfremur verða
sýndar langar myndir byggðar
á hinum góðu og gömlu
Grimmsævintýrum.
S
BONANZA OG
GET SMART
Á föstudögum kemur „Bon-
anza“, sú langþráða sería. En
Dýrlingurinn og Harðjaxlinn
kveðja okkur bráðlega, því að
þeir tveir flokkar eru senn á
þrotum.
Á laugardögum verður byrj-
að á þýzkukennslu, 26 myndir
í flokki er nefnist „Guten Tag“,
en forspjall fyrir hverri mynd
fllyitur Ba'ldur Ibg'ól&son
menntaskólakennari.
Á laugardagskvöldum verða
til skiptis tveir nýir mynda-
flokkar. Annar heitir „Get
Smart“ og fjallar um naut-
heimskan leynilögreglumann
að nafni Smart; það er eins
konar skopstæling á „alvarleg-
um“ þáttum svipaðrar tegund-
ar. Hinn þátturinn er nýtízku
útgáfa af Þúsund og einni nótt
eða sögunni um andann sem
kemur upp úr flösku þegar hún
er opnuð. Að þessu sinni er
andinn fögur stúlka, og hún á
það sammerkt með öðrum
flöskuöndum að vera ekkert
ómáttugt. Síðar á laugardags-
kvöldum verða svo langar kvik-
myndir. ; \ j
Á SKÁLDAÞINGI
Tvo seinustu þriðjudagana í
október verður sýndur þáttur
sem nefnist „Á skáldaþingi“.
Þar koma nokkrir íslenzkir rit-
höfundar saman og ræða sín
hugðarefni.
Auk þess verður sýnt ýmis-
legt efni sem sjónvarpsmenn
hafa verið að undirbúa í sum-
ar. Meðal annars fengu þeir
það vandasama verkefni að
kvikmynda heyþurrkun hér
sunnanlands í þeim mesta
óþurrki sem sögur fara af um
lengri tíma. Umfangsmesta við-
fangsefni þeirra var óperan
„Ástardrykkurinn“ eftir Doni-
zetti sem sýnd verður um næstu
jól. Safnað var efni víða um
land, frá Breiðafjarðareyjum,
Skagafirði og Austfjörðum, en
vonir standa til þess ef títt-
nefndir veðurguðir verða í
góðu skapi, að sjónvarpssend-
ingar geti náð til Austfjarða
fyrir næstu áramót. —
Tinr~-—""HWMHBMBHSia—
Bergþórugötu 3.
Símar 19032 og 2007Q.
VELJUM ÍSLENZKT-lf^K
ISLENZKAN IÐNAÐ
Jólalerð Gullfoss
Fer&izt í jólaleyfinu. - Njótið hátíðarinnar og áramótanna um borð
í Gullíossi. - Áramótadanslcikur um borö í skipinu á siglingu
í Kielarskurði. - Skoðunar- og skemmtiícröir í hverri viðkomuhöín.
16 DAGA FERÐ - FARGJALD FRA KR.13.008,oo TIL KR. 21.393,oo
Söluskattur.fæði og þjónustugjald innifalið.
FERÐAAÆTLUN:
FRA reykjavík í amsterdam í HAMBORG
23. des. 1969 27. og 28. des. 29., 30. og 31. des.
í KAUPMANNAHÖFN TIL REYKJAVÍKUR
1., 2. og 3.jan. 1970 7. jan. 1970
Njótið þess að ferðast
Ferðizt ódýrt - Ferðizt með GuIIfossi
ALLAR NÁNARI UPPLYSINGAR VEITIR:
FERÐASKRIFSTOFA EIMSKIPS, SÍMI 21460
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Dýrlingurinn syngur brátt sitt síðasta vers í sjónvarpinu.