Alþýðublaðið - 08.10.1969, Side 13
BT Br
IÞ10TTIR
Ritstjóri: Örn Eiðsson
Hver verður næsti
formaður KKÍ?
Bogi hætiir formennsku 1. nóvember
■
□ Næsta ársþing Köríu-
knattleikssambands íslands
verður haldið í Reykiavík hinn
1. nóvember næstkomandi. —
Mörg mál bíða úrlausnar
þingsins, en líklega verður það
aðalmálið á dagskránni að
þessu sinni að kjósa nýjan for-
mann og stjórn.
Bogi Þorsteinsson, hinn lands
kunni formaður KKÍ, sem
gegnt hefur því starfi frá upp-
hafi, og unnið hefur gífurlega
mikið og fórnfúst starf í þágu
körfuknattleiksins frá því að
fyrst var farið að kasta bolta í
körfu á íslandi, hefur nú á-
kveðið að draga sig í hlé. Mun
Körfuknattleikssamband ís-
lands verða mun fátækara þeg-
ar það nú missir starfskrafta
Boga, og vandfundinn hæfur
maður til að taka sér á herðar
allt það sem fylgir því að vera
formaður Körfuknattleikssam-
bands íslands.
Magnús Björnsson lézt fyrr
í sumar, en hann var varaform.
stjórnar KSÍ frá stofnun þess og
til dauðadags, og var hann tengi
liður sambandsins við ótal
menn og sambönd víðs vegar
um heiminn. Einnig hans skarð
er vandfyllt.
Þá hefur Helgi Sigurðsson,
formaður útbreiðslunefndar, lát
ið orð að því liggja, að vegna
anna sjái hann sér ekki fært
að sinna starfi sínu í stjórninni
áfram. Sömu sögu er að segja
um Magnús Sigurðsson lækni,
sem verið hefur gjaldkeri stjórn
arinnar síðasta ár, og loks hef-
ur Guðmundur Þorsteinsson,
ritari stjórnarinnar og formað-
ur blaðanefndar ákveðið að
ganga úr stjórninni.
Tryggasti fylgifiskur Körfu-
knattleikssambandsins frá upp-
hafi vega, fjárskorturinn, fylgir
því enn, og ekki fer hjá því að
næsta stjórn sambandsins fái
einnig að glíma við þennan
draug. Vonandi tekst næstu
stjórn þó betur upp en hinum
fyrri að kveða drauginn niður,
því þá fyrst er hægt að ætlast
til þess að starfið gangi eðli-
lega fyrir sig, og samskipti við
aðrar þjóðir geti verið með
meiri glæsibrag en nú er. Eins
málin horfa nú eru fá verkefni
á dagskránni í vetur fyrir utan
fslandsmótið, og má kenna
þessa deyfð að miklu leyti fjár-
Framhald á bls. 3.
Hólmsteinn Sigurðsson. 'Verður hann næsti formað-
ur Körfuknattleikssambands íslahds?
| 4. umferð Bikarkeppninnar:
! AKRANES
100 metra grindahlaup kvenna er ný grein á alþjóða- frjálsíþróttamótumótum, og hér sjáum við Evrópumet-
hafann f greininni, Karen (Balzer frá Austur-Þýzkaiandi, sem hljóp á 13 sekúndum réttum. Hún á einnig Evr-
ópumetið í 100 metra hlauui.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
□ 3. umferð Bikarkeppni
KSÍ heldur áfram um næstu
helgi og fara þá fram tveir leik-
ir og verða þeir báðir leiknir
í Vestmannaeyjum.
Á laugardag mætast íslands-
meistararnir frá Keflavík og
Bikarmeistararnir 1968, Vest-
eyingar. Ómögulegt er að geta
sér til um úrslit í þessum leik,
því eflaust hafa báðir aðilar
fullan hug á að sigra. Vestm.-
eyingar sem hafa unnið Kefl-
víkinga tvívegis í sumar í
deildinni, hafa látið liggja að
því, að bikarinn verði ekki auð-
sóttur til þeirra, en Keflvíking-
ar hafa fullan hug á því að
tapa ekki þriðja leiknum í röð
fyrir Eyjamönnum.
Á sunnudag leika svo. nýlið-
arnir í 1. deilcí Víkingur við B
lið Eyjamanna. Ekki er síður
búizt við að sá leikur verði
jafn og spennandi.
í gær var dregið um hvaða
lið mætist í 4..'umferð Bikar-
keppninnar.
Mótanefnd boðaði fréttamenn
og fulltrúa félaga til fundar
í Naustinu, þar sem dráttur
fór fram. Miðum með nöfnum
þeirra félaga, sem eftir eru í
keppninni var komið fyrir í
skál og síðan var dregið. Fyrst-
ur dró Sveinn Zoéga og kom
upp A lið Vals. Elías Hergeirs-
son úr Val dró næsta miða og
upp kom A-lið Akraness. Leika
því Valur A og Akranes sam-
an í 4. umferð og fer leikur-
inn að öllum líkindum fram nk.
sunnudag.
Eggert Jóhannesson, Víking,
dró næstur og upp kom lið Ak-
ureyrar, en Bjarni Felixson dró
á móti þeim sigurvegarann í
leik Vikings A og ÍBV b.
Helgi Daníelsson frá Akra-
nesi dró A lið Selfoss, en ein-
valdurinn Hafsteinn Guðmunds
son frá Keflavík dró B-lið Vals
og munu þessi lið að öllum lík-
indum leika um næstu helgi.
Þá kemur það af sjálfu sér, að
KR-ingar mæta þvi liði ei/ sigr-
ar í Vestmannaeyjum á laúgar-
dag, A liði ÍBK, eða A liði. ÍBV.