Alþýðublaðið - 18.10.1969, Blaðsíða 8
8 Alþýðublaðið 18. október 1969
BARNASÍÐAN
Umsjón Rannveig Jóhannsdóttir
OKKAR Á
ilILLI SAGT
Hulló krakkar!
Eins og skýrt var frá í Alþýðublaðinu í gær mun ég
taka við af henni „Tínu frænku“ og hafa umsjón með
síðunni ykkar.
En af því að þetta er nú ykkar síða, langar mig til
þess að biðja ykkur um að hjálpa mér.
ýV Mér þætti gaman að fá frá ykkur sem flestar
teikningar. Þið ráðið alveg sjálf, hvað þið teiknið
t.d. eiíthvað úr skólanum. Seinna í vetur höfum
við svo teiknikeppni. Þá fáið þið ákveðið efni til
þess að teikna, og eins og vera ber verða svo:
veitt verðlaun fyrir beztu myndirnar.
ýV Ef þið kunnið skemmtilegar skrýtlur, eða eigið
Tvær af myndunum eru nákvæmlega eins. Getur þú
fundið, hverjar þær eru?
myndasögur eftir ykkur sjálf, þá þætti mér nú
ekki ónýtt að fá það sent. Auðvitað get ég ekki
lofað því, að allt, sem þið sendið mér, verði birt
í blaðinu, en það veit ég, að þið skiljið.
'fe Ný teiknisaga um hann Mola litla eftir Ragnar
Lár byrjar á síðunni ykkar í dag, en framvegis
mun hún birtast á hverjum degi í Alþýðublað-
inu.
'fo Þið sjáið hér mynd af veifu, og á veifunni er
hann Moli. Þetta er fínasta veifa á stöng með
fæti og það er hægt að láta hana standa á borði
eða hillu, og svona veifa verður meðal verðlaun-
anna, þegar við höfum verðlaunakeppni.
líf Svo vona ég, að við eigum eftir að starfa saman
að mörgu skemmtilegu í vetur, krakkar, og ef
þið sendið mér eitthvað með póstinum (og það
vona ég, að þið gerið), þá er utanáskriftin svona:
BARNASÍÐA
ALÞÝÐUBLAÐSINS, .
PÓSTHÓLF 320.
Svo hittumst við aftur á laugardaginn.
Ykkar
Rannveig.
MOLI LITLI — EFTIR RAGNAR LÁR.
Þeir Moli litli og Jói járnsmiður hófust þegar
handa við að smíða flugdrekann. Þeir notuðu strá í
grindina, en laufblað fyrir segl. Síðan náðu þeir sér í
tvinnaspotta og bundu öðrum enda hans í flugdrek-
ann og þá var allt tilbúið undir flugferðina cg nú var
eftir að sjá hvernig tiltækið heppnaðist.
Trésmiðjan
auglýsir
Hín marg-
effirspurðu
barnarúm
homin.
W.
Verðið
einhar
hagsfæfi
Trésmiðjan
LAUGAVEGI 166,
SÍMAR 22222 - 22229.
ÆVINTYRIÐ
UM BENNA
BANGSA
Benni finnur nokkrar
málningardósir uppi á
háalofti. „Þetta verð ég
að nota,“ hugsar hann.
„Og ég veit hvernig.“
Hann fer með nokkur
gcmul og slitin húsgögn
út og málar þau upp á
nýtt. Og þvílíkur munur.
iff>: • i-gmi? Í fiiíjr!■ •'U-ir : ■'}
En nágrannarnir hans Benna komast fljótlega að
því, hvað hann er að gera. Frú Kanína, Agnes íkorni,
Matta meldvarpa og Bjössi broddgöltur koma öll með
húsgögn, sem þau vilja láta mála. Aumingja Benni
fær nóg að gera. . 1