Alþýðublaðið - 08.10.1969, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 08.10.1969, Blaðsíða 3
VALI Framhald af bls. 1. ina og lanti hún aftarlega á sendibílnum, Var hann tóm- ur, og þvl léttur að aiftan, og fór á hliðina við höggið. — Tá'.ið er, að þr ðji bíll hafi byrgt útsýnið fyrir ökiuTnan-ni sendlbílsins, en hann var í rétti. — Senditáll nn sikemim'dl ist lítið en bretti eyðilagðist á fóiiksb freiðinni. — FORMAÐUR Framhald af bls. 12. skortinum. Fyrst um páska á næsta ári er ráðgert að ungl- ingalandsliðið taki þátt í riðli Evrópumeistarakeppni ungl- inga, sem haldinn verður hér heima, og næstu helgi þar á eft- ir heldur karlalandsliðið til Noregs í Polar Cup. Um svip- að leyti er von á belgíska lið- inu Standard Liége hingað á ferð liðsins til Bandaríkjanna, en það mál er enn í lausu lofti. En hver verður næsti form. KKÍ? Þessi spurning skýtur æ oftar upp kollinum, eftir því sem nær dregur ársþinginu. — Margir menn koma til greina, en sá sem oftast hefur verið nefndur í því sambandi er Hölm steinn Sigurðsson, núverandi formaður mótanefndar, og þyk- ir líklegt að óskað verði eftir því að hann taki starfið að sér. Hólmsteinn hefur lengi verið viðloðandi körfuknattleikinn, fyrst sem leikmaður og síðan í stjórn KKÍ og er því öllum hnútum kunnugur, sem körfu- knattleikinn varða. Við sjáum hvað setur. — gþ. Fóstbræðurnir Frh. af 1. síðu. til yfirkjörstjórnar að heimila ekki að fylgzt yrði með kosn- ingunum í kjördeildum. Árni Gunnlaugsson hélt því fram, að slíkt hefði verið samdóma álit bæjarráðs, enda þótt engin samþykkt hefði verið gerð, en bæjarráðsmennirnir Vigfús Sigurðsson og Stefán Jónsson lýstu því yfir, að slíkt hefði að- eins borizt í tal eftir að bæjar- ráðsfundi hefði verið lokið og bæjarráð hefði ekkert álit lát- ið frá sér fara í þeim efnum. Vísuðu þeir til fundargerðar bæjarráðs því til staðfestingar svo og fundargerðar yfirkjör- stjórnar. Spunnust út af þessum ágrein ingi miklar deilur milli sam- starfsmannanna Árna Gunn- laugssonar og Stefáns Jónsson- ar. Kvað Stefán það slæman lýti á mönnum, ef þeir kynnu ekki að taka ósigri á skynsam- ATVINNA Stúlkur, vanar jakkasaumi, o'skast nú 'þegar. HREIÐAR JÓNSSON, klæðskeri, Lauguvegi 10. Útför móður okkar, ..- MÁLFRÍÐAR JÓNSDÓTTUR 1 Laugarnesvegi 54 sem lézt 30. september, verður gerð frá Laug arneskirkju, fimmtudaginn 9. október kl. 2 Jarð'sett verður að Lágafelli. Börnin. Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og ja-rðarför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, HALLDÓRS KR. HALLDÓRSSONAR arkitekts. ■ Sigurlaug Ólafsdóttir Ásta og John. Alexander og dætur. Alþýðublaðið '8. ofctó'ber 1969 3 legan hátt, en Árni fann að því hve lítið mark væri takandi á orðum Stefáns, þeim sem ekki væru bókfest og láði sjálfum sér að hafa ekki gert sér grein fyrir því fyrirfram og æskja -eftir því á sínum tíma að um- mæli Stefáns og annarra bæj- arráðsmanna yrðu færð í gjörðabók bæjarstjórnar. Hinn mikli fjöldi Hafnfirðinga, sem komið hafði á fund bæjar- stjórnar til þess að fylgjast með umræðum, skemmti sér vel yfir orðaskiptum samstarfsmann- anna. í lok fundarins var samþykkt tillaga, sem Stefán Jónsson mælti fyrir og borin var fram af fjórum bæjarfulltrúum. í til- lögunni var vísað til samþykkt- ar bæjarstjórnar frá 1. júlí svo og ótvíræðra úrslita skoðana- könnunarinnar og litið svo á, að málið hefði fengið þá með- ferð, sem ætlazt var til. í sam- ræmi við það fyrirkomulag, sem bæjarstjórn hefði áður sam- þykkt um gang málsins yrði því úrslitum skoðanakönnunarinnar vísað til dómsmálaráðuneytis- ins án frekari afskipta bæjar- stjórnar. Væri iöluð sksndinavíska í Ameríku OSLÓ, 8. október. (ntb). □ Væri töluð skandinaviska í allri Norður-Ameríku nú, ef dagblöð hefðu verið til árið 1000? Þessi spurning er rædd í svonefndum „Vínlandsfrétt- um,“ sem SAS og dagblað í Þrándheimi standa fyrir í til- efni af Leifs Eiríkssonar-degin- um i Bandaríkjunum á morgun. Sérprentun úr Þrándheims- blaðjnu verður dreift með SAS- flugvélum í alla skóla í aBnda- ríkjunum. Einnig hefur verið efnt til samkeppni í skólum í Noregi um efnið: Hvernig hefði mannkynssagan breytzt, ef fréttin af fundi Vínlands hefði borizt þegar í stað um alla Evr- ópu. Einnig skipuleggja Norð- menn í Bandaríkjunum sam- keppni þessa þar. Verðlaunin fyrir beztu ritgerðirnar eru ferðir til Nýfundnalands og Noregs. Landsfundur barnavemdar- félaga □ Landssamband íslenzkra barnaverndarfélags heldur landsfund sinn í Reykjavík dag ana 10. og 11. október. Sambandið er samtök 10 barnaverndarfélaga sem starfa í helztu kaupstöðum landsins. Það heldur landsfund ann- að hvert ár. Á fundinum eru jafnan flutt einhver erindi fyr- ir almenning um mál, er snerta velferð barna. Þessu sinni verða flutt tvö erindi. Próf. Símon J. Ágústs- son flytur erindi er nefnist Grundvallarvandi og þróun barnavemdar og próf. Björn Björnsson erindi er nefnist Starfshættir barnaverndar nú á tímum. Erindin verða flutt i Tjarnarbúð, Vonarstræti 10, og hefjast kl. 2 e.h. föstud. 10. okt. Hvert erindi tekur um hátftíma og á eftir verða umræður. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. (Fréttatilkynning). □ Aðrir tónleikar Sinfóníu- hljómsveitarinnar á þessu starfs ári verða haldnir í Háskólabíói fimmtudaginn 9. október. — Stjórnandi verður Alfred Walt- er, en einleikari bandaríski píanóleikarinn Ann Schein. Á efnisskrá verður píanókonsert nr. 3 eftir Rakhamaninoff, tóna ljóðið Tasso eftir Liszt og sin- fónía nr. 5 eftir Haidmayer, sem ekki hefur verið flutt áður í Evrópu. Verkið er tileinkað Alfred Walter, hljómsveitar- stjóra og var samið á sjö dög- um árið 1968. — Aðalfundur □ Aðalfundur pélags bryta var haldinn fyrir skömmu. Les- in var skýrsla stjórnar og rædd hagsmunamál bryta. Kvenfélag ið Rún, félag eiginkvenna bryta, var stofnað s.l. vetur og starfar félagið á svipuðum grundvelli og önnur félög sjó- mannskvenna. Böðvar Steinþórsson var end urkjörinn formaður Félags bryta, en aðrir í stjórn eru: Rafn Sigurðsson, ritari, Anton Líndal Friðriksson, gjaldkeri, Frímann Guðjónsson, fjármála- ritari og Elísberg Pétursson, varaformaður. Varamenn; Kári Hálfdánarson og Bjarni Bjarna- son. —■ | 10°/o afsláttur til félagsmanna Ákveðið liefur verið ,að veita félagsmönnum 10% afslátt af viðskiptum til 15. nóvember næstkomandi. Þeir, sem vilja netfæra sér þetta, sæki afsláttarmiða á skrifstofu félagsins, Skóluvörðustíg 12. Þeir, sem ganga í félagið á þessu tímabili, ífá einnig afsláttarmiða. Nánari upplýsingar í búðum félagsins. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.